Bændablaðið - 08.05.2013, Síða 20
20 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Þórunn Egilsdóttir er ný þingkona
á Alþingi eftir þingkosningar nú
á dögunum. Þórunn sat í fjórða
sætir á lista Framsóknarflokksins í
Norðausturkjördæmi og er hún 8.
þingmaður kjördæmisins.
Þórunn er sauðfjár- og
skógarbóndi á Hauksstöðum í
Vopnafirði þar sem hún býr ásamt
Friðbirni Hauki Guðmundssyni
manni sínum. Reyndar sinnir Þórunn
ýmsum störfum, en hún hefur síðasta
kjörtímabil starfað sem oddviti
Vopnafjarðarhrepps og sem kennari
við Vopnafjarðarskóla auk þess sem
hún hefur unnið við verkefnastjórn
hjá Austurbrú, menningar- og
fræðasetri. Það er því ljóst að með
Þórunni bætist í hóp þingmanna
öflugur liðsauki með reynslu af
margbreyttum störfum.
Þórunn er í hópi fjögurra bænda á
þingi, en auk hennar eru Ásmundur
Einar Daðason og Jóhanna María
Sigmunds dóttir, þingmenn
Framsóknar flokksins í Norðvestur-
kjördæmi, og Haraldur Benedikts-
son, þingmaður Sjálfstæðis flokksins
í sama kjördæmi, bændur.
Átti ekki von á þingsæti
Þórunn segir að hún hafi ekki átt
von á því þegar hún tók sæti á lista
Framsóknarflokksins að hún myndi
enda sem þingkona. „Ekki alveg
í fyrstu. Þegar leið á kosninga-
baráttunna fór ég hins vegar að finna
fyrir miklum meðbyr og sá að þetta
gæti orðið niðurstaðan.“
Kallar á breytingar
Þórunn segir að tilfinningin sem fylgi
því að hafa verið kosin á Alþingi sé
mjög góð en það sé ljóst að það kalli
á ýmsar breytingar á hennar högum.
„Það eru ýmis úrlausnarefni sem þarf
að leysa hjá okkur í fjölskyldunni. Ég
þarf til að mynda auðvitað að hætta
í minni vinnu. Ég er hins vegar ekki
óvön því að ferðast um á milli, ég
hef í störfum mínum til þessa þurft
að fara mikið á milli Reykjavíkur
og Vopnafjarðar. Hins vegar verð ég
augljóslega að hafa lengri viðdvöl í
Reykjavík nú.“
Verðum að standa vörð um
grunnþjónustuna
Spurð um sín helstu áherslumál
á þing segir Þórunn að jafnræði
sé henni efst í huga. „Að íbúar
landsins búi allir við jafnrétti.
Að við eigum öll jafnan rétt á
ákveðinni grunnþjónustu og það
ríki jafnrétti og jafnvægi í landinu.
Þá á ég við í öllu tilliti en ekki
síst í byggðalegu tilliti. Upp á það
þykir mér farið að vanta, því miður.
Grunnþjónusta úti á landi hefur því
miður verið skert mjög mikið. Um
hana verðum við að standa vörð
og byggja upp ef við viljum að
það sé raunverulegur valmöguleiki
fyrir fólk að búa á landsbyggðinni.
Við verðum að tryggja aðgengi að
heislugæslu, tryggja löggæslu, að
húshitunarkostnaður og raforku-
kostnaður sligi ekki byggðirnar. Við
verðum að tryggja að fjarskipti og
samgöngur séu boðleg, það þekki ég
til að mynda vel. Á mínu heimili er
ekki GSM-samband og það var ekki
fyrr en á síðasta ári að við fengum
öruggt símasamband í gegnum
landlínu. Þessum hlutum verðum
við að kippa í liðinn.“
Þórunn segist ekki vera búin
að leggja niður fyrir sér hver væri
óskanefndin til að starfa í á Alþingi
þegar þingstarf hefst. „Ég tek bara
þeim verkefnum sem að höndum ber
og geng í þau verk.“ /fr
Í kosningum til Alþingis sem fram
fóru 27. apríl síðastliðinn náðu
sex framboð mönnum á þing.
Framsóknarflokkurinn hlýtur að
teljast sigurvegari kosninganna,
en flokkurinn bætti tæpum tíu
prósentustigum atkvæða við fylgi
sitt frá síðustu kosningum og
fjölgaði þingmönnum sínum um
tíu. Flokkurinn fékk 24,4 prósent
atkvæða og 19 þingmenn kjörna.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk mest fylgi
framboðanna í kosningunum, 26,7
prósent, og einnig 19 þingmenn, bætti
við sig þremur. Flokkarnir tveir eiga
nú í stjórnarmyndunarviðræðum.
