Bændablaðið - 22.08.2013, Síða 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 22. ágúst 2013
Skógræktarfélag Suður-Þingeyinga 70 ára
Vegleg afmælishátíð í Fossselsskógi
Skógræktarfélag Suður- Þingeyinga
varð 70 ára fyrr á árinu, það
var stofnað 19. apríl 1943 en
tímamótanna var minnst með
veglegri afmælishátíð í Fosssels-
skógi fyrr í sumar. For maður
félagsins, Agnes Þórunn Guðbergs-
dóttir, setti samkomuna, Sigurður
Skúlason skógarvörður flutti
ávarp og Indriði Ketilsson fór yfir
sögu félagsins. Þá var boðið upp
á skógargöngur, mislangar eftir
merktum göngustígum, farið í
leiki með börnunum og loks var
boðið upp á ketilkaffi og veglega
afmælistertu.
Agnes Þórunn Guðbergsdóttir
formaður segir félagið hafa umsjón
með tveimur svæðum, annars vegar
Fossselsskógi sem sé sannkölluð
útivistarparadís og liggur vestan
megin í Fljótsheiði við Skjálfandafljót
og hins vegar Hjallaheiði sem er
í landi Hjalla í Reykjadal. Aðilar
að félaginu eru einstaklingar og
starfandi skógræktarfélög sem eru
Skógræktarfélag Reykhverfinga,
Svalbarðsstrandar, Fnjóskdæla,
Reykdæla og Húsavíkur.
Upplýsingaskilti sett upp í
Fossselsskógi
Hún segir að á liðnum vetri hafi
félagið látið vinna tvö skilti, annað
með upplýsingum um eyðibýlið
Fosssel og hefur því verið komið
fyrir við veginn framan við það og
hitt með yfirlitsmynd af Fosssels-
skógi sem sett hefur verið við
inngang skógarins. Þá hefur verið
sett upplýsingamappa í Geirasel um
ýmislegt er viðkemur eyðibýlinu
Fossseli og Fossselsskógi.
Markvisst hefur verið unnið að því
að gera skóginn aðgengilegan sem
útivistarsvæði fyrir almenning og var
opinn dagur í skóginum í fyrrasumar
sem tókst mjög vel, en hann var liður
í því að kynna skóginn og það sem
hann hefur upp á að bjóða.
Agnes segir að í fyrrasumar hafi
verið lokið við lagningu göngustíga
í skóginum og við þá plantað rifs- og
sólberjarunnum. Einnig var grisjað
við lindifurureit sunnan megin við
Geirasel þar sem áður stóð gamall
skúr. Áður hafði vegur að Geiraseli
verið gerður fólksbílafær þannig
að hægt er að aka alla leið heim
að húsi og einnig áfram niður að
Kvennabrekku.
Þá var áfram plantað í skóginn
á Hjallaheiði og einnig gert
eldvarnarkort af skógræktarsvæðinu
þar.
Í Fossselsskógi er Kvennabrekka,
fallegur lerkiskógur sem konur
úr ýmsum kvenfélögum innan
Kvenfélagasambands Suður-
Þingeyinga höfðu forgöngu um
að koma upp, en þær komu saman
í tilefni af því að kvennaáratugi
Sameinuðu þjóðanna lauk sumarið
1985 og 70 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna og gróðursettu tré sem
svaraði einni plöntu fyrir hverja
þingeyska konu, alls um 2.000 trjám.
Í fyrrasumar gáfu kvenfélög innan
Kvenfélagasambands sýslunnar
félaginu nýtt áningarborð, það var
smíðað hjá Skógræktinni á Vöglum í
Vaglaskógi og er til afnota fyrir gesti
í Fossselsskógi. Áningarborðið er
staðsett við gömlu beitarhúsin sunnan
við Kvennabrekku.
Dagur Jóhannesson, gjaldkeri
Skógræktarfélags Þingeyinga,
hannaði nýtt merki fyrir félagið, byggt
Bændur á Vaði 2, Elín Steingrímsdóttir og Vésteinn Garðarsson, voru á
Athöfnin fór fram við Geirasel, sem nefnt er eftir Friðgeir Jónssyni, skógar-
bónda sem fæddist í Ystafelli í Kinn í Suður-Þingeyjarsýslu og bjó þar lengi
Ungir sem aldnir nutu veðurblíðunnar
HUGSAÐU MÁLIÐ TIL ENDA
ÞÚ FÆRÐ MIKIL GÆÐI Á SANNGJÖRNU VERÐI!
ÞÉTTAR SPYRNUR – MINNI TITRINGUR
DEKK SEM STANDAST VEL MÁL
GÓÐ ENDING - FRÁBÆRT VERÐ
TRAKTORSDEKK
VINNUVÉLADEKK
VAGNADEKK
GRÖFUDEKK O.FL.
568 2035
482 2722
– SÖLUAÐILAR Á LANDSBYGGÐINNI –
Hér er á ferðinni einhver besta
varmadæla sem komið hefur fyrir
allt venjulegt húsnæði.
Þessi verðlaunaða varmadæla hitar t.d.
ofnakerfi, gólfhita og neysluvatn.
Getur notað vatn, jörð og sjó til
orkuöflunar.
Allur búnaður innandyra.
NIBE F1245 eyðir litlu og sparar mikið.
NIBE frá Svíþjóð.
Stærstir í Evrópu í 60 ár.
W
NIBE™
F1245 |
Jarðvarmadæla
Ný kynslóð af varmadælum
Nýtt
Með NIBE F1245 getur þú lækkað húshitunarkostnað um allt að 85%
Er rafmagnsreikningurinn of hár?
Er þá ekki kominn tími til að við tölum saman?
FFriorka www.friorka.is 571 4774
NIBE™ F1245 Jarðvarmadæla
NIBE F1245-10kW COP 5.15