Bændablaðið - 08.05.2013, Page 4
Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 20134
Fréttir
Formaður Bændasamtakanna og
framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda fóru um
Norðurland og Austurland
2.-3. maí síðastliðinn. Tilefni
ferðarinnar var að hitta bændur
og kanna stöðuna á svæðunum,
en miklar vetrarhörkur hafa sem
kunnugt er staðið lengi á Norður-
og Austurlandi og gert bændum
erfitt fyrir. Nú er sauðburður
að komast á skrið og hefur víða
reynst erfitt að koma lambfé
út. Það gerir það að verkum að
farið er að þrengjast á húsum hjá
bændum sem veldur erfiðleikum.
Þá eru ýmsir bændur farnir að
verða knappir á heyjum en síðasta
sumar var víða erfitt heyskaparár
á þessum svæðum, vegna þurrka.
Bændablaðið sló fyrst á
þráðinn til Sindra Sigurgeirssonar,
formanns Bændasamtakanna,
þegar hann var á ferð í Fljótum í
Skagafirði fimmtudaginn 2. maí.
Þá voru Sindri og ferðafélagar að
renna úr hlaði á Brúnastöðum.
„Við horfum hér á fjórtán tonna
beltagröfu og stóra jarðýtu sem
eru að koma snjó frá húsum til að
hægt verði að hleypa út lambfé og
komast að heyrúllum. Hér er snjó-
stál á fimmta metra,“ sagði Sindri.
Sveitarfélagið Skagafjörður sendi
vinnuvélar á bæi í Fljótum til að
moka frá útihúsum svo hægt væri
að athafna sig þar og nefndi Sindri
að ástæða væri til að hvetja fleiri
sveitarfélög til að kanna hvort hægt
væri að gera slíkt hið sama.
Ófært í hádegismatinn
Til stóð að Sindri og samferðamenn
hans færu í hádegismat á Þrasastöðum
þennan dag, en Þrasastaðir eru innsti
bær í Fljótum í byggð. Þeir komust
hins vegar hvergi vegna ófærðar.
Vegurinn þangað var ruddur í gær
en í morgun hvessti og skóf þannig
að aftur varð ófært. Á Þrasastöðum
búa þau Jón Elvar Númason og
Íris Jónsdóttir með sauðfé. Þegar
Bændablaðið hringdi á Þrasastaði
svaraði Jón í fjárhúsunum enda
sauðburður að fara á fullt skrið þar.
„Við áttum von á þeim í mat en það
fór að hvessa í morgun og þá fylltist
allt. Þetta eru snjógöng upp á einn og
hálfan metra og um leið og hreyfir
vind skefur í þetta allt.“
Að sögn Jóns er allt á kafi í snjó
á Þrasastöðum. „Það verður ekki
hægt að hleypa út lambfé hér fyrr
en tekur eitthvað upp. Við erum
reyndar vel í sveit sett með húspláss
vegna þess að við getum nýtt fjár-
hús á nágrannabænum Deplum, en
þar er bara sumarbúseta núna.“ Jón
segir að þetta tíðarfar sé ekki eins-
dæmi, áður hafi bændur þar þurft
að upplifa hörð vor. Þau séu enn
ágætlega birg af heyjum og vonandi
verði lát á vetrartíðinni þegar fer að
líða á mánuðinn.
Hjarn yfir Bárðardalnum
Áfram var ferðalaginu haldið og
farið um Svarfaðardal, Bárðardal
og Aðaldal á fyrri deginu. Að sögn
Sindra hefur dregið í mikla skafla
víða við bæi í Svarfaðardal sem gerir
bændum mjög erfitt fyrir. Áberandi
mestur snjór væri þar, í Fljótum
og svo í Bárðardal. „Í Bárðardal
er gríðarlega mikill snjór yfir öllu,
einkum um miðbik dalsins. Það er
bara þykkt hjarn þar yfir og langt
þangað til það mun taka upp, nema
að veður verði því betri.“
Hugsanlegt að fá verktaka
að sunnan
Mikil svell eru yfir túnum í Aðaldal
og bændur þar búa við mikla óvissu
vegna hættu á kali. Sindri segir ljóst
að þar verði tjón en hversu mikið
það verði eigi eftir að koma í ljós.
