Bændablaðið - 22.08.2013, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. ágúst 201310
Fréttir
Norðurlandameistaramót í eldsmíði
var haldið á Safnasvæðinu á
Akranesi um síðustu helgi. Að
sögn heimamannsins Guðmundar
Sigurðssonar, formanns norrænna
eldsmiða, þá tókst mótshaldið vel.
Um hundrað smiðir mættu á svæðið
og um þrjú þúsund til að fylgjast
með.
Íslendingar báru sigur úr býtum í
keppni þriggja manna liða sem gekk
út á að lengja tein sem mest. Therese
Engdal frá Svíþjóð varði titil sinn í
meistaraflokki eldsmiða en Gunnar
Gunnarsson varð í þriðja sæti í
þeim flokki. Af öðrum úrslitum
má nefna að Einar Sigurðsson
varð annar í opnum flokki og Óskar
Páll Hilmarsson varð í þriðja sæti í
flokki útskrifaðra eldsmiða. Dæmt
var bæði eftir smíðatækni og hins
vegar eftir listfengi.
Auk keppnishalds voru ýmsar
uppákomur, s.s. opnar vinnustofur,
fyrirlestrar og sýnikennsla og
kvöldvaka.
/smh
Norðurlandameistaramót eldsmiða á Akranesi
Íslendingar náðu einum titli
Nýr heildsali með rúlluplast
Nýr heildsali hefur bæst í hóp
þeirra sem selja rúlluplast á
Íslandi. Það er fyrirtækið Sóldögg
ehf. sem um ræðir og selur ein-
göngu í heildsölu og að lágmarki
eitt bretti með 40 rúllum, að því
er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Sóldögg ehf. hefur flutt inn
TotalCover rúllunet frá Karatzis á
Krít og í sumar tryggði það sér svo
umboð fyrir Bal‘ensil, 5 laga rúllu-
plast frá franska framleiðandanum
Barbier Group. Franska rúlluplastið
er Íslenskum bændum kunnugt frá
fyrri árum en það hefur ekki verið í
boði á Íslandi síðustu ár.
Í tilkynningunni kemur fram að
Sóldögg hafi haft að leiðarljósi að
bjóða upp á hágæða vöru á lægsta
mögulega verði og til þess haldið
rekstarkostnaði og yfirbyggingu í
lágmarki. Sóldögg hefur samið við
Flytjanda um sérkjör á flutningi á
neti og plasti og afhendast vörurnar
á næstu flutningamiðstöð við við-
takanda.
Sveitasælan á Sauðárkróki um helgina
Árlegt mót hagyrðinga
Bragaþing haldið á
Borgarfirði í ágústlok
Árlegt mót hagyrðinga verður
haldið í Fjarðarborg á Borgarfirði
eystra laugardagskvöldið 31.
ágúst. Samkomur sem þessar hafa
verið árlegar síðasta aldarfjórðung
og til skiptis í landshlutunum.
Nú er ár Austfirðinga og Þorsteinn
á Unaósi leiðir undirbúninginn.
Liðsmenn stökunnar og hagyrðingar
eru hvattir til þátttöku sem getur hafist
með því að hringja í Fjarðarborg
472-9920 og panta sæti í veislunni.
Aðgangseyrir er 6.500 krónur. Góð
tilboð bjóðast hjá ferðaþjónustunni
Álfheimum/Arngrími Viðari s. 861-
3677 og Helga í Blábjörgum s. 861-
1792.
Fyrir fimm árum var mótið
haldið á Smyrlabjörgum og 20 ár eru
síðan austfirska mótið fyrsta var á
Hallormsstað með Helga Seljan og
Hákon Aðalsteinsson í heiðurssætum.
Benedikt Sigurðsson ráðinn aðstoðarmaður
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Bragaþing númer tvö var haldið á Hveravöllum árið 1990. Þarna eru
Selfosshjónin Lára og Birgir fremst á myndinni, en aftar sitja skáldin Rúnar
Kristjánsson á Skagaströnd og Jói í Stapa. Mynd / Gils Einarsson
Benedikt Sigurðsson var á dög-
unum ráðinn aðstoðarmaður
Sigurðar Inga Jóhannssonar,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra. Benedikt hefur starfað sem
sviðsstjóri ytri og innri samskipta
Actavis á Íslandi undanfarin ár
og sat einnig í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins.
Hann var áður aðstoðarmaður
formanns Framsóknarflokksins,
Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,
fjölmiðla fulltrúi
K a u p þ i n g s
banka, en lengst
af starfaði hann
sem fréttamað-
ur á fréttastofu
Sjónvarpsins.
Benedikt hefur
bakkalárgráðu
í sagnfræði
frá Háskóla
Íslands.
Mynd / smh
Hin árlega Ólafsdalshátíð var
haldin helgina 10.-11. ágúst sl. Í
Ólafsdal við Gilsfjörð var fyrsti
búnaðarskóli Íslands stofnaður
af Torfa Bjarnasyni árið 1880.
