Bændablaðið - 08.05.2013, Page 18
18 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Tilraunaverkefni um upphitun íþróttavalla og mismunandi grastegundir:
Upphitun flýtir grasvextinum
Á Korpúlfsstöðum er verkefni í
gangi sem gengur út á að athuga
hvort hægt sé að flýta því að
íþróttavellir verði tilbúnir til
notkunar á vorin með því að hita
þá upp, auk þess sem notaðar eru
mismunandi grastegundir í til-
rauninni.
Verkefnið kallast „Upphitun
íþróttavalla“ og fór af stað að
frumkvæði Orkuveitu Reykjavíkur,
sem lagði til stofnfé, en Knattspyrnu-
samband Íslands hefur einnig
lagt fé til verkefnisins. Það er
Guðni Þorvaldsson, prófessor við
Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ)
á Keldnaholti, sem stýrir verkefninu.
Hann segir að margir hafi komið að
þessu og starfsmenn Golfklúbbs
Reykjavíkur á Korpúlfsstöðum hafi
séð um áburðardreifingu, vökvun og
slátt á tilrauninni. „Við fórum af stað
með þetta rétt fyrir efnahagshrunið, en
síðan það varð hefur gengið erfiðlega
að fjármagna tilraunina og hefur það
komið niður á framkvæmdinni. Það
hefur t.d. ekki verið hægt að gera þær
endurbætur á tækjabúnaði sem þyrfti
að gera. Vissir hnökrar hafa verið
á tækjabúnaðinum sem hafa spillt
fyrir tilrauninni. Við vonumst til að
hægt verði að fjármagna lagfæringar
á honum. Helst viljum við nýta þessa
aðstöðu sem mest í framtíðinni, en
þetta er fjórða árið sem tilraunin er
keyrð. Það var dýrt að koma henni
upp og um að gera að reyna að fá sem
mest út úr fjárfestingunni.
Í byrjun voru útbúnir fimm reitir
með hitalögnum undir. Hægt er að
stjórna hitanum í hverjum þessara
reita sjálfstætt. Núverandi tilrauna-
plan er þannig að þann 1. mars er
byrjað að hita tvo af þessum fimm
reitum; hitinn er fimm gráður í öðrum
reitnum en tíu gráður í hinum og þá er
hitinn mældur á tíu sentimetra dýpi.
Þann 1. apríl er svo byrjað að hita tvo
reiti í viðbót með sama hætti. Fimmti
reiturinn er ekki hitaður heldur er
hann til viðmiðunar. Hver þessara
upphituðu reita er tengdur lagnagrind
eins og notaðar eru í íbúðarhúsum.
Hitanemarnir í reitunum stjórna því
hversu mikið vatn flæðir í reitina.
Ég geri ráð fyrir að við munum
endurmeta stöðuna eftir þetta ár og
e.t.v. breyta tilraunaskipulaginu.
Það væri t.d. hægt að prófa annað hita-
stig, annan byrjunartíma, mismunandi
áburðarmagn samfara upphituninni
o.s.frv. Síðar meir mætti skoða upp-
hitun að hausti. Niðurstöðurnar verða
væntanlega gefnar út í skýrslu.
Stjórnbúnaðurinn leitast við að
halda réttum hita í reitunum og
vatnsnotkun fyrir hvern reit er skráð.
Hverjum þessara fimm reita er svo
skipt í sex minni reiti með mismun-
andi grastegundum, bæði tegundum
fyrir fótboltavelli og golfflatir.
Notkun á kynbættum
snarrótarpunkti gæti aukist
Grastegundirnar fyrir fótboltavellina
eru vallarrýgresi, snarrótarpunktur og
vallarsveifgras, en skriðlíngresi og tvö
afbrigði af túnvingli eru golfflata-
grösin. Ástæðan fyrir því að við
erum með margar grastegundir er sú
að við viljum vita hvort þær bregðast
við með sama hætti í upphituninni,
sumar geta verið viðkvæmari en
aðrar. Vallarsveifgras er mikið notað
á fótboltavelli á norðlægum slóðum
en vallarrýgresi er algengara sunnar í
álfunni. Sérstaklega hefur kynbættur
snarrótarpuntur einnig verið prófaður
og notkun hans gæti aukist. Ég á ekki
von á því að þetta breytist mikið á
næstunni. Varðandi golfflatirnar hefur
túnvingull reynst vel hjá okkur og
verður hann væntanlega mest notaður
á næstu árum. Það eru þó alltaf að
koma fram harðgerðari yrki af öðrum
tegundum eins og til dæmis língresi.
Notkun þess gæti því aukist,“ segir
Guðni.
