Bændablaðið - 22.08.2013, Side 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 22. ágúst 2013
Húsflugan
Stóra húsfluga (Musca domestica)
er hvimleiður gestur í híbýlum
manna. Í gripahúsum getur
húsflugan orðið að mikilli óværu,
borið smit, truflað dýrin og
óhreinkað umhverfið. Húsflugan
sækir sérstaklega í augu gripanna,
í opin sár og á spena. Rannsóknir
sýna að kýr mjólka meira og
gripir vaxa hraðar í húsum þar
sem flugum er haldið í skefjum.
Sömuleiðis getur flugnaplága haft
áhrif á mjólkurgæði.
Lífshættir fullorðinna húsflugna
Fullorðnar flugur eru aðallega á ferð
á daginn en þá matast þær og æxlast.
Á nóttunni hvílast flugurnar, þó laðast
þær að lýsingu.
Fullorðnu flugurnar sækja í sykur
og ýmiss konar fljótandi fæðu.
Flugurnar geta borið með sér óþrifnað
og sýkla, t.d salmonellu.
Við verðum lítið vör við flugurnar
frá nóvember og fram í mars.
Húsflugur geta lifað af veturinn
sem lirfur bæði innandyra og í
útihúsum. Þegar kólnar á haustin og
rakastigið hækkar í gripahúsunum
kemur iðulega upp myglusjúkdómur
í flugunum og þær drepast. Þá er oft
hægt að sjá dauðar flugur sem hafa
sogið sig fastar með sogrananum
sitjandi á veggjum og stoðum með
lappirnar út til hliðanna.
Hvernig er hægt að halda
flugunum í skefjum?
Nauðsynlegt er að þekkja lífsferil
húsflugunnar.
Lirfurnar geta lifa á margs konar
úrgangi og þrífast ágætlega í skít
vel fóðraðra dýra, fóðurafgöngum
og mjólkurslettum.
Forvarnir og varnir
Bestu og mikilvægustu forvarnirnar
gegn flugnaplágu eru rétt meðferð
húsdýraáburðar og góð umgengni
og þrif. Aðrar útrýmingaraðferðir
eru aðeins þessu til viðbótar.
Varpstaðir og klak
Flugurnar velja varpstaði sem
eru hæfilega hlýir og rakir, með
nægu æti fyrir lirfurnar og þar sem
hættan á raski er lítil. Kálfastíur
eru kjörlendi enda oft hægt að sjá
lirfumor meðfram veggjum þegar
mokað er út úr stíunum að sumarlagi.
Sömuleiðis verpir flugan við veggi
í kyrrstæðum haugkjöllurum og í
jöðrum safnhauga.
Hægt er að spilla klakinu með
því að að moka oft út og bera ríflega
af þurrkandi undirburðarefnum
undir gripina, gæta þess vel að
bera mikið meðfram veggjunum
og annars staðar þar sem flugurnar
geta verpt. Ýmis viðurkennd
þurrkandi undirburðarefni eru hér á
markaði; þau eru yfirleitt virk gegn
sýklum, vírusum, myglusveppum og
sníkjudýrum.
Lífrænar varnir ganga út á að nýta
sér náttúrulega óvini húsflugunnar.
Kosturinn við lífrænar varnir er
sá að engin eiturefni eru notuð og
flugurnar mynda því ekki ónæmi
eins og getur gerst við notkun
eiturefna.
Ránflugur: Ránflugur laðast
hvorki að mönnum né dýrum og
valda því ekki óþægindum eins og
húsflugurnar. Ránflugurnar verpa
á yfirborð mykjunnar, lirfurnar éta
svo lirfur húsflugunnar sem klekjast
á sama stað.
Danir telja hins vegar að
ránflugurnar nái aðeins að fjölga sér
og nýtast sem forvörn við sérstakar
aðstæður í svínabúum.
