Bændablaðið - 22.08.2013, Síða 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 22. ágúst 2013
8 7 1
2 5 9
5 6
1 6
1 4 2
2 3
3 5
6 9
9 4 5
1 8 3
7
5
1 5 6
9 4
5 3 7
2
4
2
6
47 6 4 1
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama
talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
og heldur ekki innan hvers
reits sem afmarkaður er af
sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Ólína Stefánsdóttir býr í Hlíð unum
í Reykjavík, hlustar á Blondie og
horfir á Harry Potter. Fyrsta minn-
ingin er úr brúðkaupi foreldranna.
Nafn: Ólína Stefánsdóttir.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Hlíðarnar í Reykjavík.
Skóli: Hlíðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Tónmennt.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Köttur.
Uppáhaldsmatur: Tortillur.
Uppáhaldshljómsveit: Blondie.
Uppáhaldskvikmynd: Harry Potter.
Fyrsta minningin þín? Brúðkaup
foreldra minna.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei, en ég er í mynd-
listarskóla.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Kennari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að sprauta köldu vatni á
vini mína með garðslöngu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Vera veik.
Ertu búin, eða ætlarðu að gera eitt-
hvað sérstakt í sumar? Ég er búin
að fara til Vestmannaeyja, labba á
Esjuna og fara á Neistaflug.
Glysgjörn
PRJÓNAHORNIÐ
Stærð:
XS =11-12 ára, (S=13-14 ára)
Yfirvídd:
80 (86) cm
Sídd á bol, undir handvegi:
49 (55) cm
Efni
Tvöfaldur svartur plötulopi nr 59 - 5, (5) plötur
Frapan frá Garn.is - 1 dokka dökkgrænn nr 91247
og 1 dokka skærgrænn nr 91249
Prjónar
Hringprjónn nr 6, 40 cm og 80 cm
Sokkaprjónar nr 6
Heklunál nr 5
Prjónafesta
10 x 10 cm = 14 L og 20 umf slétt prjón. Notið
hálfu nr stærri eða minni prjón eftir því sem við
á, ef prjónafestan passar ekki hjá ykkur.
Bolur
Fitjið upp 134 (144) L á prjóna nr 6 með aðallit.
Prj 5 umf garðaprjón fram og til baka. Tengið
saman í hring og prjónið 12 (14) L sl. Prj svo br
til baka 24 (28) L.
Snúið við og prj 24 (28) L + 4 næstu L sl.
Prj áfram fram og til baka, sl á réttunni, brugðið
á röngunni, og bætið alltaf 4 L við í hverri umf
líkt og áður (ekki aukið út heldur prjónað yfir
fleiri lykkjur en áður).
Þegar komnar eru 10 umf eru prj 4 umferðir þar
sem 8 L er bætt við í hverri umf (líkt og áður).
Prjónið nú slétt yfir allar lykkjurnar á prjóninum
og setjið merki í hliðarnar. Héðan í frá byrjar hver
hringur í vinstri hliðinni.
Prjónið 9 (10) umf.
Takið 10 L jafnt úr allan hringinn.
Prj 12 (13) umf.
Takið 10 L jafnt úr allan hringinn.
Prj 12 (13) umf.
Takið 2 L þannig úr í hvorri hlið: prj 1 L, prj tvær
L saman, prj þar til 3 L eru að merkinu á hægri
hliðinni, takið 1 L óprj, prj 1 L og steypið óprj L
yfir, prj 2 L, prj 2L saman, prj þar til 3 L eru að
merkinu á vinstri hliðinni, takið 1 L óprj, prj 1 L
og steypið óprj L yfir, prj 1 L.
Prj 12 (13) umf
Takið 2 L úr í hvorri hlið eins og lýst var áðan.
Prj 10 (11) umf
Aukið út um 2 L í hvorri hlið.
Prj 2 (3) umf svart og skiptið svo yfir í græna
Frapan garnið. Prj 1 umf dökka, 3 ljósar og 1
umf dökka.
Prj 3 umf svart á milli randanna. Athugið að í
svörtu miðröndinni er aukið út um 2 L hvoru
megin. Endurtakið þar til komnar eru 4 grænar
rendur.
Endið bolinn á að prj 3 umf svart.
Nú eiga að vera 114 (124) L á prjóninum.
Í síðustu umferðinni eru 8 L undir
miðhandveginum settar á nælu eða hjálparband.
Geymið bolinn og prjónið ermar.
Ermar
Fitjið upp 52 (56) L með aðallit og prj 5 umf
garðaprjón fram og til baka.
Tengið í hring og prj 2 (3) umf slétt.