„Við funduðum þar með bændum
um kvöldið, þar komu nokkuð margir
bændur saman í Ysta-Hvammi. Þeir
báru sig mjög vel en sögðu ljóst að ef
voraði mjög seint og mikið kal yrði þá
yrðu vandamál með hey, bæði núna
í vor og eins heyfeng í sumar. Þar
veltu menn upp þeirri hugmynd að
hugsanlega gæti verið skynsamlegt
að fá jarðvinnuverktaka af Suðurlandi
norður ef kal yrði mikið. Það er ljóst
að jarðvinnslutæki á svæðinu hafa
ekki afkastagetu til að sinna eftir-
spurn ef svo verður og í ljósi þess
að jarðvinnsla á Suðurlandi verður
búin á þessum tíma gæti þetta verið
góður kostur. Ég mun í það minnsta
kanna þetta, heyra í verktökum á
Suðurlandi núna á næstunni og athuga
hvort grundvöllur er fyrir því að fara
í aðgerðir af þessu tagi.“
Mikil svell en minni snjór á
Austurlandi
Seinni daginn var haldið á
Austurland, Jökuldal, Jökulsárhlíð og
Hjaltastaðaþinghá. Þar eru víða mikil
svell á túnum en ekki jafnmikill snjór
og á Norðurlandi. Þó er nokkur snjór
ofarlega á Jökuldal en aðalhættan á
þessu svæði felst í kali.
Hey ættu að duga út maí
Almennt telja bændur á svæðinu
að næg hey séu til út maímánuð en
ekki mikið lengur. Eins og nefnt
hefur verið annars staðar í blaðinu
er Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
(RML) þegar búin að kalla eftir því
að bændur láti vita telji þeir hættu á
heyskorti hjá sér og eins að bændur
sem eru aflögu færir láti vita af því.
Sindri segir að skoðað verði hvort
rétt sé að gera tilboð í flutninga af
Suður- og Vesturlandi.
Bjargráðasjóður þarf hugsanlega
sérstaka fjárveitingu
Þá er ástæða til að kanna hvort
hugsanlega eigi að fara fram á sérstaka
fjárveitingu til Bjargráðasjóðs vegna
víðtæks kaltjóns. Sindri segir að
það sé ástæða til að hreyfa slíku
við stjórnvöld en erfitt sé að taka
ákvarðanir um slíkt vegna þess
hversu mikil óvissa sé um málið.
„Það er líka mikilvægt að birgjar og
fjármálastofnanir sýni því skilning að
sumir bændur gætu verið í erfiðleikum
með lausafé til kaupa á sáðvöru eða
fóður. Bætur úr Bjargráðasjóði eru
greiddar út eftir á og því tel ég að það
þurfi hugsanlega að leita samninga
við þessa aðila vegna þess.“ Þá segir
Sindri að mikið tjón hafi orðið á
girðingum. Þó eitthvað af því tjóni
verði bætt muni það bæði kosta
gríðarlega vinnu að laga girðingar og
eins sé ljóst að ekki fáist allt tjón bætt.
Enginn bilbugur á bændum
Sindri segir að almennt hafi hljóðið
í bændum verið gott. „Menn eru
auðvitað orðnir langþreyttir eftir
þennan langa vetur en bera sig mjög
vel. Það er enginn bilbugur á þeim
en óvissan er vissulega erfið. Það er
erfitt að leggja mat á stöðuna enda er
hreinlega ekki komið vor.“
/fr
Vandinn norðan- og austan-
lands kortlagður
– snjóþyngsli, ótíð og kalhætta valda miklum áhyggjum
Ótíð, snjóþyngsli og stórfelld hætta
á kali á Norður- og Austurlandi
hefur valdið bændum þar
um slóði verulegum vanda og
áhyggjum. Enn er ekki útlit fyrir
að hlýna taki verulega á næstunni.
