Bændablaðið - 08.05.2013, Side 37
37Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Dálkahöfundur fékk tölvupóst
frá ágætum bónda í síðustu viku
sem þakkaði fyrir umfjöllun
Bændablaðsins um fjarskiptamál
en lýsti jafnframt yfir áhyggjum
af því ójafnræði sem fólk í
dreifbýli byggi við þegar kæmi
að aðgengi og verðlagningu að
fjarskiptaþjónustu í samanburði
við fólk sem byggi á höfuðborgar-
svæðinu eða á þéttbýlisstöðum úti
á landsbyggðinni. Í tölvupóstinum
er þessu lýst þannig:
,,Við erum að byggja upp aðstöðu
fyrir listamenn, ég hef fengið
fyrirspurnir og finn fyrir miklum
áhuga. En það er ljóst að engin er
að fara að hafa aðsetur hér til lengri
eða skemmri dvalar ef enginn er net-
aðgangur, sem er sjálfsögð þjónusta
í dag. Uppbygging á þjónustu eins
og við erum að hugsa okkur er
ekki möguleg vegna þess að við
getum ekki boðið gestum upp á
internetþjónustu eins og kostnaðurinn
er í dag.“
Þetta ójafnræði er með ýmsum
hætti. Ennþá eru um 50 bæir sem
aðeins eiga kost á fjarskiptaþjónustu
í gegnum gervihnött, sem er mun
lakari kostur en t.d. 3G þráðlaust
samband, sem aftur er svo lakara
í flestum tilfellum en ADSL-
netsamband, sem aftur er svo lakara
en ljósleiðarasamband. Þannig
skapast ójafnræði þegar íbúar í
dreifbýli eiga aðeins kost á að kaupa
fjarskiptaþjónustu í gegnum þráðlaust
3G samband, en ekki með ADSL-
fastlínutengingu eða þess öflugri
internettengingu. 3G þjónusta er
dýrari ef netið er notað mikið, þar
sem notendur þurfa að greiða bæði
fyrir innlent og erlend niðurhal, ólíkt
því sem er í ADSL þar sem aðeins er
greitt fyrir erlent niðurhal. Í hverri
áskriftarleið sem er hægt að kaupa
er innifalið ákveðið gagnamagn.
,,Verðlagningin er ólík. Þegar keypt
eru 40 GB á 12 MB/s tenging á ADSL,
sem kostar hjá Símanum 5.990 krónur
á mánuði, telur aðeins erlent niðurhal.
Á 3G greiða viðskiptavinir fyrir alla
umferð innanlands og erlendis. 30
GB kosta 5.190 krónur á mánuði. Það
er rétt að taka fram að sami verðlisti
er fyrir 3G fyrir allt landið,“ sagði
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Símans, þegar
leitað var til hennar vegna þessa. Síðan
eru enn aðrir sem aðeins eiga kost á
3GL langdrægu internetsambandi sem
sjómenn nota í kringum landið og er
mun dýrari kostur en venjulegt 3G
samband. Í tilfelli bóndans sem vitnað
var í fyrr er það tilfellið. Þá kostar
mánaðaráskrift með 30 GB niðurhali
39.980 krónur í samanburði við 5.190
krónur fyrir venjulega 3G áskrift sem
Gunnhildur tók dæmi um. Fyrir hvert
umfram MB eru greiddar 5 krónur
samkvæmt verðlista á heimasíðu
Símans. Sem betur fer eru ekki
margir staðir á landinu sem svo er
ástatt fyrir, og flestir þeirra eru staðir
sem skilgreindir voru á staðarlista
fjarskiptasjóðs ríkisins og áttu að fá
sama verð og aðrir samkvæmt reglum
sjóðsins fyrir staðlaðar áskriftarleiðir
sem þar voru skilgreindar. Ef notendur
velja hins vegar aðrar leiðir falla þær
sennilega utan samningsins.
