Læknablaðið - 15.10.1952, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
25
á sjúkrahúsi vegna myalgia epi-
demica. C virus fannst ekki í
þessari farsótt, enda voru ný-
fæddar mýs ekki notaðar við
rannsóknina.
3. Myalgia epidemica. Þeir
höfundar, sem hafa fundið sam-
band milli C virus og sting-
sóttar, eru þessir:
Curnen, Shaw og Melnick í
Bandaríkjunum, fundu virus i
saur frá 14 ára gömlum dreng,
sem hafði ákveðin einkenni um
myalgia epidemica. Þeir segja
einnig frá 4 mönnum, sem unnu
í vinnustofu þeirra með C virus,
og fengu þeir allir stingsótl.
Ekki var hægt að rekja smit i
aðrar áttir en til vinnustofunn-
ar. 1 saur þeirra fannst C virus.
Blóð tveggja þessara manna
liafði áður verið rannsakað fyrir
mótefnum gegn C virus, en með
neikvæðum árangri. Eftir að
þeir veiktust, fundust mótefni i
blóði beggja.
Weller, Enders, Buckingham
og Finn i Bandaríkjunum, próf-
uðu 6 hálsskolvötn frá sjúkling-
um, sem veiktust- í stingsóttar-
faraldri í Boston og nágrenni.
Þeir fundu 4 virus-stofna, en
hækkun á mótefni gegn C virusi
hjá 4 sjúklingum í viðbót.
Lazarus, Johnston og Gail-
braith rannsökuðu stingsóttar
faraldur á vesturströnd Banda-
ríkjanna. Þeir hafa sagt frá
rannsóknum sínum á þessu ári,
og segjast hafa leitað að virus
í 15 sjúklingum. Þeir fundu C
virus í 4.
Findley í Bretlandi fann árið
1950 C virus í einu sporadisku
tilfelli, sem líktist stingsótt, en
skýrir auk þess frá tveim sýk-
ingum í vinnustofu sinni og
líktust sjúkdómseikennin i háð-
um tilfellum stingsótt. Á sama
ári rannsakaði Findley 3 háls-
skolvötn og 5 blóðprufur, sem
honum voru sendar frá farsótt-
arsjúkrahúsi í London. Hann
fann C virus í einu liálsskol-
vatni, en aukin mótefni gegn
ákveðnum C stofni í hlóði 5
sjúklinganna.
Metcalfe Brown, Liddle og
Tobin leituðu á þessu ári að C
virusi í 2 sjúklingum frá Man-
chester í Bretlandi. Virus fannsl
í saur annars, en aukin mótefni
í blóði beggja.
Thelin og Wirth í Sviss fundu
C virus úr einum sjúklingi, sem
hafði stingsóttareinkenni, en
einnig meningitis aseptica.
Bernkopf í Isi’ael fann árið
1951 C virusstofn úr einum
sjúklingi, sem talinn var hafa
stingsótt.
Litill vafi þykir á því, að C
virus geti valdið myalgia epi-
demica, en óvíst er hvort þetta
virus er hin einasta orsök
sjúkdómsins og eins hvort allir
C virus stofnar geta valdið
honum.
4. Aðrir sjúkdómar. C virus
hefir fundizt í sjúklingum með
ýms óákveðin einkenni, t.d. hita,