Fulltrúar Bændasamtakanna,
Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins (RML) og
Bjargráða sjóðs funduðu með
embættismönnum í atvinnuvega-
ráðuneytinu 29. apríl síðastliðinn
vegna þessa.
Á fundinum var farið yfir stöðu
mála og ákveðið að leggjast í
kortlagningu á vandanum. Ljóst er
að heybirgðir fara minnkandi vegna
langs veturs á fóðrum en víða þurfti
að taka skepnur inn í september
eftir óveðrið sem þá gekk yfir þessi
landsvæði. Þá var heyfengur síðasta
sumar víða lélegur vegna mikilla
þurrka. Sauðburður er nú víðast hvar
hafinn og ljóst er að erfitt verður að
hýsa lambfé í þeim mæli sem þörf er
á þar eð ekki er hægt að hleypa því
út vegna snjóþyngsla.
RML sér um heymiðlun
Töluverð vinna hefur þegar farið
fram við kortlagningu á vandanum.
RML sendi bændum á Norðurlandi
bréf 3. maí síðastliðinn þar sem þeir
voru hvattir til að láta vita væru þeir
tæpir á heyjum. Talsverð heymiðlun
hefur þegar átt sér stað og ýmsir
hafa þegar keypt hey eða tryggt sér
af Suðurlandi og Vesturlandi. Þá eru
bændur á Norður- og Austurlandi sem
eiga næg hey hvattir til að láta vita
af því. Ingvar Björnsson mun hafa
umsjón með heymiðlun hjá RML og
eru bændur hvattir til að hafa sam-
band við hann.
Bændur hvattir til að tryggja sér
áburð og fræ
Þá eru bændur jafnframt hvattir til
að tryggja sér nægan áburð og fræ,
bæði til endurræktunar og eins til að
uppskera eins mikið og hægt er. Bent
er á að ekki eru miklar umframbirgðir
hjá fræsölum og áburðarsölum og því
mikilvægt að panta slíkt sem fyrst.
Fulltrúar Bændasamtakanna,
RML og Bjargráðasjóðs munu funda
aftur með fulltrúum úr atvinnuvega-
ráðuneytinu á föstudaginn kemur en
þá verður búið að kortleggja stöðu
mála gróflega. /fr
á Brúnastöðum í Fljótum. Myndir / Þórarinn Ingi Pétursson
Formaður Bændasamtakanna fór um Norður- og Austurland:
Bændur langþreyttir
en bera sig vel
– mikilvægt að birgjar og fjármálastofnanir sýni stöðunni skilning
Það dugði ekkert minna en stórvirk jarðýta til að moka upp heyrúllurnar á
Brúnastöðum í Fljótum. Myndir / Þórarinn Ingi Pétursson
Reglulega kemur fyrir að bændur
heimta útigengið fé og hafa verið
fluttar býsna margar fréttir af
því tagi að undanförnu. Það er
þó óvanalegt að bændur heimti
útgengið í öðrum sýslum og hvað
þá að kindunum fylgi nýborin
lömb. Það gerðist þó á dögunum
hjá Guðmundi Skúlasyni, bónda á
Staðarbakka í Hörgárdal.
Á sumardaginn fyrsta sáust
útigengnar kindur í fjallinu uppi af
Staðarbakka og hélt Guðmundur
ásamt fylgdarliði á tveimur
vélsleðum til að handsama féð. Kom
í ljós að um var að ræða ær með tvo
gemlinga með sér. Því til viðbótar var
ærin alveg nýborin lambgimbur sem
ekki einu sinni var komin á lappirnar.
Gekk vel að handsama féð en þegar
búið var að koma því í hús kom í
ljós að eigandinn var Guttormur
Stefánsson, bóndi í Akrahreppi í
Skagafirði. Að sögn Guðmundar
var Guttormur nálega orðlaus þegar
hann fékk hringinguna. Hann sótti
svo fé sitt og sannast hið fornkveðna
að lengi er von á einum. /fr
Heimti útigangsfé með
nýbornu lambi