Bændablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 38
38 Bændablaðið | Miðvikudagur 8. maí 2013
Umræða um smitvarnir hér á landi
gengur svolítið í bylgjum eftir því
umræðu erlendis, sem og í tengslum
við sjúkdóma sem koma upp hér
landi. Skemmst er t.d. að minnast
barkabólgu og veiruskitu í kúm nú
í vetur, smitandi hósta í hrossum
og bæði garna- og riðuveikitilfella
sem koma því miður reglulega upp.
Á síðasta ári kom upp alvarleg
smitandi pest í Evrópu sem fór hratt
yfir, sk. Schmallenberg-vírus, sem olli
miklum búsifjum, en vírus þessi flyst
með flugum og því er erfitt að hefta
útbreiðsluna. Við höfum sem betur
fer sloppið enn við þetta smit en hröð
útbreiðsla Schmallenberg-smitsins
minnir á mikilvægi þess að hafa
smitvarnir í huga við nútíma búskap.
Smit með lifandi skepnum
Smit með skepnum og meindýrum
er líklega algengasta formið þegar
sjúkdómar dreifa sér. Hér á landi
þekkja trúlega allir til varnarhólfanna
og varnargirðinga svo ekki þarf að
ræða það frekar. Hins vegar er afar
brýnt að hafa hugfasta smithættuna
við lífdýraflutninga á milli búa innan
hólfanna. Auðvitað þarf að tryggja að
skepnurnar séu heilbrigðar en einnig
að flutningatækið sé hreint og sótt-
hreinsað.
Smit með dauðum skepnum
Af sjálfdauðum eða aflífuðum skepn-
um getur stafað veruleg smithætta
og slíkar skepnur ber alltaf að varð-
veita undir yfirbreiðslu eða með því
að skerma þær af þar til þær fara til
eyðingar eða urðunar.
Smit með fólk og farartækjum
Smit berst í búfé með margs konar
hætti og stundum er hreinlega alls ekki
vitað með hvaða hætti. Á bú nú til dags
koma fjölmargir aðilar í heimsókn, s.s.
dýralæknar, ráðunautar, frjótæknar,
þjónustubílstjórar, klaufskurðarfólk,
rúningsmenn og -konur auk
fjölda annarra, að ógleymdum
iðnaðarmönnum, verktökum og svo
mætti vafalítið lengi telja. Flestir,
ef ekki allir, koma á einhvers konar
farartækjum og margir nota búnað við
störf sín og alltaf er hætta á því að
smitefni geti borist með þessu fólki
eða þeim búnaði sem því fylgir enda
margt af því í þannig starfi að leiðirnar
liggja á milli búa með skömmu
millibili og hættan á því að bera smit
á milli er þar af leiðandi veruleg.
Það er sjálfsögð krafa bænda að
ætlast til þess að þessir aðilar passi
sjálfir upp á að minnka líkur á því
að smit berist á milli búa og má
nefna hér sem dæmi að í Danmörku
gera vinnuveitendur ráðunauta þá
kröfu að vinnufatnaður skuli vera
tandurhreinn við komu á bú, ella
skuli viðkomandi klæðast nýjum
vinnufatnaði. Enn fremur að stígvél
þeirra séu sótthreinsuð við komu á bú,
sem og við brottför. Ef einhver heldur
að þetta sé mikil vinna veit ég það af
eigin reynslu að svo er ekki. Vinnan
við sótthreinsun og þrif tekur innan
við tvær mínútur við hverja heimsókn.
Smit innan bús
Eftir að bakteríur eða vírusar hafa
stungið sér niður innan bús er ekki
sjálfgefið að það leiði til þess að allir
gripir veikist. Dæmi um þetta er t.d.
júgurbólgubakterían Staf. aureus, en
þar sem hún veldur usla geta bændur
sjálfir gert ýmislegt til þess að draga
úr frekari smitun innan bús síns, s.s.
með breyttum vinnubrögðum. Þannig
er þetta á hverju búi og óháð búgrein
að hægt er að takast á við vandamálin
á staðnum. Almennt er óhætt að mæla
með því að á hverju búi ætti að vera
til aðgerðaráætlun um það hvernig
eigi að bregðast við ef upp kemur
smitandi sjúkdómur og ekki síður
hvernig eigi að tryggja sem best að
smitandi sjúkdómur komi ekki upp.