3G sendar Símans tvíefldir í
sumar
Spurð hvort Síminn hefði ákveðið að
uppfæra 3G þjónustuna yfir í 4G sagði
Gunnhildur: ,,Síminn er að sjálfsögðu
á meðal þeirra fyrirtækja sem setja
upp 4G þjónustu hér á landi og verður
4G kerfi Símans tekið í gagnið þegar
líður á árið. Sú nýja tækni kemur ekki
í veg fyrir að Síminn efli 3G kerfið
sitt. Nú í sumar verða 3G sendar
hjá Símanum tvíefldir. Það þýðir að
þeir hröðustu munu ná 42 Mb/s og
verður hraðinn því svipaður þeim
sem lofaður er með 4G. Ástæða þess
að við hjá Símanum eflum 3G áfram
þrátt fyrir tilkomu 4G-tækninnar
er að enn sem komið er styðja fá
símtæki og tölvur 4G-tæknina. Og
okkur finnst mikilvægt að þeir sem
eiga öfluga snjallsíma í dag, eins til
dæmis Samsung Galaxy SII og eldri
týpur af SIII, sem og allar iPhone-
týpurnar utan þeirrar fimmtu, geti nýtt
þá á öflugum netum. Það á einnig við
um tölvurnar. Við setjum því trukk í
3G-þjónustuna samhliða því að byggja
upp 4G fyrir framtíðartækin. Stefna
Símans er því í hnotskurn að nota 4G
til bæta öflugt dreifikerfi Símans svo
viðskiptavinir hans séu sem víðast á
háhraðainterneti – hvort sem er heima
eða þegar þeir sitja í farþegasæti bíls
eða skella sér í bústað og vilja vafrar
um netið. Þar nýtist 4G tæknin, sem
og 3G, best.“
,,Getum ekki boðið gestum upp
á internetþjónustu”
Upplýsingatæknibásinn
Jón Baldur Lorange
sviðsstjóri tölvudeildar
Bændasamtaka Íslands
jbl@bondi.is
Frá Hólum í Hjaltadal. Þar skipta góð fjarskiptatengsl miklu máli, ekki síst
fyrir Hólaskóla, sem leggur töluverða áherslu á að bjóða nemendum upp
á fjarnám í gegnum tölvusamskipti. Mynd / HKr.
Næstu kynslóðar farnet með 10 Mb/s
fyrir 99,5% landsmanna í lok árs 2016
Um 99,5% íbúa alls landsins
munu eiga kost á 10 Mb/s gagna-
flutnings hraða eigi síðar en í lok
árs 2016 og 30 Mb/s í lok árs
2020, samkvæmt tilkynningu frá
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS)
dag settri 14. mars 2013 þar sem
kynnt var niðurstaða á uppboði
á tíðni heimildum fyrir 4G hjá
stofnuninni.
Fyrir íbúa á landsbyggðinni
eru þetta gleðilegt tíðindi ef þau
ganga eftir, enda margföldun á
gagnaflutningshraða á flestum
landsvæðum miðað við hvað býðst
í dag. Nýtt fjarskiptafyrirtæki, 365
miðlar ehf., hefur skuldbundið sig
til að byggja upp næstu kynslóðar
farnet sem á að ná til 99,5% íbúa
á hverju skilgreindu landsvæði
fyrir sig og því ljóst að hér er um
mikla áskorun að ræða fyrir hið
nýja fjarskiptafyrirtæki. Samkvæmt
skýrslu sem Mannvit gerði fyrir PFS
um að leggja mat á umfang vegna
uppboðs 4G tíðniheimilda og er
frá 29. nóvember 2012 kemur m.a.
fram:
„Að byggja nýtt 4G kerfi, á grunni
núverandi kerfa eða frá upphafi,
sem nær til allra íbúa og 80%
landsins utan jökla og hraði til allra
sé að minnsta kosti 10 Mb/s kostar
rúmlega 22-33 milljarða króna, þar
af í byggð um 9,3-19,5 milljarða
króna og utan byggða rúmlega
13,6 milljarða króna.“ (Skýrsla
Mannvits, Mat á umfangi vegna
uppboðs 4G tíðniheimilda, umfang
og kostnaðarmat, sjá heimasíðu
PFS). Í skýrslunni er greining
á kostnaði við uppbyggingu,
stækkun og uppfærslu á núverandi
eða nýjum kerfum. Að uppfæra
nýtt 4G kerfi úr 10 í 30 Mb/s með
sömu forsendum og kom frá hér að
ofan kostar til viðbótar rúmlega 4,4
milljarða króna samkvæmt skýrslu
Mannvits. Ef hins vegar verður farið
í að uppfæra núverandi 3G kerfi, en
ekki byggt upp nýtt frá grunni, er
kostnaður mun minni enda nýtist þá
innviðir sem hafa verið byggðir upp
þó að skipta þurfi út sendum. Þannig
er kostnaður við að uppfæra 3G í 4G
með sömu forsendum um útbreiðslu
með gagnaflutningshraða a.m.k.
10 Mb/s um 5,2 milljarðar króna.
Rétt er að taka fram að Mannvit
reiknar inn í þetta kostnaðarmat
stofnkostnað og rekstrarkostnað í
10 ár.
Bylting í fjölmiðlun – sjónvarpið,
síminn og internetið renna saman
Haft var samband við Ara Edwald,
forstjóra 365 miðla ehf., til að
spyrjast nánar fyrir um þetta
spennandi verkefni, sem verður
án efa mikil lyftistöng fyrir íbúa á
landsbyggðinni ef af verður. Ari var
ekki sammála þeim kostnaðartölum
sem komu fram í beinni tilvitnun í
skýrslu Mannvits hér að ofan.
