Læknablaðið - 01.02.1965, Blaðsíða 32
6
LÆKNABLAÐIÐ
fjögur skipti á 15—20 minútna
fresti. Hafi adrenalín þá ekki
verkað, eru fleiri inndælingar
tilgangslausar. Seint í kasti eða
i status astlnnaticus dugar ad-
renalín oft lítið eitt saman, og
er talað um, að þeir sjúklingar
séu adrenalín-fastir. Margt get-
ur borið til, m.a. liafa þeir sjúkl-
ingar tilhneigingu lil að halda
lungunum í „mið-inspiration“ í
hvild og því minni möguleikar
til útvíkkunar, auk þess sem þá
er venjulega orðin þörf fyrir
fleiri lyf.
Adrenalín er stundum notað
í olíuupplausn, og fæst þannig
lengri verkun, en óvissari, vegna
þess að ahsorptionshraðinn fer
ekki eftir þörfinni. Undir á-
kveðnum kringumstæðum get-
ur reynzt vel að gefa vatns-
og olíuupplausn samtímis og
komast þannig hjá endurtekn-
um inndælingum. Það geta ver-
ið relativar kontraindikationir
fyrir adrenalíngjöf hjá gömlu
fólki með hjarta- og æðasjúk-
dóma. Venjulega er þó asthma-
kast meiri raun fyrir slíka sjúkl-
inga en adrenalíngjöf.
Asthmasjúklingar eiga að geta
sprautað sig sjálfir með adrena-
líni, engu síður en sykursýkis-
sjúklingar með insúlíni. Ef það
væri almennt, væri oft liægt
að koma í veg fyrir mikla van-
líðan og áhyggjur sjúklingsins
og ættingja. Unnt væri að ráða
hug á astlnnakasti strax í hyrj-
un, en ekki þyrfti að bíða svo
og svo lengi eftir lækni til að
gefa slíka sprautu.
Ephedrin liefur lengi verið
notað við asthma. Áhrifin eru
ekki eins kröftug og af adrena-
lini, en standa lengur. Ephedrin
hefur ekki miklar verkanir í
akut kasti, en reynist vel með
öðrum lyfjum við langvarandi
asthma. Venjulegur skammtur
er 20 mg á fjögurra ldst. fresti.
Uðun (Spray). Adrenalin
er oft notað í úðara og gefsl
vel, en margir taka eftir því,
að áhrifin minnka með tíman-
um. Gæti verið, að sumir sjúkl-
ingar reiði sig um of á úðar-
ann einan til að halda astlnnanu
í skefjum eða að upplausn sú,
sem hér hefur fengizt, þoli ekki
vel geymslu. Eitt hezta lyf, sem
nú er til við asthma, isoprote-
renol (isuprel, neoepinine), er
skylt adrenalíni og hefur verk-
anir, sem eru nokkurn veginn
miðs vegar milli þess og ephed-
rins. Isuprel verkar hezt á asth-
ma, þegar þvi er úðað. Sé það
notað í linguettum, verða áhrif
in á hjarta- og æðakerfi vfir-
gnæfandi, og það er ekki notað
við astlnna í því formi. Til úð-
unar eru þynningarnar 1:100 og
1:200, og má þynna frekar með
kranavatni eftir vild. Þessu er
úðað í fimm til tíu mínútur
í senn fjórum til sex sinn-
um á dag. Mjög margir lækn-
ar lála sjúklinga sína, sem
hafa asthma eða emphysem,
nota isuprel-úðun þrisvar til