Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1965, Side 61

Læknablaðið - 01.08.1965, Side 61
LÆKNABLAÐIÐ 83 'þeirra kollega, sem á aðstoð hennar þurfa að lialda. Lögfræðileg aðstoð. Félagið hefur notið aðstoðar sömu lögfræðinga og áður. Benedikt Sigurjónsson hrl. hef- ur einkum aðstoðað við allar samningagerðir við Sjúkrasam- lag og Tryggingastofnun, en Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl. 'hefur einkum verið til að- stoðar í launamálum sjúkrahús- lækna eins og áður. Báðir þess- ir mætu lögfræðingar hafa lengi starfað hjá félaginu; eru orðnir málefnum þess gagn- kunnugir, og er okkur ómetan- legur styrkur að þeirra hjálp i sambandi við allar samninga- gerðir. Má telja, að allar meiri háttar ákvarðanir í launamál- um og samningagerðum séu börnar undir þá. öllum }>essum nefndu starfs- mönnum félagsins vil ég fyrir hönd okkar allra þakka ágæt störf á liðnu ári. STÖRF NEFNDA. Samninganefnd heimilislækna. Nefndina skipuðu Halldór Arinbjarnar formaður, Guð- numdur Eyjólfsson og Jóhann- es Björnsson. Samningum heimilislækna hafði verið sagt upp um ára- mót 1963—1964 frá l.apríl 1964 að telja. Fundir við stjórn L.R. hyrjuðu í lok fehrúar. Alls voru haldnir fimm formlegir fundir við stjórn S.R. og nokkrir ó- formlegir; enn fremur hélt nefndin marga fundi með lög- fræðingum sínum. Um mánaða- mótin marz april var gefinn 14daga frestur á uppsögn samn- inga af ýmsum ástæðum, og um miðjan apríl náðist samkomu- lag um ca. 25% hækkun sam- tals fvrir heimilislækna og liáls-, nef- og eyrnalækna og augn- lækna. Ýmsar smávægilegar breytingar voru gerðar á eldri samningum og grein sett inn í hann um sjálfkrafa hækkanir, yrðu kaupgjalds- og verðlags- hækkanir í landinu á samniiigs- tímanum. Samið var til 1. apríl 1965. Samkomulagið var síðan samþykkt á almennum lækna- félagsfundi í apríl með vfir- gnæfandi meiri hluti greiddra atkvæða. „Að fenginni reynslu af lögfræðilegri hjálp við samn- inga við S.R. ætti L.R. aldrei að semja við nokkurn aðila án þess að hafa lögfræðing með á samningafundum,“ segir for- maður sainninganefndarinnar. I lok desember sl. var sagt upp samningum heimilislækna við S.R., miðað við 1. apríl. Nefndin hefur nú haldið nokkra fundi, en enn þá hafa viðræður við stjórn S.R. ekki farið fram, en bvrja einhvern næstu daga. Niðurstöður síðustu samn- inga hafa áður verið birtar og sendar fjölritaðir til félags- manna, og verða samningarnir því ekki nánar kynntir hér.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.