Hrun stjórnarflokkanna
Stjórnarflokkarnir tveir guldu afhroð í
kosningunum. Samfylkingin fékk 12,8
prósent atkvæða og 9 þingmenn kjörna,
tapaði 11 þingmönnum. Vinstri græn
töpuðu helmingi sinna þingmanna,
fengu sjö menn kjörna með 10,6
prósentum atkvæða.
Tvö ný framboð fengu kjörna
þingmenn. Björt framtíð náði góðum
árangri, hlaut 8,2 prósent atkvæða
og 6 þingmenn. Píratar náðu með
naumindum að rjúfa 5 prósenta
múrinn sem þýddi að framboðinu
var úthlutað uppbótarþingmönnum.
Framboðið fékk 5,1 prósent atkvæða
og 3 þingmenn.
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur í
viðræðum
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni var
veitt stjórnarmyndunarumboð og
hefur hann frá kosningum rætt við
formenn allra flokkanna sem fengu
þingmenn kjörna. Um síðustu helgi
ákvað Sigmundur að hefja formlegar
stjórnarmyndunarviðræður við
Sjálfstæðisflokkinn og stóðu þær enn
þegar blaðið fór í prentun.
Ljóst er að stærsta málefnið
sem Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn verða að
ná saman um eru kosningaloforð
Framsóknarflokksins um skulda-
afskriftir, sem á að ná fram með
svig rúmi sem skapast á með
samningum við kröfuhafa föllnu
bankanna. Fyrir kosningar gagn-
rýndi Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, þær hugmyndir
og taldi þær ekki fyllilega útfærðar.
Þá er meiningarmunur milli
flokkanna um skattamál. Báðir
flokkar vilja einfalda skattkerfið en
Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka skatta
á meðan Framsóknarflokkurinn vill
hækka persónuafslátt.
Andvígir ESB-aðild
Samhljómur er með stefnum flokkanna
í landbúnaðarmálum. Sé fyrst horft
til stefnu þeirra í Evrópumálum,
málaflokki sem skiptir íslenskan
landbúnað miklu máli, telja flokkarnir
báðir að hagsmunum Íslands sé best
borgið utan Evrópusambandsins.
Báðir flokkar vilja sömuleiðis að
aðildarviðræðum verði hætt og
ekki teknar upp aftur nema afstaða
íslenskra kjósenda liggi fyrir í
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Samhljómur í landbúnaðarmálum
Í síðasta Bændablaði svöruðu
flokkarnir spurningum um afstöðu
til tolla og innflutningsgjalda, um
innflutning á lifandi dýrum og hráum
dýraafurðum og um matvæla- og
fæðuöryggi. Bæði Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur leggjast ein-
dregið gegn innflutningi á lifandi
dýrum. Framsóknarflokkurinn leggst
einnig gegn innflutningi á hráum
dýraafurðum en Sjálfstæðis flokkurinn
varar við slíkum innflutningi. Báðir
flokkarnir telja mikilvægt að tryggja
fæðuöryggi þjóðarinnar og það
verði helst gert með því að verja
íslenskan land búnað og blása til
sóknar með aukinni framleiðslu.
Hvað varðar afstöðu flokkanna
til tolla og innflutnings gjalda á
innfluttar landbúnaðarvörur sem eru
í samkeppni við innlenda búvöru
styður Framsóknarflokkurinn að
lagðir séu á slíkir tollar og gjöld.
Sjálfstæðisflokkurinn segir lækkun
tolla á erlendar landbúnaðarvörur í
beinni samkeppni við innlenda búvöru
því aðeins koma til greina að erlendir
markaðir opnist að fullu fyrir íslenskar
afurðir. Flokkurinn muni ekkert gera
til að raska samkeppnisstöðu íslensks
landbúnaðar.
Mikil tækifæri til vaxtar
Frekari stefnu í landbúnaðarmálum
má sjá í landsfundarályktunum
flokkanna. Á síðasta landsfundi
Sjálfstæðisflokksins var samþykkt
ályktun um landbúnað þar sem
áhersla er lögð á að reka fjölbreyttan
landbúnað á grundvelli einkaframtaks.
Flokkurinn vill heilbrigða samkeppni
með landbúnaðarafurðir, bændum og
neytendum til hagsbóta. Mikil tækifæri
séu til vaxtar og hvetja skuli bændur
til fjölbreyttrar matvælaframleiðslu.
Á síðasta flokksþingi Framsóknar-
flokksins er það áréttað að land-
búnaður sé mikilvæg atvinnugrein á
Íslandi og leggur flokkurinn áherslu
á innlenda matvælaframleiðslu enda
sé slíkt gjaldeyrisskapandi. Hvetja
þurfi til nýsköpunar í öllum greinum
landbúnaðarins. Ný og spennandi
sóknarfæri séu að skapast, m.a. með
hlýnandi loftslagi. Þá er sérstaklega
tiltekið að horfa eigi til garðyrkju sem
grænnar stóriðju en til þess þurfi að
endurskoða háan kostnað á raforku.
