Bændablaðið - 08.05.2013, Side 35
35Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
jafnt og þétt niður í t.d. 400 eða jafn
vel 200 tré á ha.
Skosk rannsókn bendir til að þar
sem sauðfé er beitt megi þéttleikinn
þó ekki fara niður fyrir 400 tré á ha
þar sem sauðfé vill gjarna troðast að
trjám og hætta verður á of miklu álagi
á rótarkerfi og stofn ef þau eru færri.
Trjátegundir í hagaskógum
Í upphafi og á meðan verið er að
mynda skógarloftslag (nær veður) er
rétt að nota sem mest af fljótvöxnum
ódýrum frumherjategundum svo sem
ýmiss konar víði, björk og alaskaösp.
Ódýrar fljótvaxnar tegundir geta
sem best verið ¾ hlutar þess sem
plantað er í upphafi enda er þeim
ekki endilega ætlað að vaxa nema
2 áratugi.
Fjórðungur plantna þarf hins
vegar að vera af tegundum sem eiga
að bera uppi hinn eiginlega hagaskóg
til langs tíma.
Almennt er lauftrjám hættara við
að skaðast af beitardýrum en þau, og
aðrar ljóselskar tegundir eru engu
að síður heppilegar í hagaskóga
enda hleypa lauftré ljósi betur til
botngróðurs. Trén þurfa helst að vera
af verðmætum tegundum (timbrið)
og langlíf enda er þeim ætlað að
standa í áratugi eða jafnvel aldir.
(Sjá töflur 1 og 2 yfir heppilegar
trjátegundir í hagaskóga. Heppilegt
getur verið að nota grenitegundir í
sérstaka skjóllundi þar sem búsmali
getur leitað skjóls í hrakviðrum.)
Ábati hagaskóga
Ábata í hagaskógum fyrir beitardýr er
fyrst og fremst að þakka skjóláhrifum
skógarins á grasvöxt og dýrin sjálf.
Grasvöxtur á næðingssömum stöðum
er talinn geta aukist um allt að 70%
vegna minni kælingar í skjóli trjáa.
Þetta á sérstaklega við að vori og
hausti og að sjálfsögðu í köldum
sumrum. Afurðir t.d. mjólkurkúa
geta orðið 10-15% meiri við það
eitt að skjól sé í bithögum. Sama
ástæða ræður því að nautgripir til
kjötframleiðslu ala gjarnan allan sinn
aldur innandyra hérlendis. Lauffall
og vatnsbinding í skógarjarðvegi er
einnig þýðingarmikið fyrir grasvöxt.
Hins vegar þarf að reikna
með skiptibeit með tilheyrandi
girðingakostnaði og ef að líkum
lætur þurfa beitardýr reglulega
ormalyfsgjöf í þéttum högum.
Ábati af vel skipulagðri beit í
skógi (fyrir skóginn) er margs konar,
lítil sina og runnagróður og þar með
minni eldhætta, búfjáráburður í
skóginn nýtist trjám eins og öðrum
gróðri vel í hringrás næringarefna.
Í hagaskógum hátt til fjalla í
frönsku Ölpunum er talið að samspil
búfjáráburðar og rótarsveppa lerkis
geti búið til einkar frjósaman jarðveg
á mjög snauðu landi en þá má hvorki
vanta lerkitrén né búféð og ferlið
tekur áratugi. Í gömlum hagaskógum
gegna beitardýrin m.a. því hlutverki
að halda niðri vexti og viðgangi
óæskilegra trjátegunda (illgresi –
ódýr viður og skuggatré) en lerkið
er langverðmætasta timbrið á þeim
slóðum og séð er til þess með ýmsum
ráðum að það nái að endurnýja sig
og vaxa.
Sæmundur K. Þorvaldsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Skjólskóga á Vestfjörðum.
Landbúnaðarsaga Íslands
Landbúnaðarsaga Íslands er
fjögurra binda verk. Höfundar
eru Árni Daníel Júlíusson sagn-
fræðingur og Jónas Jónsson fv.
búnaðarmála stjóri, sem féll frá árið
2007. Árni Daníel ritar tvö bindi um
sögu bændasamfélagsins, hag bænda
og markaðsþróun, og Jónas tvö
bindi um þróun búgreinanna, meðal
annars tækniþróun, búfjársjúkdóma
og starf ráðunauta.
Fyrsta bindi fjallar um sögu
bændasamfélagsins á Íslandi fram
til 1800. Bindið hefst á umfjöllun
um rætur íslensks landbúnaðar í
nágrannalöndunum, sérstaklega
Noregi. Þá er fjallað um landnám og
búskap fyrstu aldir Íslandssögunnar,
fram til um 1100, og fyrst og fremst
stuðst við fornleifafræðirannsóknir í
þeim kafla. Í kafla um tímabilið 1100-
1400 er meðal annars gerð grein fyrir
þeirri mynd sem Íslendingasögurnar
draga upp af landbúnaði, en
auk þess sem þekking fengin úr
fornleifarannsóknum er nýtt er að
öðru leyti stuðst við hefðbundnar
ritheimildir, sem koma einmitt til
sögunnar um 1100. Fjallað er um
landbúnaðarkerfið eins og það birtist
í heimildum, kornrækt, heyskap,
kvikfjárrækt, garðlög og seljabúskap,
höfuðból og fjölskyldubúskap, afgjöld,
samskipti leiguliða og landeigenda og
vaxandi veldi kirkjunnar, sem eignaðist
æ fleiri jarðir þegar leið á miðaldir.
