Læknablaðið - 15.10.1952, Qupperneq 12
24
LÆKN ABLAÐIÐ
C virus hefir í'undizt í mönn-
um með ýmsa ólika sjúkdóma.
Til þess að fá sem gleggst yfir-
lit yfir þessar rannsóknir, má
skipta þeim í 4 flokka.
1. Poliomyelitis ant. acuta. A
það hefir verið minnzt, að C
virus fannst fyrst i 2 sjúkling-
um, sem höfðu poliomyelitis
paralytica. (Dalldorf). Síðan
hefir þetta virus fundizt í all-
mörgum poliomyelitis sjúkling-
um. Ekki liafa verið færðar
neinar sannanir fyrir því, að C
virus hafi nein áhrif á gang
þessa sjúkdóms. Það hefir fund-
izt í sjúklingum, sem hafa feng-
ið lamanir, og eins í hinum, sem
hafa sloppið við þær. Þegar þess
er gætt, að bæði poliomyelitis
virus og C virus finnast helzt
á sama tíma árs, þá þarf það
ekki að vera annað en tilviljun,
þegar báðar sóttkveikjurnar
finnast í sama einstaklingi.
2. Sjúkdómar sem líkjast pol-
iomyelitis aparalytica. Sumarið
1948 voru 157 sjúklingar visl-
aðir á sjúkrahúsum í Connecti-
cut og Rhode Island vegna pol-
iomyelitis eða meningitis asept-
ica. Eftir fyrstu klinisku rann-
Jsóknir var sjúkdómsgreining
113 þessara sjúklinga poliomye-
litis aparalytica. Saur-extract
frá 13 þessara sjúklinga var
prófað á nýfæddum músum og
öpum, í þeim tilgangi að leita
að C virusi og poliomyelitis
virusi. C. virus fannst hjá 5, en
auk þess kom í Ijós, að í blóði
5 annara sjúklinga af þessum
13 voru mótefni, sem neutral-
iseruðu einn þeirra virus stofna
sem hafði fundizt. Tilraunin á
öpunum leiddi í ljós poliomye-
litis virus hjá 2 sjúklingum. C
virus fannst hjá hvorugum og
heldur ekki mótefni gegn því.
Þeir sjúklingar, sem C virus
fannst hjá, voru á aldrinum 11
—32 ára. Þeir veiktust frekar
skyndilega og fengu allir hita
frá 38, 2—40, 3 C. Hjá 2 þeirra
gekk sjúkdómurinn í tveinmr
„bylgjum“ eins og venjulega á
sér stað um poliomyelitis. Aðal-
kvartanirnar voru höfuðverkur,
flökurleiki, verkir i hnakka,
haki og kviðarvöðvum. Við
rannsókn fannst stirðleiki í baki
á 4, roði í koki í 2. Mænuvökvi
var rannsakaður frá öllum, og
var frumufjöldi frá 27—125 í
nnn3. voru 7—54% þeirra seg-
menteraðar. Eggjahvítuaukning
fannst hjá 2. Blóðrannsóknir
voru eðlilegar. Allir urðu albata
eftir stutta legu.
Við almanna kliniska rann-
sókn reyndist ógerlegt að greina
þenna sjúkdóm frá poliomyelit-
is aparalytica. I Danmörku og í
Svíþjóð hefir C virus fundizt í
sjúklingum, sem hafa haft
samskonar sjúkdómsmynd og
þessa.
Þess er einnig vert að geta
hér, að í farsótt, sem gekk í
Boston árið 1949, fundust men-
ingitis einkenni hjá 4 af 114
sjúklingum, sem voru vistaðir