Sníkjugeitungar: Sníkjugeitungar
forðast menn og skepnur, halda sig
helst í hálminum þannig að lítið fer
fyrir þeim. Sníkjugeitungum líður
best þar sem dýrin eru á hálmbeði
og sjaldan mokað út. Geitungurinn
stingur gat á húsflugupúpuna og
verpir inn í hana, þannig að í stað
húsflugu kemur sníkjugeitungur
úr púpunni. Sníkjugeitungar
geta þannig allt að helmingað
húsflugustofninn.
Gildrur
Flestir þekkja límgildrur, bæði blöð
og bönd sem flugurnar límast fastar
við. Mikilvægt er að staðsetja lím-
gildrurnar rétt, á björtum og hlýjum
stöðum þar sem önnur dýr ná ekki til.
Ljósgildrur (flugnaljós) eru
sömuleiðis vel þekktar, þá laðast
flugurnar að útfjólubláu ljósi og
drepast í neti úr háspennurafþráðum.
Þessar gildrur geta fækkað flugum
en ráða ekki einar við að halda niðri
flugnagerinu. Ljósgildrurnar duga þó
ágætlega til að fækka flugum utan
flugnatímans.
Eitrun
Virkasta eitrunaraðferðin er að eitra
fyrir lirfunum með sérhæfðum lirfu-
eiturefnum (larvicides).
Aðrar eitrunaraðferðir eru t.d.
flugnaeitur sem smurt er á veggi (eða
spjöld), sérstök flugnaeiturspjöld,
úðabrúsar með flugnaeitri og sérhæfð
úðunarefni. Eitrun dugar þó aðeins
samhliða öðrum aðgerðum.
Mikilvægt er að nota aðeins
eiturefni sem viðurkennd eru til
nota í gripahúsum, sérstaka aðgát
skal hafa í fjósum, mjólkurhúsum
og hjá varphænum.
Geta skal heimildar ef vitnað er
í greinina.
Höf. Katrín H. Andrésdóttir,
fyrrv. héraðsdýralæknir.
„ Ef þið sjáið 15 flugur þá er líklegt
að aðrar 85 séu að þroskast í
varpstöðvunum! “
Hvernig á að halda
flugunni niðri?
Allar gildrur skulu staðsettar
nálægt helstu klakstöðvunum,
þannig veiðist mest af nýklöktum
flugum og flugum á leið í varp.
Forðist notkun úðaeiturs
(úðabrúsa)
Á daginn sjáum við flugurnar sitjandi á
dýrunum, á veggjum, milligerðum, nálægt
fóðrinu og í skítnum/hálminum. Einnig er töluvert
af flugum utandyra.
Á nóttunni sitja flugurnar ekki á dýrunum,
þær leita efst á stoðir og upp í loft. Þegar heitt
er í veðri leita þær út á skjólgóða staði, sitja
yfirleitt nokkuð frá jörðu en fara yfirleitt ekki
hærra en fimm metra..
Á vordögum héldu sænskir
svínabændur aðalfund sinn.
Í fimmta tölublaði norska
fagtímaritsins Svin er fjallað um
fundinn og sagt frá umræðum
um breytingar á reglum um
dýravelferð á svínabúum.
Sænskir svínabændur hafa farið af
stað með verkefni sem snýr að því að
rýmka sænskar dýravelferðarkörfur
í því skyni að efla samkeppnishæfni
svínakjötsframleiðslunnar í
Svíþjóð. Strangar reglur um velferð
dýra og aðbúnað þeirra í Svíþjóð
hafa dregið úr samkeppnishæfni
innlendra framleiðenda. Innlend
svínakjötsframleiðsla þarf að takast á
við samkeppni við afurðir frá öðrum
löndum sem framleiddar eru við mun
rýmra regluverk.
