Bændablaðið - 08.05.2013, Page 1
9. tölublað 2013 Fimmtudagur 8. maí Blað nr. 394 19. árg. Upplag 28.000
„Það stefnir allt hraðbyri í að
hér verði engu korni sáð þetta
árið,“ segir Marteinn Sigurðsson
á Kvíabóli í Köldukinn, en þar
eins og víðast hvar norðanlands
er mikill snjór, um 70 sentímetra
þykkt snjólag er yfir túnum og
heljarstórir snjóskaflar, allt upp
í 5 metra háir umhverfis bæinn.
Marteinn hefur undanfarin ár sáð
korni á umtalsvert landsvæði, frá 12
og upp í 18 ha, og segir uppskeru
misjafna eftir árum; hann hafi fengið
allt upp í 6 tonn á ha af þurru korni
þegar best lét og niður í ekki neitt.
Ekki sé á vísan að róa með kornrækt
svo norðarlega á landinu, en þegar
vel ári sé vissulega mikil búbót af
kornræktinni.
Marteinn hefur vanalega byrjað
að sá fyrrihlutann í maí, „en ég
sé ekki að það verði neitt úr því
núna í ár, enn er mjög mikill snjór
yfir og hann er ekki neitt á förum
sýnist mér miðað við veðurspá. Við
þurfum suðvestanátt með miklum
hlýindum, samfellt í nokkra daga
til að snjóinn taki upp og síðan þarf
að bíða í minnst tvær vikur áður
en hægt er að byrja að sá,“ segir
Marteinn. Veðurspá gefi ekki tilefni
til mikillar bjartsýni; kuldatíð verði
út alla vikuna og næturfrost fram eftir
öllum maímánuði.
„Þetta er alls ekki björgulegt,“
segir hann.
Hey brátt á þrotum
Marteinn rifjar upp að mikill snjór
hafi einnig verið á norðanverðu
landinu árin 1995 og 1979.
Fyrrnefnda árið hafi hins vegar
hlýnað snarlega strax í sumarbyrjun
og snjóþungur vetur hafi ekki haft
áhrif á t.d. heyskap. Aftur á móti hafi
allt sumarið 1979 verið kalt og liðin
vika af ágúst þegar loks var hægt að
hefja heyskap.
„Við vitum auðvitað ekki neitt um
hvernig komandi sumar verður, það
getur allt gerst, en mér sýnist nú samt
að ekki líti vel út með kornræktina,
það er að öllum líkdinum útséð með
að hægt verða að rækta korn þetta
árið,“ segir hann.
Marteinn er með ríflega 200
nautgripi á húsi og þeir þurfa sitt.
Hann segir að á Kvíabóli séu til
heybirgðir fram á sumar, líklega fram
í byrjun júlí. Hann hefur eitthvað
látið frá sér í vetur, en kveðst ekki
þora það lengur.
„Við töldum okkur eiga nóg hey
en þegar útlitið er eins og það er
þorir maður ekki að láta neitt frá sér
lengur,“ segir hann.
Verkin tefjast
Til stendur að reisa nýja vélageymslu
við Kvíaból og er byggingin
væntanleg til landsins um næstu
mánaðamót, maí/júní. Þá stóð
vitanlega til að grunnurinn yrði
tilbúinn til að hægt væri að setja
bygginguna upp, en tafir hafa orðið
á vegna þess að allt er á kafi í snjó.
„Við vorum byrjuð á grunninum,
enda átti hann að vera til þegar
byggingin kæmi, en þessi gífurlegi
snjór sem alls staðar er hefur tafið
verkið og maður veit ekki neitt
hvernig þetta þróast,“ segir Marteinn.
Mikið tjón á girðingum og
trjágróðri
Þá nefnir hann að fyrirsjáanlegt sé að
mikið tjón hafi í vetur orðið á öllum
girðingum og eins sé trjágróður illa
farinn eftir harðan vetur.
„Girðingar eru hér bara í henglum
og það verður gríðarlegt verk að laga
þær,“ segir hann. Sums staðar glittir
í efsta hluta girðingarstaura en þeir
eru líka víða alveg í kafi. Hann nefnir
tveggja strengja hestagirðingu í
námunda við bæinn þar sem ástandið
sé þannig að bróðurpartur allra staura
sé brotinn. Tré á jörðinni eru illa
farin, þau sprungin og greinar brotnar
og þá megi víðast hvar sjá hallandi
tré vegna snjóþunga, „trén hér eru
flest með 15-20 gráðu halla sýnist
mér,“ segir Marteinn. /MÞÞ
Marteinn Sigurðsson bóndi á Kvíabóli í Köldukinn:
Ekki útlit fyrir að neitt korn verði ræktað í ár
– Mynd / HKr.
16 22 50