Læknablaðið - 15.10.1952, Page 24
36
LÆKNABLAÐIÐ
izt í svo mörgum af sjúklingum
okkar vegna þess, að aðferðin,
sem við notuðum, sé sérlega
örugg. Með því að botnfella vir-
usið í ultraskilvindu, eins og
hér var gert, má fá í lítið rúm-
mál af vökva allt það virus, sem
upphaflega fannst í talsverðu
magni af saur, auk þess sem
uppleysanleg efni er gætu eyði-
lagt virusverkunina, (Copro-
antibodies) lenda þá ekki með í
inndælingunni.
Hjá 7 sjúklingum var athug-
að, hvort viruseyðandi mótefni
liefðu myndazt meðan á sjúk-
dómnum stóð, gegn einum
þeirra virusstofna, er lýst hefir
verið. Þetta var, eins og áður
segir, gert með þeim hætti að
mæla sámtímis magnið af virus-
eyðandi mótefni í tveimur sýnis-
hornum af serum frá sama
sjúklingnum. Var annað sýnis-
hornið tekið í byrjun sjúkdóms-
ins, eða áður en mótefnin gátu
hafa byrjað að aukast, en hitt
eftir að ætla mátti, að þau hefðu
náð hámarki.
Hjá 5 sjúklingum fannst ó-
tvíræð hækkun á mótefni. Ekki
verður fullyrt, hvers vegna til-
svarandi hækkun fannst eklci
hjá hinum tveimur sjúklingum,
sem prófaðir voru, nr. 3 og 5.
Frá öðrum þeirra hafði þó fund-
izt virus, en immunologi þess
stofns hefir ekki verið rann-
sökuð frekar. Vera má, að hann
sé ekki alveg samkynja þeim
stofni (frá sjúklingi nr. 13),
sem notaður var til að mæla
mótefnainnihaldið hjá þeim 7
sjúklingum, sem það var athug-
að hjá. Hinsvegar má álykta að
a.m.k. 6 af þeim sjúklingum,
sem virus fannst hjá, hafi haft
svipaða eða samkynja stofna.
Lengra var ekki farið út i þessi
atriði ,vegna þess, að sú vinna
er mjög tímafrek og krefst mik-
ils fjölda tilraunadýra með þeim
aðl'erðum, sem enn er völ á. Af
sömu ástæðum hefir ekki enn
verið gerður samanburður við
erlenda C virus stofna, svo að
liægt væri að gefa hinum ný-
fundnu stofnum héðan númer
og bókstaf. Það má ])ó athuga
siðar, ef tækifæri verður til.
Tilraunir okkar með sting-
sóttarfaraldurinn í Reykjavík á
síðastliðnu ári, staðfesta þannig
þá skoðun, sem nú er að verða
ríkjandi, að myalgia epidemica
orsakist af virusi af svonefnd-
um Coxsackie flokki.
Heimildir:
Jón Finsen: Iagttagelser angaaende
Sygdomsforholdene i Island.
Kaupmannahöfn 1874.
Schleisner, P. A.: Island undersögt
fra et lægevidenskapeligt Syns-
punkt. Kaupmannahöfn 1849.
Sylvest, E.: Den bornholmske Syge.
Kaupmannahöfn 1933.
Daae, A.: Norsk Magasin f. Læge-
videnskaben, 3; 2. 1872. cit Sylvest,-
Houmann, C.: Ibidem, 3; 2. 1872.
cit Sylvest.
Bacher., A.: Ibdem, 4:11. 1896. cit
Sylvest.
Thiötta, T. og Salvesen, H. A.: Nord-
isk hygiejnisk Tidsskrift, 4, 1923.