Læknablaðið - 01.08.1959, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ
19
stóra skammta í liinum alvar-
legustu tilfellum. Það vakti t. d.
athygli, þegar prófessor Lassen
sagðist komast af með 300.000
ein. af procain-penicillin 3. s.
á sólarhring gegn endocarditis
lenta og sepsis. Aðrir, sem til
máls tóku, notuðu stærri
skammta. Hvað er hæfilegur
skammtur af penicillini við
meðalþunga pneumoni lianda
meðalholda fullorðnum manni ?
300.000 ein. proc. pen. + 100.000
ein. af kryst. penicillini fyrsta
daginn, síðan 2-300.000 ein.
proc. penicillin á dag, þar til
sjúkl. hefur verið hitalaust i 3
daga. Þetta er höfuðreglan hjá
þeim, sem nota litla skammta.
Það, sem þessi kröftugu lyf
gera, það gera þau nærri allltaf
fljótt. Ef kliniskur hati hefur
ekki nóðst innan viku frá því
að meðferðin var hafin, þá skal
endurslcoða tilfellið.
Á seinni árum hefur lyfjaiðn-
aðurinn auglýst mikið svokölluð
samsett lyf. Þetta er blanda af
2 fúkalyfjum. Auglýsingarnar
segja, að lyfin í blöndunni verki
saman (synergislct) og læknum
talin trú um, að 2 eða fleiri
sterk lyf verkuðu öruggar en
eitt.
Það er óhætt að fullvrða, að
allir ábyrgir læknar, bæði aust-
an iiafs og vestan, fordæma
þessar lyf jablöndur, nema i sér-
stökum, völdum tilfellum (4).
i lyfjablöndu, sem er mark-
aðsvara gegn ógreindum sýkla-
stofnum, er ekki um samverk-
un lyfjanna að ræða i þeim
skilningi, að þau verki betur
saman en livort um sig i hæfi-
legum skammti, þvi að bæði
lyfin saman verka jafn vel og
annað þeirra gerir í réttum
skammti. Ef ástæða er til þess
að nota lyfjablöndu, verður
fyrst að rækta frá sjúklingi,
greina stofninn, prófa verkun
lyfjanna á stofninn, l)æði hvers
einstaks og ásamt öðru lyfi.
Þetta er mikil vinna og kostn-
aðarsöm, en nauðsynleg, ef með-
ferðin á að vera rétt grundvöll-
uð. Hver lyf jablanda verður sem
sagt að vera sniðin við hæfi við-
komandi sj'kla. Hún verður að
vera „tailor made“, eins og sagt
er í útlandinu. Ef þetta er ekki
gert, er hættulegt að nota þessi
samsettu lyf, þau gefa falskt ör-
vggi, letja menn í því að leita
að orsök sjúkdómsins, skammt-
urinn verður aldrei öruggur, þvi
er liætt við þvi að meðferðin
komi ekki að tilætluðum not-
um, hættara er við aukaverk-
unum, kliniska myndin getur
brenglazt, þannig, að tilfellið
verður flóknara og liætt er við
sýklaónæmi.
Þó er oft nauðsynlegt að nota
fleira en eitt fúkalyf í einu, en
það verður þá að gerast eftir
„tailor made“ aðferðinni. Ef um
blöndunarsýkingu er að ræða,
þá er mögulegt að tvö lyf verki
betur en eitt, t. d. við húðbólgur,
sárabólgur og holbólgur. Stund-