Læknablaðið - 01.08.1965, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ
57
ir, eru gífurlega sjaldséðir.
Stærsta rannsókn af þessu tagi
nær aðeins til 44 tvennda.3 Þeim
hóp var safnað með tilstyrk
brezka sjónvarpsins. Ef við
hugsum okkur, að sama aðferð
væri viðhöfð hér á landi með
sama árangri hlutfallslega, feng-
ist ekki út úr því nema örlítið
brot af tvíbura.
Ekki er til neinn einn hlutur,
sem sýni alltaf örugglega,
hvort tvíburar eru eineggja eða
tvíeggja. Sjaldan er hægt að fá
upplýsingar um fylgjuna, en
jafnvel þótt svo sé, segir það
einungis, að tvíburar, sem hafa
sama æðabelg, eru jafnan ein-
eggja. Tvíburar, sem hafa að-
skilda æðabelgi, geta líka verið
eineggja, þótt hið gagnstæða sé
algengara. Venjuleg aðferð til
flokkunar í eineggja og tvíeggja
tvíbura er að athuga hjá báð-
um ákveðna eiginleika, sem vit-
að er að erfast. Hér eru blóð-
flokkar einna handhægastir, því
að þeir erfast óháðir hverir öðr-
um og óháðir öðrum eiginleik-
um, og tíðni genanna er kunn.
Ef flokkað er í marga undir-
flokka, verður skekkjan sára-
lítil. Hafi tvíburar nákvæmlega
sömu blóðflokka, eru allar líkur
til þess, að þeir séu eineggja.
Sé munur á einum eða fleirum
blóðflokkanna, er það sönnun
þess, að þeir eru tvíeggja.
Eineggja tvíburar eru oft svo
líkir í útliti, að ekki þekkja þá
sundur aðrir en kunnugir. En
svipmót og aðrir ytri eigin-
leikar, þótt arfgengir séu að
nokkru leyti, geta breytzt meira
eða minna við áhrif umhverfis.
Samt er þetta líka svipmót oft
nægilegt til þess að þekkja ein-
eggja tvíbura. Fingraför gefa
nokkrar upplýsingar, og margt
fleira kemur að gagni, sem of
langt væri upp að telja.
Hér mun gerð grein fyrir
fimmtugum tvíburasystrum (f.
1914). Við getum kallað þær
Guðrúnu og Sigríði.
Báðar hafa þær nýlega dvalizt
hér á spítalanum vegna schizo-
phrenia paranoides. Þær eru ákaf-
lega líkar í útliti, hreyfingum og
látbragði; hæð og þyngd mjög lík.
Augnsvipur og augnalitur og eins
hárafar er mjög áþekkt. Röddin
er einnig mjög lík. Guðrún er elli-
legri, og er það trúlega afleiðing
þess, að hún hefur átt erfiðari ævi.
Þessar systur voru blóðflokkaðar.
Þessir flokkar voru athugaðir:
ABO, MN, Rhesus, Kell, Duffy.
Bar þar öllu saman. Tekin voru
fingraför, en þau gefa ekki ótví-
ræðar upplýsingar. Heilarit eðli-
legt og svipað hjá báðum. Eðlis-
greind beggja líklega um 80. Syst-
urnar fæddust og ólust upp aust-
ur í Skaftafellssýslu. Móðir þeirra
dó, er þær voru á fyrsta eða öðru
ári. Faðir þeirra kvæntist aftur, og
eiga þær átta hálfsystkini. Tvö
þeirra hafa legið á sjúkrahúsi
vegna einhverra andlegra kvilla.
Þær systur voru saman hjá föður
sínum og stjúpmóður. Munu þær
oft hafa búið við fremur þröngan
kost. Þegar þær eru 18 ára, skilj-
ast leiðir. Sigríður fer þá að heim-
an, fyrst til Víkur, en síðan til
Reykjavíkur árið eftir, og hér hef-