Bændablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 29
29Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
allt að 10 til 12 starfsmenn,“ segir
Sveinn A. Sæland.
Auk blómaræktar Espiflatar
eru starfandi nokkrar aðrar
gróðararstöðvar í Reykholti og hver
um sig með mismundandi ræktun.
Þarna er nú að verða til öflugasta
garðyrkjusvæði landsins þar sem m.a.
margvísleg berjarækt fer ört vaxandi.
Framleiða mikið af blómvöndum
Sveinn segir að í stöðinni í Espiflöt
séu nú ræktaðar um 13 tegundir blóma
í margvíslegum litum og afbrigðum.
„Við sérhæfum okkur eiginlega í að
vera í öllu sem viðkemur blómum
og við framleiðum m.a. mikið af
tilbúnum vöndum sem gengið er frá
hér á staðnum.“
Sonurinn Axel segir að blómin
frá þeim fari víða. „Það eru
m.a. blómavendir frá okkur í
stórmörkuðum og á bensínstöðvum
og blómabúðir eins og Blómaval er
einn af okkar stærstu kúnnum.
Þeir feðgar eru sammála um að
með því að setja saman blómavendina
á staðnum náist talsverður virðisauki.
„Okkur finnst þetta henta okkar
umhverfi vel og við getum nýtt
mannskapinn mun betur en ella og
þurftum ekki að setja upp starfsemi
á höfuðborgarsvæðinu til að gera það
sama. Fyrir vikið getum við boðið upp
á mun ódýrari vöru á markaðnum. Þá
er þetta hagstætt fyrir byggðarlagið
þar sem þetta skapar aukna atvinnu en
hér starfa um 12 manns og allt mjög
traust og gott vinnuafl,“ segir Sveinn.
„Með þessu móti er líka auðveldara
fyrir okkur að bregðast hratt við að
sinna séróskum viðskiptavina.“
Lífrænar varnir í stað
varnareiturefna
Einn vandinn við ræktun matjurta
og blóma er að það eru fleiri en
mannfólkið sem sýna þessum
jurtum áhuga. Margvísleg sníkjudýr
flugur og bjöllur sækja í hinar ýmsu
tegundir og geta oft valdið miklum
skaða. Lengi vel þótti þægilegast
og öruggast að bregðast við ásókn
skordýra með lyfjum og ýmsum
eitruðum varnarefnum. Á síðari
árum hafa viðhorfin gagnvart slíkri
efnanotkun verið að breytast mjög
hratt enda aukinn vitund um skaðsemi
þeirra á heilsu manna.
„Síðustu tólf árin höfum við
eingöngu notað hér lífrænar varnir
í ákveðnum tegundum og höfum
verið að þróa okkur í þá átt eins og
grænmetisframleiðendur hafa gert,
en þar eru nú nær eingöngu notast
við lífrænar varnir.
Þetta er mjög spennandi og skapar
auðvitað heilbrigðara umhverfi fyrir
okkur að vinna í og eins heilnæmari
vöru fyrir neytendur. Þetta hefur verið
ör þróun síðustu tuttugu til þrjátíu
árin og staðan hefur gjörbreyst á
síðustu tíu til fimmtán árum,“ segir
Sveinn, „Þá eru stöðugt að koma
inn nýjar tegundir nytjaskordýra
sem nýta má til varnar. Fyrir utan
almenna tækniþróun sem valdið hefur
byltingu í rekstrinum á síðustu árum
er þetta sú þróun sem skemmtilegast
er að fást við.“
Hafa flugur, bjöllur og maura í
sinni þjónustu
Axel tekur undir þetta og segir að nú
séu ræktunarhúsin að mestu hrein þó
aðskotadýrum sem herji á plönturnar
verði aldrei útrýmt.
„Þetta byggist á að finna jafnvægi
í lífríkinu í húsunum og þannig að
tegundirnar haldi hver annarri í
skefjum. Við flytjum inn tvær tegundir
af flugum, bjöllur og maura til að
sinna þessu hlutverki,“ segir Axel.
„Hlutverk þeirra er mismunandi.
Önnur flugutegundin á t.d. að herja
á lúsina, en hin á hvíta flugu sem er
svolítið slæm í gróðurhúsum í dag og
erfiðast að ráða við. Maurunum og
bjöllunum er líka beint gegn þessari
hvítu flugu. Allt verður þetta þó að
vera í ákveðnu jafnvægi. Þetta er enn
sem komið er kostnaðarsamara en
úðun, en maður vonast til að ná betri
tökum á þessu með árunum.“
Sveinn segir að notkun lífrænna
varna sé mikið þolinmæðisverk.
Sjálfur hafi hann í gegnum tíðina
ekki getað státað af mikilli þolinmæði
gagnvart lífrænum vörnum gegn
aðskotadýrum og þótt einfaldara að
sprauta yfir plönturnar lyfjum og
öðrum varnarefnum. „Ég var kannski
svolítið fastur í því umhverfi en nýjar
áherslur koma með nýju fólki.“
Ísland hagstætt hvað varðar
hreinleika
Þeir feðgar segja umhverfið á
Íslandi mjög hagstætt til að beita
náttúrulegum vörnum. Stóran hluta
ársins sé umhverfið í kringum
gróðararstöðvarnar laust við pestir
vegna kuldans sem hér ríkir. Það sé
þá helst yfir hásumarið sem eitthvað
af meindýrunum geti lifað utan dyra
og geti þá líka sótt inn í gróðurhúsin.
