Bændablaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 1
16. tölublað 2013 Fimmtudagur 22. ágúst Blað nr. 401 19. árg. Upplag 31.000
Hindberjatíðin
gengur í garð
Nokkrir bændur hafa reynt fyrir
sér í hindberjarækt undanfarin ár.
Ingólfur Guðnason og Sigrún Elfa
Reynisdóttir garðyrkjubændur á
Engi tóku þátt í samnorrænu til-
raunaverkefni, Atlantberry, sem
fólst í að koma upp hindberja-
trjám í plastskýlum. Á þessu ári
lýkur verkefninu en rannsókna-
þættirnir gengu m.a. út á það að
draga sem mest úr áhættu á veður-
skaða og hámarka uppskeru og
gæði berjanna. Að sögn Sigrúnar
og Ingólfs hefur gengið á ýmsu í
ræktuninni síðustu þrjú árin, m.a.
hafi verið erfitt að verja plast-
skýlið í verstu óveðrunum og ýmsu
við ræktunina þurfi Íslendingar
að ná betri tökum á. Þau segja þó
bæði að hindberjaræktun geti átt
framtíðina fyrir sér því næg er
eftirspurnin á markaðnum.
Nánar er rætt við bændurna á
Engi um starfsemina á býlinu og
samskipti þeirra við veitingamenn
á bls. 20.
Að minnsta kosti 90 lögbýli voru
í eigu fjármálastofnana um síð-
ustu áramót, skv. Lögbýlaskrá
2012. Það eru um 1,4 prósent
allra lögbýla á landinu en þau
voru á sama tíma 6.447 talsins.
Umrædd lögbýli eða jarðir voru
ýmist í eigu fjármálastofnan-
anna sjálfra eða dótturfélaga
þeirra. Samkvæmt upplýsingum
sem Bændablaðið hefur fengið
frá umræddum fjármálastofn-
unum hefur jörðum í þeirra
eigu fækkað það sem af er ári, í
flestum tilfellum. Þó er það ekki
algilt. Flest þessara lögbýla eiga
fjármálastofnanirnar að fullu en
í fáum tilvikum eiga þau jarð-
irnar að hluta á móti öðrum
eigendum.
Landsbankinn stærstur
Landsbankinn og dótturfélög hans
áttu langflestar þessara jarða eða
48 lögbýli. Þar af átti félagið
Lífsval 33 lögbýli. Dótturfélag
Landsbankans, Hömlur, á tæp
90 prósent í Lífsvali eftir að
hafa tekið yfir hluti í félaginu á
síðasta ári. Landsbankinn sjálfur
átti 9 lögbýli og Hömlur 1 áttu 6.
Allar þessar eignir hafa komist í
hendur bankans eða félaga hans
vegna skuldaskila.
16 jarðir Lífsvals seldar
Lífsval á í dag 25 jarðir að því er
kemur fram í upplýsingum sem
Bændablaðið óskaði eftir. Meðal
þeirra jarða eru Flatey á Mýrum,
eitt stærsta kúabú landsins og
Miðdalur í Skagafirði sem er stórt
og gróið sauðfjárbú. Í maí 2012
hófst söluferli á jörðum félagsins
og voru þá 19 jarðir auglýstar til
sölu. Ákveðið var að setja jarðir í
sölu í áföngum til að koma í veg
fyrir offramboð á jörðum með
mögulegri verðlækkun. Allar jarðir
félagsins eru hins vegar komnar á
sölu nú. Á síðustu 15 mánuðum
hafa 16 jarðir félagsins verið seldar.
Eftir því sem kemur fram í upp-
lýsingum frá Lífsvali eru viðræður
í gangi um sölu á nokkrum jörðum
eins og sakir standa.
Deilur við ábúendur hefta sölu
Frá áramótum hefur ein jörð í
eigu Hamla 1 verið seld en að
sama skapi hefur ein jörð bæst í
eignasafnið. Af þeim sex jörðum
sem félagið á eru þrjár í söluferli
og eru þær allar í útleigu til næsta
hausts. Hinar þrjár jarðirnar eru
ekki komnar í hendur félagsins en
deilur standa við ábúendur þeirra
jarða.
Landsbankinn sjálfur hefur frá
áramótum selt fimm jarðir og fyrir
liggur undirritaður kaupsamningur
vegna einnar til viðbótar sem eftir
á að staðfesta. Bankinn hefur hins
vegar eignast tvær jarðir á þessu
ári og helmingshlut í þeirri þriðju.
Af þessum sex jörðum sem bank-
inn á eru fjórar í sölumeðferð.
Jörðum í eigu Arion banka
fjölgar
Arion banki átti um áramót 20
lögbýli. Þeim hefur fjölgað það
sem af er ári og á bankinn nú 28
jarðir eða jarðaparta. Ekki fengust
nákvæmar upplýsingar frá bank-
anum um hvernig þróun eignar-
halds hans á jörðum hefur verið
á árinu og því ekki ljóst hvort
eitthvað af jörðum bankans hafi
selst á árinu. Þrjár þessara jarða
eru í útleigu og á fæstum hinna er
stundaður hefðbundinn búskapur.
Allir jarðir sem bankinn eignast eru
settar í söluferli enda ekki stefna
hans að eiga lögbýli. Í einhverjum
tilvikum sitja fyrri eigendur enn á
jörðunum.
Engar jarðir bæst við hjá
Íslandsbanka
Íslandsbanki átti um áramót sjö lög-
býli og tvö til viðbótar voru skráð á
fjármögnunarþjónustu bankans þar
eð þær eru á eignaleigusamningi. Ein
jörð hefur verið seld það sem af er ári
og bankinn hefur ekki eignast fleiri
jarðir á árinu. Hinar sex jarðirnar
eru til sölu og hafa verið auglýstar
hjá fasteignasölum. Í einu tilfelli er
jörð í útleigu.
Íbúðalánasjóður átti um áramót
tvær jarðir og hefur sjóðurinn
selt aðra þeirra en hin er til sölu.
Óalgengt er að sjóðurinn eignist
bújarðir en fleiri dæmi eru um að
hús sem byggð hafa verið á lóðum
sem teknar hafa verið út úr jörðum
lendi í höndum sjóðsins.
Tvö lögbýli voru í eigu
Landsbyggðar ehf. sem er félag í
eigu Gamla Landsbankans. Ekki
fengust upplýsingar um hvort þær
jarðir væru ennþá í eigu þrotabús-
ins. Þá á Kaupfélag Skagfirðinga
(KS) eða dótturfélag þess, sem hér
er flokkað með fjármálastofnunum
vegna þess að félagið rekur inn-
lánadeild, tíu lögbýli að hluta eða
í heild. Fjórar þessara jarða á KS
að hluta á móti öðrum aðilum sem
reka þar búskap og ein til viðbótar
er í útleigu. /fr
Nokkur fjöldi lögbýla hefur verið seldur það sem af er ári:
Tugir jarða í eigu fjármálastofnana
Samkvæmt lögbýlaskrá eru 1,4% lögbýla á Íslandi í eigu fjármálafyrirtækja.
Mynd / TB
7
Svipmyndir
frá Berlín
14
Einhleypur bóndi fyrir austan? Flatkökurnar hennar ömmu Ragnheiðar
34
Ingólfur Guðnason bóndi, Sig-
urður Helgason matreiðslumeis-
tari á Grillinu og Sigrún Elfa
Reynisdóttir bóndi inni í hind-
berjaskýlinu á Engi. Mynd / TB