Læknablaðið - 01.08.1965, Blaðsíða 74
91
LÆKNABLAÐIÐ
Allmiklar umræður hafa far-
ið frám innan stjórnar félags-
ins um skipulag læknaþjónustu
hér á landi í framtíðinni. Ber
þessi málefni nú mjög á góma
með læknafélögum flestra
landa, og liafa víða verið gei’ð-
ar mjög ýtarlegar og margþætt-
ar rannsóknir á því, hvernig
bezt sé að skipuleggja starfsemi
lækna, bæði á sjúkrahúsum og
utan þeirra.
I þessu skyni var á síðasl-
liðnu hausti skipuð nefnd af
stjórn og meðstjórn. Er formað-
ur hennar ritari félagsins, Jón
Þorsteinsson, og með honuni
Guðjón Lárusson og Ólafur
Jensson. Hafa þeir félagar hald-
ið marga fundi og safnað gögn-
um frá ýmsum löndum um þær
athuganir, sem þar hafa farið
fram. Hefur þetta reynzt um-
fangsmikið starf, en von er til,
að nefndin geti lokið undirbún-
ingsstörfum sínum að meslu í
lok þessa mánaðar. Er þá liug-
myndin, að hún leggi fram at-
huganir sínar ásamt undirbún-
ingstillögum um frekari skip-
an þessara mála hjá okkur.
Hyggst stjórn félagsins síðan
leggja málið fyrir almennan fé-
lagsfund til þess að kynna sem
flestum kollegum, hvað atliug-
anir hafa leitt í ljós. Þar sem
hér er um málefni að ræða,
sem snerta mjög alla lækna í
landinu, má húast við miklum
umræðum um þessi mál, og
verður það vafalaust mikið starf
fyrir félagið að vinna að þess-
um málum áfram á komandi
tímum.
Á næsta starfsári má vænt-
anlega húast við miklu starfi
varðandi breytingu á kjörum
fastlaunalækna, þar sem Kjara-
dómur rennur út á þessu ári,
og vinna nú öll félög, sem að
Kjaradómi. lúta, að undirbún-
ingi málefna sinna fyrir næsta
Kjaradóm.
Á næsta starfsári verður enn
fremur mikið starf að vinna á
vegum skrifstofunnar, þar sem
koma þarf upp betri vélakosti,
Incði í sambandi við almennan
rekstur og bókhald félagsins,
og undirbúa þarf í tíma flutn-
ing skrifstofunnar í liúsnæði
Domus Medica. En við þá breyt-
ingu þarf að afla margra nýrra
hluta, hæði húsgagna og annars,
þar sem við njótum þar í mörgu
samvinnunnar við Verkfræð-
ingafélag Islands.
Lokaorð.
I ársskýrslu félagsstjórnar
hér á undan hefur verið drepið
á þau meiri liáttar málefni, sem
stjórn og meðstjórn félagsins
ásamt nefndum J)ess hafa haft
með böndum á síðastliðnu
starfsári. Að sjálfsögðu verður
upptalning mála aldrei tæmandi
í félagsskap sem þessum. Það
skal játað, að ég hefði sjálfur
kosið að geta sinnt félagsmál-
efnum betur á liðnu ári en raun
ber vitni. Ef stjórnarstörf sem