Læknablaðið - 15.10.1952, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ
31
það virus, sem áður var í 10.
gr. af saur. Þetta extract var
fryst og geymt við h- 22°C, þar
til það var notað. Þegar að því
var komið, að dæla extractinu i
dýrin, var það þýtt við stofuhita
og skilið að nj ju í 10 mín. við
3000 snúninga á mín. Dt í 0,8
ml. af extracti var bætt o,l ml.
af penisillinupplausn (20000
ein./ml.) og 0,1 ml. af strepto-
mycin upplausn (100 mg/ml.)
0,05 ml. af þessari blöndu var
dælt inn í kviðarhol á nýfædd-
um músarungum. Þetta var köll-
uð fyrsta umferð í sýkingartil-
raununum. Ekki varð vart við
að dýrunum yrði verulega meint
við aðgerðina. Þau drápust
sjaldan næstu 2 sólarhringana
á eftir, og ef það kom fyrir, þá
var venjulega vanhirðu móður-
innar um að kenna. Þau dýr sem
lömuðust, veiktust á 3. til 12.
degi, tíðast á 7. til 9. degi. Lam-
anirnar voru mjög greinilegar,
ýmist á annari afturlöpp eða
báðum. Einstaka lamað dýr
fékk krampa. Til frekari rann-
sókna voru aðeins þau dýr not-
uð, sem fengu greinilegar lam-
anir. Voru þau drepin með
chloroformi og ýmist sett í for-
malin upplausn eða fryst.
2. sýkingarumferð var gerð
með extracti af hræum þeirra
dýra, sem voru drepin í fyrstu
umferð. Extractið var lagað
þannig, að innýflum og húð var
fleygt, en bein, vöðvar og annað
sem eftir var, blandað í Waring
Blendor, svo að fengist 20%
suspension. Þessi suspension var
siðan skilin við lágan hraða og
var flotið fryst, þar til nota
skyldi, ef það var ekki sam-
tímis. Flotið var þýtt við stofu-
hita, þegar svo stóð á, og skilið
við lágan hraða, og síðan þynnt
1:9 með fysol. saltvatni, er inni-
hélt 1 % hrossaserum. Þessi
þynning var kölluð 10—2, og
var sama magni af henni ásamt
penicillin og streptomycin dælt
inn í dýr á sama hátt og í 1.
umferð.
Tafla 2 sýnir árangurinn af
tilraunum okkar til að einangra
C virus frá ofangreindum sjúk-
lingum. 1 1. dálki er númer
sjúklinganna, sem saurinn er
frá, samanber sjúkrasögurnar
að framan. Talan í svigum tákn-
ar dagafjöldann frá því sjúkl.
veiktist, þar til saur var tek-
inn. — 1 2. og 4. dálki er
fjöldi dýranna, sem notuð
voru hverju sinni, og jafnframt
sagt, hve mörg þeirra drápust
meðan á tilrauninni stóð. —
Nefnarinn í brotinu gefur til
kynna, hve mörg dýr voru dæld,
en teljarinn segir til um, hve
mörg þeirra fórust. Þau dýr,
sem drápust fyrstu 2 sólarhring-
ana, voru ekki talin með. I 3. og
5. dálki sést hvort dýrin hafa
lamast, í 6. dálki er árangurinn
af vefjarannsókn og í þeim 7.
er sýnt hvort virus fannst eða
ekki.