Læknablaðið - 01.08.1965, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ
69
Guðjón Lárusson:
FRAMTÍÐARSKIPULAG LÆKNIS-
ÞJÓNUSTU Á SPlTÖLUM.
Hlutverk þessarar nefndar er
að koma fram með tillögur um
framtíðarskipulag læknisþjón-
ustu á spítölum. Það liggur í
augum uppi, að erfitt mun
verða að levsa það mál, svo
að öllum líki, cn fáir munu þeir
vera meðal yngri lækna, sem
eru ekki mjög óánægðir með
það fyrirkomulag, sem nú ríkir.
Nefndin hefur talsvert kvnnt
scr, hvernig læknisþjónustu er
háttað í þeim löndum, þar sem
íslenzkir læknar stunda helzt
framhaldsnám, og Jón Þor-
sleinsson hefur þegar gert
nokkru af því slcil. Ég mun
aðallega ræða það, sem kallað
er ameríska kerfið, en mig lang-
ar þó til að byrja á að endur-
taka örfá atriði úr skýrslu Platt-
nefndarinnar, sem Jón hefur
þegar drepið á.
1. í fyrsta lagi höfum við feng-
ið skilgreiningu á consult-
ant, sérfræðingi, og má öll-
um vera ljóst, að óhugsandi
er að samræma hana píra-
mídakerfi okkar, þ. e. að
einn sérfræðingur sé yfir
öðrum, sem síðan sé setlur
yfir þriðja sérfræðingiim o.
s. frv. Hver sérfræðingur
hlýtur að bera ábyrgð á
rannsókn og stundun sjúkl-
inga sinna.
2. Þá leggja Englendingar á-
herzlu á samvinnu sérfræð-
inga, þó ef til vill ekki enn
í jafnríkum mæli og Ame-
ríkumenn; l. d. ætlast þeir
til, að minnst tveir sérfræð-
ingar í sömu grein séu á
hverri spítaladeild til þess
að tryggja j)að, að þeir geti
borið saman bækur sínar um
vandamál, sem upp koma,
og eins lil jæss, að hæfur
maður sé jafnan tiltækur, ef
annar hvor þeirra forfallast.
3. Þá er ekki að sjá, að Eng-
lendingum finnist athuga-
vert, að sérfræðingur stundi
sjúklinga á fleiri en einum
spítala. Platt-nefndin hef-
ur athugað rækilega, hversu
vinna sérfræðinga skuli vera
mikil og hvernig þeir geli
selt spítala vinnu sína i
tímaeiningum (ákveðin laun
fyrir ákveðinn vinnutíma á
viku) eða „per case“, og