Skiptið yfir í Frapan garnið og prjónið rendur
eins og lýst var á bol. Í annarri og þriðju svörtu
röndunum eru 4L teknar úr í hvort skipti. Einnig
eru 4 L teknar úr í annarri svörtu umf eftir að
röndunum sleppir.
Prj 18 (20) umf
Aukið út um 2 L undir erminni.
Prj 14 (15) umf
Aukið aftur út um 2 L.
Prjónið nú ermina þar til hún mælist 47 (49) cm
eða eins löng og óskað er.
Í síðustu umferðinni eru 8 L undir miðerminni
settar á nælu eða hjálparband. Slítið bandið frá
en geymið góðan þráð sem síðar er notaður til
að lykkja saman undir höndum.
Prjónið hina ermina eins.
Axlarstykki
Sameinið bol og ermar á hringprjón. Setjið merki
þar sem bolur og ermar mætast.
Nú eiga að vera 186 (204) L á prjóninum.
Prj 4 umf.
Laskaúrtakan er gerð í annarri hvorri umferð
en 3 (2) sinnum er sleppt að taka úr á erma-
stykkjunum.
Úrtakan er gerð þannig: prj þar til 3 L eru að
merki, prj 2 L sl saman, prj 2 sl, takið 1 L óprj,
prj 1 L og steypið óprj L yfir hana.
Úrtökurnar eru gerðar 18 (19) sinnum upp
öxlina. Þegar þeim er lokið eiga að vera 54 (60)
L á prjóninum.
Hálsmál og hetta
Setjið merki í miðju að framan og aftan á baki,
prj sl þar til 2 L eru að merkinu að framan. Fellið
af 4 L og prjónið garðaprjón (sl fram og til baka)
8 umferðir (4 garða).
Hettan er prjónuð sl á réttunni og br á
röngunni. Í fyrstu umf er aukið út um 10
L jafnt yfir.
Prj 6 (8) umf.
Aukið út eina L í hvorri hlið að framan og tvær
L sitt hvoru megin við miðjulykkju að aftan.
Prj 6 (8) umf og aukið eins út og áðan.
Prjónið hettuna áfram þar til hún mælist 32
(34) cm.
Lykkið saman að ofan.
Frágangur
Lykkið saman undir höndum og gangið frá
endum. Heklið fastahekl, 2 umf í kringum
hettuna.
Þvoið peysuna og látið þorna liggjandi á
handklæði.
/ Helena Eiríksdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Búin að fara til Vestmanna eyja,
labba á Esjuna og fara á Neistaflug
8
Létt
8 2 9
5 6
7 2 3
1 4 5
3 8 2
8 1 7
3
3 9 5
6
ÞungMiðlungs
7
Skriðdæla
Byggðasaga, ábúendatal og ýmis fróðleikur
Hrólfur Kristbjörnsson og Jón Hrólfsson
Skriðdæla
– byggðasaga Skriðdælahrepps
Út er komin bókin Skriðdæla.
Hún er eins og nafnið bendir til
byggðasaga Skriðdalshrepps á
Fljótsdalshéraði.
Efni hennar er skrifað af
feðgunum Hrólfi Kristbjörnssyni,
bónda á Hallbjarnarstöðum og Jóni
Hrólfssyni, bónda á Haugum sem létu
þetta eftir sig er þeir létust. Í bókinni
er ábúendatal frá um 1790, örnefna-
og sveitarlýsing, vangaveltur um
tilurð bæjarnafna, saga vegagerðar
og verslunar, árferði í tvöhundruð
ár tengt Austurlandi auk frásagna af
ýmsum forvígismönnum og mönnum
og málefnum. Fjöldi ljósmynda
prýðir bókina.
Handritin lágu óhreyfð í mörg ár
eftir lát þeirra feðga en Hrólfur lést
árið 1972 en Jón 1990. Það var fyrir
nokkrum árum að afkomendum þeirra
feðga þótti ástæða til að láta þetta
koma fyrir almenningsjónir. Það voru
systurnar Ingifinna Jónsdóttir og Jóna
Björg Jónsdóttir sem ýttu verkinu úr
vör. Seinna komu Helga Pálsdóttir
og Elín Sigríður Arnórsdóttir til
skjalanna. Saman mynduðu þessar
fjórar konur ritstjórn sem sá um
út komu bókarinnar. Hún er gefin
út af bókaútgáfunni Hólum og er
eingöngu til sölu hjá ritstjórum
fyrst um sinn í gegnum eftirfarandi
netföng: jonabjorg_@hotmail.
com, oskatre@mi.is , ellasigga74@
hotmail.com og ingifinna@emax.is.
Amma mús – handavinnuhús
Útsaums-
efni og
-garn
Kemur næst út 5. september