Því betur ígrunduð sem svona áætlun
er, s.s. varðandi dagleg vinnubrögð og
þrif, þeim mun meiri líkur eru á því
að viðkomandi smit nái ekki verulegri
útbreiðslu innan búsins.
Smit með gestum
Þegar erlenda gesti ber að þarf að
sjálfsögðu að gæta sérstaklega vel að
smitvörnum vegna hættu á smiti með
ferðafólkinu. Auk framangreindra
atriða varðandi klæðnað er óhætt
að mæla með því að gera kröfu
um að viðkomandi hafi ekki verið
í námunda við skepnur erlendis
síðustu 48 klukkustundirnar. Yfirleitt
er talin lítil hætta á að smit berist með
almennum gestum sem hafa lítið sem
ekkert með landbúnað að gera. Notkun
á einnota hlífðarfatnaði er þó ætíð góð
vinnuregla.
Smit vegna ferða og ferðalaga
Á síðari árum hafa reglulega verið
farnar skipulagðar fagferðir bænda
til útlanda og í slíkum ferðum
er undantekningarlítið farið í
heimsóknir til bænda og oft einnig
á landbúnaðarsýningar þar sem
búfé er sýnt. Í ferðum sem þessum,
eða öðrum slíkum þar sem búfé er
skoðað, er afar mikilvægt að passa
upp á smitvarnirnar, s.s. að snerta ekki
skepnur eða fóður að óþörfu, setja föt
og skó í hreinsun við heimkomu og
sótthreinsa annað það sem kann að
hafa komist í snertingu við hugsanlegt
smitefni.
Góð aðstaða skiptir sköpum
Því betri aðstöðu fyrir aðkomufólk
sem bú bjóða upp á í dag, þeim mun
meiri líkur eru á því að bú geti forðast
smit utan frá. Í nýjum búfjárhúsum
er t.d. alltaf mælt með sér inngangi
fyrir þjónustuaðila, þ.e. inngangi
sem bóndinn sjálfur og starfsfólk
hans nota ekki. Þetta er gert til þess
að draga úr líkum á því að þverun
verði á smitleiðum. Við slíka inn-
ganga á að staðsetja handlaug, vera
með góðan möguleika á skóþvotti og
svo að hafa þar hrein stígvél og galla
fyrir viðkomandi. Hægt er að nálgast
fínar hönnunarleiðbeiningar um svona
inngöngurými víða.
Aðkoma þjónustubíla
Margs konar farartæki koma á búin,
s.s. mjólkurbílar, fóðurbílar, bílar
og kerrur sem flytja klaufskurðar-
bása og sláturbílar, svo eitthvað sé
nefnt. Þessi farartæki bera með sér
töluverða smithættu og því er brýnt
að huga að aðkomuleiðum þessara
farartækja. Einfaldast er að vera með
auðþrífanlegt plan þar sem þessi
farartæki koma og góðan búnað til
þrifa. Auk þess eru yfirleitt (erlendis)
gerðar sérstakar kröfur til bílstjóra á
sláturbílum, en þeir eiga helst ekki að
fara inn í búfjárhús og þurfa umfram
aðra að viðhafa sérstaka smitgát. Best
er að hafa sérstaka aðstöðu til þess
að afhenda gripi á gripaflutningabíl,
s.s. stíur eða sérstaka bása, svo að
gripaflutningabílstjóri þurfi ekki inn
í viðkomandi búfjárbyggingu.
Bóndinn ber ábyrgðina
Hvernig sem á það er litið ber bónd-
inn ábyrgðina á sínu búfé og hefur
fullan rétt á því að setja skýrar reglur
varðandi umgengni við búfé sitt og á
sínu búi. Hér er vissulega mikilvægt
að bóndinn sýni sjálfur gott frum-
kvæði og viðhafi t.d. ítrasta hreinlæti
við störf sín, s.s. á sauðburði og við
daglegar mjaltir.