Þetta sé mjög ólíkt aðstæðum í heitari
löndum eins og í Hollandi þar sem
slíkt er viðvarandi vandamál allt árið
um kring. Vegna þess þarf að sér
meðhöndla alla græðlinga sem seldir
eru til gróðrastöðva á Íslandi með
efnafræðilegri sótthreinsun til að losa
þá við allt smit. Þegar græðlingunum
er síðan komið af stað í ræktun hér
heima tekur fjórar til sex vikur áður
en hægt er að mynda það lífræna
jafnvægi sem æskilegt er í jarðvegi
plantnanna.
Sveinn segir að mjög strangt
sé tekið á því að útflytjendur t.d. í
Hollandi skili frá sér hreinum plöntum
til Íslands. Ef menn reyni að fara í
kringum þær reglur eigi menn á hættu
að missa útflutningsleyfi.
Raforkukostnaður stór rekstarliður
Gróðurhúsaræktun tekur til sín
mikla orku og þá aðallega varaðandi
lýsingu í húsunum. Sveinn segir að
Garðyrkjustöðin Espiflöt sé alls ekki
stærst hvað raforkukaup til lýsingar
varðar.
„Við erum þó að kaupa á þessu ári
hátt í fjórar milljónir kílówattstunda.
Í okkar reikningum er þetta um 15
til 20% af rekstarkostnaði. Okkar
nágrannar, sem eru mjög stórir í
ræktun á gúrkum og tómötum, eru
með þetta hlutfall talsvert hærra enda
nýta þau lýsingu mun stærri hluta
ársins en við.
Raforkukostnaður er því veru-
legur þegar meðal kílówattstund
kostar tæpar 6 krónur. Við berum þó
þá von í brjósti að það komi hér til
valda fólk sem hafi meiri skilning á
því að garðyrkjan sem heild fái að
njóta magnkaupa á raforku. Þessi
grein er að kaupa ríflegaum 70 millj-
ónir kílówattstunda á ári og á bak við
þessi kaup eru innan við 30 framleið-
endur á mjög afmörkuðum svæðum.
Okkur þykir því hart að fá ekki að
njóta stærðaráhrifanna betur en í dag.
Sem dæmi þá er erum við hér með
eina garðyrkjustöð hér í Reykholti
sem er að nota álíka mikla raforku
og öll heimili á Árborgarsvæðinu,“
segir Sveinn.
Til að mæta kostnaði vegna
raforkudreifingar hafa garðyrkju-
bændur fengið verkfræðistofu til að
skoða arðsemi af uppsetningu eigin
á dreifingarkerfi garðyrkjunnar á
svæðinu í kringum Laugarás, Flúðir
og Reykholt. Niðurstaðan er sú að
slík veita myndi borga sig upp á fimm
til sjö árum þannig að augljóst er að
RARIK myndi missa þar drjúgan spón
úr aski sínum.
/HKr.
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri www.jotunn.is
5450 - 107 hö
*Verð miðast við gengi 153 EUR
Staðalbúnaður
Massey Ferguson 5450
4x4 - með ámoksturstækjum
Verð: 8.680.000,- kr. + vsk.*
Hafið samband við sölumenn
okkar til að fá nánari upplýsingar!
Sparneytnar 4ra strokka Perkings dieselvélar.
Hitari á mótor.
Vökvavendigír með stillanlegu átaki og útslætti á keyrslu.
Dyna-4 gírkassi 16F/16R (hægt er að skipta vökvaþrepum
bæði í gírhandfangi og með vendigírnum).
2 tvívirkar vökvaspólur / vagnbremsuventill.
4 aflúrtakshraðar (hraðabreytir í ökumannshúsi).
Opnir beislisendar / lyftudráttarkrókur.
Loftpúðasæti / farþegasæti.
Fullkominn vinnuljósabúnaður.
Rafstýrt beisli.
Verkfærakassi.
Flotmikil framdekk 440/56R24 og 540/65R34 að aftan.
Niðursveigð vélarhlíf (lágnefja).
Vökvadæla 100 l.
130 l olíutankur.
Lyftigeta á beislisendum 5000 kg.
Jötunn Vélar ehf. - Kt. 600404 2610
Sveinn býður gesti velkomna. Mynd / Ívar Snæland
Svavar Sveinsson, Þorsteinn Þórarinsson, Helgi Jakobsson og Hildur
Sigurðardóttir. Mynd / Ívar Snæland
Kokkurinn, Jón K.B. Sigfússon, með súpuna góðu. Mynd / Ívar Snæland
Feðgarnir Sveinn og Axel Sæland í nýjasta gróðurhúsinu. Þar er vítt til veggja og mun hærra til lofts en í eldri húsunum og því auðveldara að halda uppi
Myndir /HKr.