„365 hefur á síðustu misserum
leitað til færustu sérfræðinga í
heiminum á sviði fjarskipta og sú
ráðgjöf gefur tilefni til bjartsýni
þegar kemur að uppbyggingu 4G
kerfisins á Íslandi. Sú niðurstaða
er lykilástæða þess að 365 miðlar
nýttu tækifærið í 4G útboðinu. Við
höfum einnig fylgst vel með þeim
fjarskiptafyrirtækjum sem fyrir eru
á íslenska markaðnum og þau hafa
talað af skynsemi þegar kemur að
uppbyggingu 4G kerfisins og hvatt til
samvinnu. Það myndi það teljast óðs
manns æði að leggja fjóra hringvegi
í kring um landið. Með sameiginlegu
átaki verður kostnaður við 4G
uppbygginguna viðráðanlegri og
þannig skapast jákvæð samlegðar-
áhrif, þjónustuaðilum og neytendum
til heilla. Samvinna fyrirtækjanna
verður því lykillinn að 4G upp-
byggingunni og 365 miðlar vilja
taka þátt í þeirri uppbyggingu,“
sagði Ari í samtali við dálkahöfund
Bændablaðsins.
Að sögn Ara hafa 365 miðlar
mikilla hagsmuna að gæta þegar
kemur að gagnaflutningi og
háhraða samböndum í framtíðinni.
Kröfur markaðarins þegar kemur að
öflugra netsambandi og almennum
fjarskiptum og aukin gæði mynd-
efnis kalla á meiri hraða og
bandvídd. Þær kröfur fara saman
við markmið 365 miðla, sem gengur
út á að bæta aðgengi viðskiptavina
að háhraðaneti, svo aukin gæði
frétta og afþreyingarefnis skili sér til
Íslendinga, hvar sem þeir eru staddir
á Íslandi. 4G mun spila lykilhlutverki
í þeirri áætlun. Fjarskiptakostnaður
365 er mikill í dag, um tæpur
milljarður á ári fyrir gagnaflutning
innan símakerfa. Sú staðreynd ein
og sér gefur einnig tilefni til aukinna
samlegðaráhrifa og möguleika á
hagræðingu með því að taka þátt
í samkeppni á fjarskiptamarkaði.
Aukin samvinna fyrirtækjanna
gefur einnig möguleika á að byggja
þannig á grunni annarra kerfa sem
búið er að byggja upp um allt land,
m.a. með stuðningi stjórnvalda
í tengslum við háhraðaverkefni
fjarskiptasjóðs ríkisins. Þá hefur
verið rætt við Mílu og Símann
um ákveðna þætti. Þá furðaði Ari
sig á þeirri miklu uppbyggingu
sem RÚV væri að ráðast í við að
dreifa sjónvarpsdagskrá sinni með
nýrri tækni. Í þessa uppbyggingu
ætti að leggja milljarða af útgjöldum
ríkisins sem aðeins nýttust í
útsendingu á sjónvarpsefni en ekki
til að byggja upp innviði fjarskipta
á landsbyggðinni, sem svo sárlega
væri kallað eftir af íbúum. Það væri
fráleitt að nýta ekki þetta fjármagn
í almannaþágu við að bæta innviði
fjarskipta á landsbyggðinni.
„Við á Stöð 2 erum að fara að
kynna seinna í maí mánuði nýjung að
horfa á sjónvarp í gegnum snjallsíma
og spjaldtölvur og þar sem hægt er að
safna upp sjónvarpsefni. Við höfum
áhuga í framþróun í þráðlausum
gagnaflutningi þar sem hægt er að
horfa á sjónvarpsefni hvar sem er og
hvenær sem er. Framtíðin í fjölmiðlun
verður á netinu. Engin landamæri eru
lengur í sjónvarpsrekstrinum”, sagði
Ari. Sagði hann að þessi uppbygging
yrði á markaðslegum forsendum.
Ekki hefur verið tekið af skarið
hjá 365 miðlum hvort uppbygging
á 4G fjarskiptanetinu hefjist á
þessu ári, sem verður eitt af stærstu
fjarskiptanetum landsins eins og
kemur fram í tilkynningu PFS. „Við
munum hefja fjarskiptaþjónustu þegar
á þessu ári í eldri gerðum nettenginga
og tengjum það við sjónvarpsþjónustu
okkar,“ sagði Ari Edwald, forstjóri
365 miðla, að lokum.
Ari Edwald
Íbúar á Hofsósi munu eins og 99,5% landsmanna væntanlega komast í 4G
samband á næstu árum. Mynd / HKr.