Því miður er það reynslan erlendis
að margir bændur veigra sér við að
setja skýrar umgengnisreglur, finnst
það jafnvel óþægilegt, og sumir líta
á það sem hálfgerðan dónaskap að
t.d. skikka dýralækna, frjótækna og
ráðunauta í stígvél og samfestinga
búsins. Þessar áhyggjur eru alls
óþarfar og í raun líta væntanlega
allir þjónustuaðilar bænda á það sem
afar góðan kost að hafa aðgengileg
hrein stígvél og galla við komu á bú.
Heppilegast er í því sambandi að eiga
til sér vinnufatnað fyrir þá sem oftast
koma í heimsókn og svo 1-2 auka sett
fyrir aðra þá sem koma sjaldnar.
Snorri Sigurðsson
sns@vfl.dk
Nautgriparæktardeild
Þekkingarsetri landbúnaðarins í
Danmörku
Utan úr heimi
Smitvarnir skipta máli
Christine Tacon, starfsmaður
samtakanna The Co-operative
Group, hefur verið skipuð
fyrsti umboðs maður matvæla-
framleiðenda gagn vart verslana-
keðjum í Bretlandi. Verkefni
hennar er að gæta þess að
verslanakeðjurnar sýni sanngirni
í viðskiptum við matvæla-
framleiðendur.
Breska þingið mun á næstunni
ljúka afgreiðslu á nýjum lögum um
stöðu umboðsmannsins, en þar sem
litið er á þá afgreiðslu sem formsatriði
ákvað ríkisstjórnin að ráða þegar í
stöðuna til þess að viðkomandi
gæti strax hafið skipulagningu og
uppbyggingu á verkefninu. Fyrir
valinu varð Christina Tacon, en hún
hefur undanfarin ellefu ár fjallað um
matvælaviðskipti á vegum Samtaka
samvinnuverslana (kaupfélaga)
í Bretlandi. Hún er þekkt meðal
stjórnenda fyrirtækja í Bretlandi
sem reka matvælaverslanir á
samvinnugrundvelli.
Auk þess að byggja upp starfsemi
nýja fyrirtækisins mun hún fjalla
um kvartanir frá matvælabirgjum og
miðla málum þar sem ágreiningur
er á ferðinni milli framleiðenda
og tíu stærstu matvælakeðja í
Bretlandi. Fyrirtæki sem koma fram
af ósanngirni við birgja fá áminningu
og nöfn þeirra verða birt í fjölmiðlum,
auk þess sem umboðsmaðurinn hefur
vald til þess að sekta þau. Samtök
breskra bænda, National Farmers
Union, styðja þessar aðgerðir, en nýja
kerfið styrkir rekstur afurðastöðva
bænda.
Í Brussel er fylgst grannt með þessu
framtaki breskra bænda, en Embættis-
manna ráð ESB, „Kommissjónin“,
fjallar nú um að stofna sitt eigið
embætti umboðsmanns til að veita
keðjum matvæla verslana í löndum
sambandsins aðhald.
Bretar ráða umboðsmann matvælaframleiðenda:
Kallað á sanngirni verslanakeðja
gagnvart framleiðendum
Christine Tacon
Evrópusambandið býr við
kreppuástand. Stjórnkerfi þess
veldur ekki hlutverki sínu. Um
60% af ungu kynslóðinni, 25 ára
og yngri, í Suður-Evrópu eru
atvinnulaus og 24% í Svíþjóð. Stór
svæði í Evrópu eru að missa frá sér
verulegan hluta af heilli kynslóð
fólks, að því er Amund Venger
skrifar í Nationen 4. apríl.
„Í stað þess að bregðast við því
með gagnráðstöfunum beita ESB og
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn aðferðum
fjármagnsins til að flæma fólk burt.
Draumur ráðamanna er fjórfrelsi
ESB, en í því felast frjálsir flutningar
á vörum, fjármagni, vinnuafli og
þjónustustarfsemi sem hefur þjappað
saman valdi í viðkomandi löndum og
orðið á kostnað sjálfbærrar sóknar
samfélagsins til efnalegra framfara.
Miðflokkurinn í Noregi styður
ekki áðurnefnt fjórfrelsi Rómar-
sáttmálans né stefnu ESB í málefnum
landbúnaðar, sjávarútvegs og
dreifbýlis, þar sem opinberum
styrkjum og einkaleyfum er úthýst.