Það eru meðal annars
þeir Gunnar Johannsson hjá
Dýraheilbrigðiseftirlitinu og Mattias
Espert, varaformaður í samtökum
sænskra svínabænda, sem stýra
verkefninu. Óíkir faghópar, þar á meðal
sænsku bændasamtökin, ræða nú um
hvaða möguleikar séu til breytinga
sem ekki brjóta gegn reglum um
dýravelferð. Verkefnið hefur farið vel
af stað og fram til þessa hefur umræðan
verið jákvæð og uppbyggileg.
Frá aldamótum hefur framleiðsla
á svínakjöti í Svíþjóð dregist saman
um 20% en alls voru aldar um 2,5
milljónir sláturgrísa í Svíþjóð árið
2012. Á sama tíma segjast sænskir
svínabændur þurfa að vinna eftir
heimsins ströngustu kröfum um
dýravelferð. Einnig segjast þeir nota
minnst af fúkkalyfjum, samhliða því
sem þeir tapa markaðshlutdeild.
Meðal þeirra tillagna sem nú er
rætt um er lækkun á fráfærualdri og
hvort slík lækkun geti orðið án þess
að það gangi gegn dýravelferð. Þar
skiptir þungi grísanna við fráfærur
miklu en markmiðið er að sem flestir
fráfærugrísir lifi af. Einnig hefur
verið rætt um búnað í gotstíum og
útfærslu á innréttingum fyrir gyltur á
fengitíma. Markmið um vaxtarhraða
í sláturgrísastíum hafa gengið eftir og
það sama má segja um þær kröfur að
ekki megi vera fleiri en 400 grísir í
hverri deild svínabúa.
Sænsk ráðgjafaþjónusta mun
nú leggja sérstaka áherslu á þessa
efnisþætti á komandi vetri. Allt
regluverk fyrir velferð dýra verður
skoðað, auk þess sem lagt verður
sérstakt mat á kostnaðarþáttinn.
Slíkar rannsóknir eru gerðar að
kröfu landbúnaðaryfirvalda sem er
forsenda þess að hægt verði að taka
niðurstöðurnar til frekari skoðunar. Því
má gera ráð fyrir að verkið taki lengri
tíma en svo að nýjar reglur geti tekið
gildi fyrir haustið 2014.
Reikna með samdrætti í sænskri
svínarækt
Á fundinum sagðist framkvæmdastjóri
Samtaka sænskra svínabænda,
Margareta Åberg, reikna með 3-5%
samdrætti í sænskri svínarækt í
ár. Verðið á svínakjötsmarkaði er
þrátt fyrir það heldur betra í dag
en fyrir einu til tveimur árum en
kostnaður við framleiðsluna hefur
aukist á sama tíma. Gert er ráð
fyrir að svínakjötsframleiðsla í
Evrópusambandinu dragist líka
saman í ár, eða um 2-3%. Jafnframt
ræddi Åberg um strangar reglur um
dýravelferð í Evrópusambandinu og
kröfur um lausagöngu fyrir gyltur í
geldstöðu frá 1. janúar síðastliðnum.
Enn eiga mörg lönd innan ESB eftir
að innleiða þessar reglur. Þá nefndi
Åberg að bannað sé að klippa hala
á grísum en 98% af svínabændum
geri það enn. Hvað varðar kröfur um
undirburð í svínastíum, t.d. hálm, er
það mjög ólíkt í framkvæmd innan
einstakra landa Evrópusambandsins.
LFR, sænsku bændasamtökin, hafa
skrifað bréf til sænskra yfirvalda þess
efnis að ólöglega framleitt svínakjöt
flæði nú inn á sænska markaðinn,
segir í frásögn fagtímaritsins Svin frá
aðalfundi sænskra svínabænda.
Þýtt og staðfært úr Svin.
Vilja rýmka sænskar dýravelferðarkörfur
Við sjáum aðeins fullorðnu flugurnar, en þær eru ekki nema um 15% af stofninum sem er til staðar.
Mynd / Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir