Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1965, Page 35

Læknablaðið - 01.08.1965, Page 35
LÆKNABLAÐIÐ 61 LÆKNABLAÐIÐ 50. árg. Ágúst 1965 Félagspremsmiðjan h.f. ÍSLENZKAR LÆKNISFRÆÐI- RANNSÓKNIR Hin alþjóðlegu læknavísindi byggja á niðurstöðum rann- sókna einstakra nianna eða hópa, seni í upphafi hafa vfii'- leitt verið framkvæmdar með einni ákveðinni þjóð. Rann- sóknirnar eru þannig þjóðlegar, þó að aðferðirnar og niðurstöð- urnar séu oflast alþjóðlegar að meira eða minna leyti. Megin- lyftistöng allra fræða eru rann- sóknir, og þá fyrst ná fræðin nokkrum metum meðal þjóð- anna, er þeir fróðu iðka rann- sóknir, sem gera garðinn fræg- an. Því hefur lengi verið við hrugðið, að við Islendingar sé- um svo fáir og fátækir, að við höfum ekki efni á að iðka rann- sóknir. Skilningur er nú liins vegar mjög vaxandi á, að ein- mitt vegna fæðar og fátæktar höfum við ekki efni á að láta vera að sinna vísindalegum rannsóknum, ef við ætlum okk- ur að teljast til menningar- þjóða. Rannsóknaraðferðir læknis- fræðinnar eru mjög mismun- andi og aðslaða lil að beita bin- um ýmsu aðferðum er breyti- leg frá einum tíma til annars og frá einu landi til annars. Sumar rannsóknir krefjastgóðr- ar aðstöðu í rannsóknarstofum með fullkomnum tækjum til að kanna rafspennu i taugafrum- um eða til að kanna ýmsar brevtingar í byggingu vefja lík- amans. Við aðrar rannsóknir er hins vegar nauðsynlegt að liafa greiðan aðgang að 'hæfilega miklum fjölda fólks, annað- hvort óvöldum hópi, sem sýni þjóðarinnar, eða hópi, sem býr við ákveðin skilvrði. Hér á landi hafa alla tíð verið góð skilyrði til síðarnefndu rannsóknanna, þó að þau hafi aldrei verið slík sem nú eftir tilkomu skýrslu- véla og rafreikna. Notkun slíkr- ar tækni í stórum stil er kostn- aðarsöm og trauðla á færi ein- stakra manna, nema til komi miklu meiri möguleikar á fjár- styrkjum og tæknilegum leið- beiningum en verið hafa. Með auknum samgöngum og aukinni þekkingu annarra þjóða á Islandi hafa augu erlendra vísindamanna eðlilcga lokizl upp fyrir þeim möguleikum, sem hér eru. Þessir hafa oft gnægð fjár, sem við höfum ekki handbært á augabragði, til að framkvæma hugmyndir sínar, sem gjarnan eru svipaðar þeim hugmyndum, sem við sjálfir

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.