Reglur ESB um samkeppni koma í
veg fyrir aðkomu ríkisvaldsins að
þessum málum, sem hefur verið
forsenda þess að viðhalda dreifbýli
í Noregi og styrkja það samfélag
jafnréttis og velferðar þar sem við
erum stolt af.
Miðflokkurinn hefur átt í víðtæku
samstarfi við önnur hagsmunasamtök
á sama sviði í Noregi, þvert á allar
spár, og átt sinn þátt í því að koma
í tvennum þjóðaratkvæðagreiðslum
í veg fyrir inngöngu Noregs í ESB.
Flokkurinn getur verið hreykinn af
þessum árangri sínum og glaðst yfir
því að viðhorfskannanir sýna að
70-80% þjóðarinnar eru nú andvíg
aðild að ESB.
Noregi var ekki úthýst úr ESB árið
1972, eins og Verkamannaflokkurinn
og Hægriflokkurinn spáðu. Í
samskiptum Noregs og ESB bíða
heldur ekki nein óleyst úrlausnarefni.
Báðir aðilar, ESB og Noregur, hafa
hag af traustu og góðu samstarfi.
Öflug stjórn á náttúru auðlindum
er afar mikilvæg fyrir lítið og
dreifbýlt land eins og Noreg. Sigur
andstæðinga aðildar að ESB árið
1972 hefur eftir það tryggt yfirráðarétt
og uppbyggingu atvinnulífs og
efnahagsmála í Noregi. Þar ber ekki
síst að hafa í huga uppbyggingu á
olíu- og gasvinnslu í Noregi, með
öllum þeim iðnaði, þekkingaröflun
og fjölþættu verkefnum sem fylgt
hafa í kjölfar þess. Sú þróun hefði
verið óhugsandi ef Noregur hefði
gengið í ESB árið 1972.
Statoil, sem er í eigu norska
ríkisins, hefur verið máttarstólpinn
í þeirri uppbyggingu. Nærtækt
hefði verið að fela Englandi að sjá
um þessa þjónustu, þar sem mest
fjármagn og víðtækust þekking
á rekstri sem þessum var þar að
finna. Norska þjóðin gerði sér hins
vegar grein fyrir því að uppbygging
norsks samfélags var mikilvægari en
stundargróði. Þess vegna var þessi
þjónusta frá upphafi byggð upp í
Stavanger.
Hin mikilvæga þátttaka Noregs
í þróun hafréttarmála, sem fram fór
á vegum Sameinuðu þjóðanna á 8.
áratugi síðustu aldar, hefði verið
óhugsandi ef Noregur hefði þá átt
aðild að ESB.
Verkalýðshreyfingin í Noregi
hafði þá í þjónustu sinni starfsmenn
sem áttuðu sig á því að fjórfrelsi
Rómarsáttmálans mundi auka
vald fjármagnsins en draga úr
réttindum og samstöðu almennings
í landinu. Einnig hefði sáttmálinn
skert verulega möguleika Noregs á
að fylgja fram sinni eigin stefnu í
málefnum norsks dreifbýlis.
Olíugróði Noregs hefur dregið úr
samkeppnisstöðu þjóðarinnar í öðrum
atvinnugreinum. Það gildir jafnt um
landbúnað, ferðaþjónustu, fiskveiðar
og fiskvinnslu og margvíslegan
iðnað. Framtíð þessara greina
ræðst af samningum við yfirstjórn
Evrópska efnahagssvæðisins.
Matvælaframleiðsla og matvæla-
öryggi í Noregi hefur dregist saman
vegna samningsins. Landsþing
Miðflokksins verður því að koma
af stað almennum umræðum um
stefnumörkun í þjóðarinnar í þeim
málaflokki.“
Norðmenn telja ESB ekki valda hlutverki sínu:
Um 60% ungu kynslóðarinnar
í Suður-Evrópu atvinnulaus
Góð aðstaða fyrir þjónustuaðila búa dregur verulega úr líkum á því að smit berist inn á bú.
Hér má sjá einfaldan búnað sem er
staðsettur við fóðurganga og liggur
slangan og smúllinn ofan í rörinu og
því hægt að grípa til þessa hvenær
sem er án þess að eiga á hættu að
sundur!