Í ljósi þess sem að ofan er rakið er
nokkuð ljóst að flokkarnir muni
ekki verða í vandræðum með að ná
samkomulagi um landbúnaðarmál í
málefna samningi.
Vilja klára aðildarviðræður
Hvað varðar afstöðu hinna
flokkanna fjögurra sem sæti eiga á
Alþingi í landbúnaðarmálum ber
fyrst að nefna að allir flokkarnir
vilja ljúka aðildarviðræðum við
Evrópusambandið. Að því loknu skuli
leggja samning í dóm þjóðarinnar.
Vinstri græn eru ein flokkanna
afdráttarlaus í andstöðu við aðild
Íslands að Evrópusambandinu, en
flokkurinn telur að hagsmunum Íslands
sé best borgið utan sambandsins.
Mikilvægt að tryggja fæðuöryggi
Sé litið til spurninga Bændablaðsins
sem nefndar voru hér að ofan kemur í
ljós að allir flokkarnir telja mikilvægt
að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Það
verði best gert með því að halda úti
kraftmiklum landbúnaði. Samfylking
og Vinstri græn eru eindregið andvíg
innflutningi á lifandi dýrum og Björt
framtíð styður einnig slíkt bann sé álit
færustu sérfræðinga að innflutningur
muni stefna íslenskum búfjárstofnum
í hættu en Píratar vilja að tekin
verði upp gæludýravegabréf. Vinstri
græn leggjast þá gegn innflutningi
á hráum dýraafurðum, sem og Björt
framtíð með sömu rökum og varðandi
innflutning lifandi dýra. Samfylking og
Píratar svöruðu þeirri spurningu ekki
sérstaklega.
Hvað varðar tolla og
innflutningsgjöld styðja Vinstri
græn áframhald þess fyrirkomulags
sem nú er á þeim málum. Í svari
Samfylkingarinnar kemur fram að
flokkurinn styðji núverandi stoðkerfi
íslensks landbúnaðar og komi til
þess að tollar lækki, t.d. við aðild að
Evrópusambandinu, þurfi að mæta
slíku með auknum beinum stuðningi.
Björt framtíð telur að til þess að
landbúnaður á Íslandi geti vaxið þurfi
að skapa tækifæri til að flytja afurðir
út í meira mæli en nú er gert. Slíkt
kalli á tvíhliðasamninga sem muni
óhjákvæmilega draga úr tollvernd.
Píratar hafa hins vegar ekki mótað sér
afstöðu í málaflokknum.
Mismikil áhersla á landbúnað
Í stefnuskrám og samþykktum
flokkanna fjögurra er mismikil áhersla
lögð á landbúnaðarmál. Hjá Pírötum er
lítið sem ekkert minnst á landbúnað.
Björt framtíð leggur áherslu á að
jarðvarmi verði nýttur í meiri mæli til
ræktunar á ávöxtum og grænmeti. Þá
vill flokkurinn að aukin áhersla verði
lögð á lífræna ræktun og dýravernd
verði í hávegum höfð.
Í stefnuskrá Samfylkingarinnar
kemur farm að landbúnaðurinn eigi
sóknarfæri, m.a. í tengslum við
ferðaþjónustu og matvælageirann.
Vinstri græn hafa ítarlega
landbúnaðarstefnu þar sem m.a. kemur
fram að stefna skuli að sjálfbærni
landbúnaðar á Íslandi, bæði hvað
varðar framleiðslu aðfanga innanlands
og einnig að landbúnaður þróist á
grundvelli viðhorfa um sjálfbæra
þróun.
/fr
Stjórnmál
Sex framboð náðu kjörnum fulltrúum á Alþingi í þingkosningum 2013:
Framsókn sigurvegari kosninganna
– stjórnarmyndunarviðræður milli formanna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks
Bjarni
Benediktsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Þórunn Egilsdóttir bóndi á Hauksstöðum er ný þingkona:
„Geng í þau verk“
– vill tryggja jafnræði milli allra þegna landsins
Þórunn Egilsdóttir
Harmónikufélagi
Selfoss hefur gefið
út geisladisk sem
heitir Vangaveltur
eftir samnefndu
lagi Þorsteins
Guðmundssonar
á Selfossi (Steina
Spil).
Á diskinum er
mjög fjölbreytt efni,
íslenskt og erlent,
flutt af hljómsveit
fé lags ins og
nokkrum einleikurum. Útsetningar
velflestra laganna á diskinum
gerði Helgi E. Kristjánsson, sem
einnig annaðist
u p p t ö k u r ,
hljóð blöndun
og frágang
d i s k s i n s .
Diskur inn er
til sölu hjá
harmóniku-
f é l a g s -
m ö n n u m
en þar í
forsvari eru
Guðmundur
Ægir Theodórsson
í síma 862 7594 og Þórður
Þorsteinsson (Doddi) í síma 894
1286. /MHH
Harmónikufélag Selfoss
með nýjan geisladisk
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!