Læknablaðið - 15.10.1952, Síða 36
48
LÆKNABLAÐIÐ
mál í bili, en i þess stað hefur
verið horfið að því að stofna til
námsskeiðs í heilbrigðisfræðum
fyrir embættislækna á Norður-
löndum með tilstyrk Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar. Var
um þetta rætt á fundi er for-
stjóri Evrópudeildar stofnunar-
innar átti s.l. vor í Genf með
aðalfulltrúum Norðurlandanna
á V. þingi heilbrigðisstofnunar-
innar.
Á fundi, sem haldinn var í
Gautaborg í október s.l. var
gengið frá námsskrá fyrir náms-
skeiðið og gerð kostnaðaráætl-
un, en lausleg áætlun um til-
bögun námsskeiðsins hafði áður
verið gerð á fundi í Kanp-
mannahöfn. Fundinn sátu full-
trúar frá Norðurlöndum og frá
Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.
Námsskeiðið verður haldið í
Gautaborg næsta sumar og
stendur yfir frá 1. ágúst—30.
september. Aðalefni: „Biostat-
istics, epidemiologia, environ-
mental hygiene“.
Kennslustundir alls um 275
þar af æfingar og sýninga-
stundir um 50.
Það eru fyrst og fremst hér-
aðslæknar, sem ætluð er þátt-
taka í námsskeiðinu, til að rifja
upp ýmis atriði heilbrigðis-
fræðinnar, en einnig gætu ungir
læknar, sem eru að búa sig undir
héraðslæknisstörf, fengið að-
gang að því.
Tuttugu læknar fá aðgang að
námskeiðinu, þar af einn frá Is-
landi. Kostnað við kennsluna
greiðir All^jóðaheilbrigðisstofn-
unin og að auki mun hún veila
þátttakendum styrk til að stand-
ast dvalarkostnað í Gautaborg
þá tvo mánuði, sem námsskeiðið
stendur yfir, og greiða ferða-
kostnað þeirra.
Læknar, sem óska eftir að
sækja námsskeið þetta, senda
umsókn til heilbrigðisstjórnar
lands síns.
Gert er ráð fyrir að náms-
skeið sem þetta verði endur-
tekin næstu ár, en með nokkrum
breytingum. Verða væntanlega
í vetur lögð drög að námsskrá
fyrir námsskeið sumarið 1954.
Júl. Sig.
Frtí Itrhnunt
Sigurður Magnússon, cand. med.,
hefir verið ráðinn aðstoðarlæknir
liéraðslæknisins í Blönduósshéraði
frá 8. okt. 1952 og þar til öðruvisi
verður ákveðið.
Víkingur Heiðar Arnórsson, cand.
med., var hinn 8. okt. 1952 settur
til þess að vera héraðslæknir í
Hólmavikurhéraði frá 1. nóv. 1952
að telja.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.
Félagsprentsmiðjan h.f.