Ólafsdalsfélagið stendur að
hátíðinni og segir Rögnvaldur
Guðmundsson, formaður félagsins,
að vel hafi tekist til og um 400 gestir
hafi mætt í dalinn.
Hin eiginlega Ólafsdalshátíð var
haldin sunnudaginn 11. ágúst en
undanfari hátíðarinnar fór fram á
laugardeginum með gönguferð um
Ólafsdal og námskeiði í ullar- og
tóvinnslu, ætluðu börnum.
Fjölbreytt sýningarhald
Fjölbreytt dagskrá var á sunnudeg-
inum. Ólafsdalsmarkaður var haldinn
að venju sem og sýningar, en græn-
metisframleiðslan í dalnum hefur nú
fengið lífræna vottun. Á markaðnum
var auk grænmetisins boðið upp á
osta, Erpsstaðaís, krækling og ber.
Auk þessa voru fjölbreyttar hand-
verksvörur á boðstólum. Sýningar
voru í skólahúsinu; á fyrstu hæð
er fastasýningin Ólafsdalsskólinn
1880-1907 og á annarri hæð var
sýningin Guðlaug og konurnar í
Ólafsdal, sem er ný sýning styrkt
af Menningarráði Vesturlands. Á
þeirri hæð var einnig kynning á mat
og matarhefðum við Breiðafjörð
og á Ströndum í samvinnu við
Þjóðfræðisetrið á Hólmavík.
Hátíðardagskrá var svo frá
klukkan 13 þar sem ýmis erindi voru
flutt og tónlist leikin. Dagskrá lauk
með erindi Bjarna Guðmundssonar,
prófessors á Hvanneyri, undir heit-
inu Torfi, verkfærin og vinnuhest-
arnir.
Ólafsdalfélagið var stofnað árið
2007 og eru félagar nú um 300
talsins og fer stöðugt fjölgandi.
Markmið félagsins er að hefja
Ólafsdal til vegs og virðingar á
ný og nú sem frumkvöðlasetur á
21. öld. Í Ólafsdal eru afar merkar
jarðræktarminjar, s.s. beðasléttur,
vatnsmiðlun, hlaðnir garðar og
fjöldi annarra minja frá tímum
Ólafsdalsskólans, s.s. minjar um
smiðju Torfa, tóvinnuhús, hlaðið
vatnshús og fjós o.fl.
Skemmtilegar gönguleiðir eru út
frá Ólafsdal, s.s. yfir í Bitrufjörð,
Kleifa í Gilsfirði, Saurbæjarsveit
og víðar. /smh
Ólafsdalsgrænmetið lífrænt vottað
Rannveig Guðleifsdóttir frá vottunarstofunni Túni afhendir Rögnvaldi
Guðmundssyni staðfestingu á að grænmetisræktun í Ólafsdal sé lífrænt
vottuð.
Benedikt
Sigurðsson.
Sveitasæla – Landbúnaðarsýning
og bændahátíð verður haldin á
laugardaginn kemur í reiðhöll-
inni Svaðastöðum á Sauðárkróki.
Að sögn Öldu Laufeyjar
Haraldsdóttur framkvæmdastjóra
sýningarinnar verður þar að venju
margt um að vera en allt stefnir í
að hátíðin verði sú stærsta til þessa.
Á meðal þess sem sjá má eru
vélar frá ýmsum vélasölum, hús-
dýragarður, sveitamarkaður og
handverk. Sýningin stendur frá
10:00 til 18:00 en um kvöldið fer
fram kvöldvaka með skemmtiatrið-
um og grilli. Ókeypis er á sýninguna
og allir velkomnir. Staðið við strokkinn á Sveitasælu.
Nú liggja fyrir verðskrár allra
afurðastöðvanna fyrir kom-
andi sauðfjársláturtíð, eftir að
Fjallalamb á Kópaskeri birti
verðskrá í síðustu viku.
Landssamtök sauðfjárbænda
hafa reiknað út meðalverð einstakra
afurðastöðva miðað við þær upp-
lýsingar sem liggja fyrir auk þess
að bera saman landsmeðaltal milli
ára. Niðurstaða þeirra útreikninga
er að lambakjöt hækkar um u.þ.b.
37 krónur á kíló milli ára, sé tekið
tillit til uppbótargreiðslna fyrir árið
í fyrra, sem greiddar voru fyrr á
þessu ári.
Sumarslátrun hófst hjá sláturhúsi
KVH á Hvammstanga 12. ágúst síð-
astliðinn og var þá tæplega þúsund
lömbum slátrað. Meðalvigtin var
14,3 kg. Annar sláturdagur í ágúst
var síðasta mánudag og var þá um
760 lömbum slátrað. Meðalvigt
þann dag var 16,3 kg sem telst mjög
gott. Magnús Freyr Jónsson slátur-
hússtjóri segir að einnig sé stefnt að
því að slátra á mánudaginn kemur.
Þá verður slátrað hjá SS á Selfossi
og hjá Norðlenska, bæði á Höfn og
Húsavík, fyrir mánaðamót. Slátrun
hefst almennt í annarri viku septem-
ber eða svo. /fr
Lambakjöt hækkar um 37 krónur á kíló