Upphitunin flýtir grasvextinum
Að sögn Guðna eru nokkrir fót-
bætast við í framtíðinni. Þess vegna
sé mikilvægt að gera svona tilraunir
á litlum reitum. „Það er dýrt að gera
mistök á heilum fótboltavelli og dýr-
keypt mistök hafa verið gerð hér á
að grasið drepist í litlum reitum eins og
hjá okkur. Það er hins vegar mikilvægt
byrja að hita upp og hvað hitinn má
vera mikill. Komið hefur í ljós að með
því að vellirnir verði tilbúnir. Það fer
hins vegar mjög eftir árferði hversu
miklu munar. Í vor hefur tíðin verið
þannig að reitir sem byrjað var að hita í
mars urðu grænir langt á undan hinum
og óupphitaði reiturinn er ekki orðinn
algrænn enn. Grösin hafa hingað til
þolað upphitunina.“ /smh
Myndir / smh
Kristján Gunnarsson mjólkureftirlitsmaður:
Lætur af störfum um
áramót eftir 32 ára feril
– betri maður eftir kynni við íslenska kúabændur
Kristján Gunnarsson mjólkur-
eftirlits maður hjá MS tilkynnti á
fundi fyrir nokkru að hann hygðist
láta af störfum um næstu áramót,
eftir áratuga farsæl störf hjá MS
Akureyri. Bændur þökkuðu
Kristjáni fyrir vel unnin störf
með því að rísa úr sætum sínum
og klappa duglega fyrir honum.
Um næstu áramót þegar Kristján
lætur af störfum mun hann hafa
starfað við mjólkureftirlit í rúm 32
ár, „og er mál til komið að hvíla bæði
ykkur og mig og hleypa nýju blóði
að,“ sagði hann í ávarpi til bænda á
fundinum.
Færri framleiðendur,
stærra svæði
Kristján nefndi að svæðið sem hann
starfar á hefði heldur betur stækkað
til beggja hliða frá því hann hóf störf,
en það nær nú frá Holtavörðuheiði
í vestri og til Djúpavogs í austri.
Mjólkurframleiðsla er stunduð á
um það bil 250 bæjum á svæðinu
og minntist Kristján þess að það
væru töluvert færri bæir en hefðu
verið á hans gamla starfssvæði
þegar hann byrjaði árið 1981, en þá
voru framleiðendurnir tæplega 400
talsins. „En þó að framleiðendum
hafi fækkað hafa vegalengdir aukist
til muna og ég hef verið að fara í
650-700 heimsóknir á ári hverju
undanfarin ár,“ sagði hann.
„Á þessum langa tíma í starfi og
flækingi mínum milli bæja hefur
margt á daga mína drifið en upp úr
stendur að mér hefur ævinlega verið
tekið með kostum og kynjum þrátt
fyrir að vera oftar en ekki nöldrandi
í framleiðendum.
Það hefur aldrei slest upp á vin-
skap inn við bændur, sem má telja
ótrúlegt miðað við hvað ég hef verið
að vinna með mörgum mjólkur-
framleiðendum gegnum tíðna og þá
ekki síður margbreytilegum persónu-
leikum. Það er þetta frábæra samstarf
mitt við ykkur sem hefur gert það
að verkum að ég hef druslast svona
lengi við þetta sem raun ber vitni.“
Frekar ráðgjafi en
„mjólkurlögga“
Kristján sagði að traust hefði
myndast milli sín og bænda, hann
hefði ávallt haft að leiðarljósi að
hann væri að vinna með bændum
sem aðstoðarmaður eða ráðgjafi
fremur en „mjólkurlögga“.
Gat hann þess að í eina tíð
hefði Guðbrandur heitinn Hlíðar,
forveri forvera síns, Guðmundar
Karlssonar, gefið honum góð ráð
sem miðlað var áfram til sín. Það
var einfaldlega svona: Skítt með
það sem þú veist, ef þú getur talað
við fólk!
Kristján nefndi einnig þær
breytingar sem orðið hefðu á
samlaginu frá því hann hóf þar
störf, fyrst var það Mjólkursamlag
KEA, síðar mjólkuriðnaðarsvið
KEA, þá Norðurmjólk og loks
Mjólkursamsalan.
„Breytingarnar hafa að mínu
mati oftast verið af nauðsyn vegna
utanaðkomandi aðstæðna í bland
við félagslegar og rekstrarlegar
aðstæður og oftar en ekki vegna
þess fræga og misvinsæla gjörnings
hagræðingar,“ sagði hann.
Staðið vörð um hagsmuni
beggja
Kvaðst Kristján alla tíð hafa
verið gagnrýninn á ýmis mál
en talið sig hafa staðið vörð um
hagsmuni beggja aðila, bænda og
fyrirtækisins, enda færu hagsmunir
saman þegar upp væri staðið, „en
ekki hefur verið sjálfgefið að öllum
háum og lágum innan MS og RM
hafi alla tíð líkað afskiptasemi mín
og skoðanir,“ sagði hann.
„En ég er samt viss um að oftar
en ekki hef ég verið á réttri braut
og er sáttur vegna starfa minna
fyrir bændur, hvað sem einhverjum
kann að finnast um einstök mál.“
Kristján þakkaði að lokum góða
samvinnu og þolinmæði í sinn garð
og kvaðst ekki fyrir nokkurn mun
hafa viljað missa af því að kynnast
þeim margbrotnu persónuleikum
sem hann hefði verið svo lánsamur
að umgangst í tengslum við störf
sín.
„Ég tel mig betri mann og
þroskaðri eftir kynni mín af
íslenskum kúabændum í 32 ár.“
/MÞÞ
Mynd / MÞÞ