Bændablaðið - 08.05.2013, Side 28
28 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Garðyrkjustöðin Espiflöt í Reykholti 65 ára:
Byrjaði í grænmeti en sinnir
nú eingöngu blómarækt
– þriðji ættliðurinn að taka við og orðinn meirihlutaeigandi í stöðinni
Garðyrkjustöðin Espiflöt er orðin
65 ára og var haldið upp á atburðinn
á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí.
Um leið var haldið upp á að þriðja
kynslóðin er að taka við rekstrinum.
Bændablaðið tók hús á eigendum
stöðvarinnar um nýliðna helgi til að
forvitnast um reksturinn.
Grunnur að garðyrkjustöðinni
Espiflöt var lagður þann 1. maí 1948,
þegar hjónin Eiríkur og Hulda Sæland
fluttust búferlum úr Hafnarfirði og
settust að í Reykholti með það fyrir
augum að stofna þar garðyrkjubýli.
Eiríkur hafði útskrifast úr öðrum
árgangi Garðyrkjuskóla ríkisins að
Reykjum í Ölfusi vorið 1943.
Þau hófu vinnu á Garðyrkju-
stöðinni Stóra-Fljóti þar sem
þau unnu samhliða því að kaupa
sér land úr jörðinni og hefja þar
byggingu íbúðarhúss og gróðurhúsa.
Einnig þurfti að kaupa sér aðgang
að Reykholtshver til að hita upp
gróðurhúsin. Jón H. Björnsson
landslagsarkitekt, seinna kenndur
við Alaska, teiknaði umhverfið
og lagði upp frumskipulag
garðyrkjustöðvarinnar.
Nafn garðyrkjubýlisins var raunar
Sjónarhóll allt fram til 1958, þegar því
var breytt í Espiflöt.
Fram undir 1965 var eingöngu
ræktað grænmeti á Espiflöt en á
árunum 1965-1977 var blönduð
ræktun blóma og grænmetis. Á
þessum árum var garðyrkjustöðin
um 1.300 m2 að fatarmáli.
Önnur kynslóð tók við 1977
Árið 1977 hófst nýr kafli í rekstrinum
er synir þeirra Stígur og Sveinn ásamt
eiginkonum þeirra, Aðalbjörgu
og Áslaugu, stofnuðu með þeim
Félagsbúið Espiflöt sf.
Ákveðið var að sérhæfa sig í
ræktun afskorinna blóma þar sem
blandaða ræktunin gafst ekki vel, m.a.
með tilliti til notkunar varnarefna.
Garðyrkjustöðin var stækkuð og
endurnýjuð á næstu árum samhliða
því að leigja garðyrkjustöðvarnar
Friðheima og seinna Birkilund fyrstu
sex árin.
Árið 1987 urðu enn þáttaskil
í starfseminni þegar Stígur og
Aðalbjörg stofnuðu sína eigin
garðyrkju stöð á lóð Espiflatar og
hurfu úr rekstrinum.
Þann 1. maí 1998, eftir nákvæmlega
50 ára búsetu, hættu Eiríkur og Hulda
þátttöku í rekstrinum og fluttu á
Selfoss eftir langt og farsælt starf.
Eiríkur lést í nóvember 2002.
Síðan 1998 hafa hjónin Sveinn A.
Sæland og Áslaug Sveinbjarnardóttir
átt og rekið Espiflöt ehf. Þau
eru bæði garðyrkjufræðingar frá
Garðyrkjuskóla ríkisins, útskrifuð
1974 og 1976, en Sveinn að
auki með nám í rekstrarfræðum
frá garðyrkjuskólanum Söhus í
Danmörku.
Þriðja kynslóðin að taka við
Á sl. 5 árum hafa sonur þeirra
og tengdadóttir, Axel Sæland
íþróttafræðingur og Heiða Pálrún
Leifsdóttir hjúkrunarfræðingur,
komið inn í reksturinn. Var haldið
upp á það 1. maí að þau hafa nú
eignast ráðandi hlut í stöðinni. Í
dag er ræktunarflatarmál garðyrkju-
stöðvarinnar rúmlega 6.300 fermetrar
auk véla-, kæli- og pökkunarrýmis.
Mikil endurnýjun á húsakosti
Öll gróðurhúsin eru annaðhvort
endur byggð eða nýbyggð eftir
1976. Um 12 ársverk eru unnin við
reksturinn. Eingöngu eru ræktuð
afskorin blóm á Espiflöt.
„Fyrstu garðyrkjustöðvarnar risu
hér í Reykholti fyrir um 60 til 70 árum.
Þá risu strax sjö garðyrkjustöðvar
sem settar voru upp af miklum
frumkvöðlum. Meðalstærð stöðvanna
var þá um og innan við 1.000
fermetrar. Fyrir um 20 árum varð
hröð þróun og rekstaraðilum fækkaði
mjög. Á tímabili voru starfandi yfir
40 stöðvar í blómarækt á landinu öllu
en þeim hefur nú fækkað niður í 12
til 14. Stærð stöðvanna hefur að sama
skapi vaxið og nú eru ræktuð blóm
allt árið um kring og hver stöð með
Mynd /HKr.
Mynd / Ívar Snæland
Mynd / Ívar Snæland