Þessu næst eru teknar fyrir
hinar miklu breytingar sem urðu í
landbúnaði á 15. og 16. öld. Mikil
mannfækkun varð af völdum farsótta
og leiddi það til gríðarlegs samdráttar
í landbúnaðarframleiðslu, lækkun
afgjalda og betri lífskjara hjá þeim
sem lifðu af. Jafnframt urðu miklar
breytingar á kerfinu sjálfu þegar
kornrækt dróst saman og lagðist
loks af. Járnframleiðsla minnkaði
mikið og farið var að flytja inn nær
allt járn, og seljabúskapur lagðist
víða af. Sauðfjárrækt jókst á kostnað
nautgriparæktar.
Á 17. og 18. öld fæst æ skýrari
mynd af bændasamfélaginu eftir því
sem betri og betri heimildir koma til
sögunnar. Ber þar hæst Jarðabók Árna
Magnússonar og Páls Vídalín. Fjallað
er um mannfjölgun og útþenslu 17.
aldar og áföll af völdum pesta, harðinda
og eldgosa á 18. öld. Þá er rætt um
e f l i n g u
ríkisvaldsins á
17. og 18. öld og áhrif þess á
bændasamfélagið og um verslun
bænda.
Í 2. bindi er fjallað um
bændasamfélagið á 19. og 20. öld. Gerð
er grein fyrir hinum miklu breytingum
sem urðu í upphafi 19. aldar og leiddu
til þess að bændasamfélagið fór að
framleiða vörur fyrir heimsmarkað.
Stöðugur hagvöxtur var á 19. öld sem
leiddi til batnandi lífskjara og betri
hags almennings. Einnig er fjallað
um átök milli almennnra bænda og
landeigenda, en hið nýendurreista
Alþingi var frá upphafi að mestu
skipað landeigendum og þjónaði
hagsmunum þeirra.
Þegar kemur fram um 1880 fór
þéttbýli að vaxa og þar var farið að
stunda umfangsmikinn landbúnað.
Garðrækt og túnrækt varð snar
þáttur í lífi þéttbýlisbúa. Enn sem
komið var versluðu bændur í sveitum
landsins aðallega við útlönd, fluttu út
sauðfjárafurðir til sölu og keyptu inn
ýmiss konar neysluvörur.
Þetta fór svo að breytast á
millistríðsárunum. Um 1930 fóru
bændur að framleiða mjólk til
innanlandsneyslu, og það varð smám
saman einn mikilvægasti þáttur í
landbúnaðinum. Sauðfjárrækt hélst
mikil, og var nú aðallega framleitt
fyrir innanlandsmarkð. Miklar
tækniframfarir urðu í landbúnaði og
hann breytti um svip, sérstaklega á
árunum 1950-1970.
Um 1980 lauk útþenslu og nú
hófst samdráttur í landbúnaði, kvótar
voru settir á landbúnaðarframleiðslu
og bætur til útflutnings skornar
niður. Þetta kom harðast niður á
jaðarsvæðum vestan og austan til á
landinu, sem voru háðust sauðfjárrækt.
Framleiðni jókst mikið, sérstaklega
í mjólkurframleiðslu, svínarækt og
kjúklingarækt. Búum fækkaði stöðugt
og þau sem eftir urðu framleiddu meira
hvert fyrir sig.
Í 3. bindi er fjallað um þróunina
í sauðfjárrækt, nautgriparækt og
hrossarækt. Áherslan er á framfarir í
þessum greinum á 18., 19. og 20. öld.
Fjallað er um áhrif upplýsingarinnar
um 1800 í hverri grein fyrir sig, um
skrif um landbúnað og vaxandi áhuga
ráðamanna á framförum í landbúnaði.
Ítarlega er fjallað um gríðarleg áhrif
búfjársjúkóma, sem sérstaklega voru
mikil í sauðfjárrækt. Æ ofan í æ
bárust hingað búfjárpestir sem leiddu
stundum til mikils niðurskurðar, bæði
á 18., 19. og 20. öld.
Á 20. öld var farið að sinna mjög
skipulega tækniþróun í búfjárrækt
með kynbótum, rannsóknum og
fræðslu. Gerð er grein fyrir störfum
búfjárræktarráðunauta og þeim miklu
framförum sem urðu í kvikfjárrækt á
20. öld.
Í 4. bindi er fjallað um þróunina í
jarðrækt á 18.-20. öld með svipuðum
hætti og í umfjöllun 3. bindis um
búfjárrækt. Ítarlega er rætt um
tækniþróun og framfarir í heyskap
og túnrækt. Í bindinu er einnig fjallað
um þróunina í garðrækt, skógrækt,
fiskeldi og veiði í ám og vötnum, og
um loðdýrarækt. Garðrækt var ein
af þeim nýjungum sem fylgdi starfi
búnaðarfrömuða 18. aldar. Farið var að
rækta kartöflur, kál og rófur og jókst sú
ræktun mikið á 19. öld. Á 20. öld kom
fram sú nýjung að farið var að rækta
grænmeti og blóm í gróðurhúsum sem
hituð voru með jarðhita.
Ritun Landbúnaðarsögu Ísland
hófst fyrir forgöngu landbúnaðar-
ráðuneytisins um 2005 og hefur
verkið verið fjármagnað með styrkjum
frá ráðuneyti, Alþingi og ríkisstjórn.
Bændasamtökin hafa einnig lagt
verkinu mikið lið og veitt því aðstöðu
og aðgang að myndasafni samtakanna.
Einnig hafa þau lagt fram fé, sem og
ýmis önnur fyrirtæki og stofnanir í
landbúnaði.
Mótorvarrofar og spólurofar
TRAUSTAR
VÖRUR...
...sem þola álagið!
Hraðabreytar Öryggisliðar
Skynjarar Töfluskápar
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
3
1
.3
0
1
Raftæknivörur
www.falkinn.is
Aflrofar Iðntölvur