Læknablaðið - 01.10.1925, Blaðsíða 34
i68
LÆKNABLAÐIÐ
þótt þeir liggi grafkyrrir. Hundurinn kælir sig þannig me'S útgufun vatns,
alveg eins og mannslíkaminn kólnar viö uppgufun svita frá húðinni. Með
þessu nróti kemur hundur og maöur í veg fyrir, aö líkamshitinn hækki
um of. Próf. R. sýndi, aö hundur meö munngrimu, sem lokar alveg munn-
inum, deyr af ofhitun á hálfri klst. ef lofthiti er mifcill. Mikilsveröar rann-
sóknir hefir R. og gert um serotherapia.
F r é 11 i r.
Embætti. Jónas Sveinsson hefir veriö skipaöur héraöslæknir í Miöfjarö-
arhéraöi.
Davíð Sch. Thorsteinsson varö sjötugur 5. október. Hann er hress og
fjörugur enn sem fyr og áhugasamur um heilbrigöismál. Hann er nýbúinn
að semja bók, sem verið er aö prenta, um meðferð ungbarna.
Héraðslæknir í Reykhólahéraði hefir Guöm. Guömundsson, cand. med.,
veriö settur frá 1. október.
Stjórnarráðsúrskurður er fallinn um læknissetur í Reykhólahéraöi, aö
þaö skuli vera fyrir botni Berufjaröar.
Guðm. Hannesson, prófcssor, kom heim frá útlöndum um miöjan sept.
af mannfræðingafundinum í Uppsölum.
Friðrik Björnsson, læknir, er farinn aö stunda lækningar hér í bænum.
Hannes Guðmundsson, cand. med., er kominn úr utanför sinni og far-
inn norður á Blönduós. Verður þar í vetur fyrir K r i s t j á n A r i n-
b j a r n a r, héraðslækni, sem ætlar utan.
Læknar á ferð. Katrín Thoroddsen var hér nýskeð á ferö og Sig. Magn-
ússon, Seyðisfirði, og Páll Kolka eru hér nú staddir (21. okt.).
Egill Jónsson, cand. med., er oröinn aðstoðarlæknir á Seyðisfiröi. Bæj-
arstjórnin þar hefir samþykt að kaupa ljóslækningatæki og koma þeim
fyrir í spítalanum.
Hæstaréttardómur hefir nýlega veriö kveöinn upp í máli þeirra Eiríks
Kjerúlfs og Halldórs Stefánssonar lækna á ísafirði, sem sektaöir voru í
héraöi fyrir spírituslyfseöla í vor (sbr. Læknablaöið). Hæstiréttur sýkn-
aöi þá algerlega.
Landsspítalinn. Byrjaö er aö taka grjót upp á lóð hans og ryðja lóð-
ina og á að fara aö grafa þar fyrir kjallara. Er búiö aö gera samning um
jiað verk, og skal lokið aö grafa fyrir byggingunni í miöjum febrúar n. k.
Samtímis á aö fara aö viða aö steypuefni til byggingarinnar, svo hægt
verði aö byrja á steypunni strax aö vori, þegar veöur hlýnar. Húsameist-
ari ríkisins siglir nú til útlanda, til þess aö kynna sér veggjagerð og fleira,
sem koma mætti spítalabyggingunni aö notum.
Nýir stúdentar. 10 stúdentar hafa bætst í læknadeildina í haust og eru
nú um 50 stúdentar í deildinni.
Borgað Lœktiabl.: Þórður Edilonsson '23—'24, Ingólfur Gíslason '25, Bjarni GuÖ-
mundsson '25.
FÉLAGSPRENTSMinjAN