Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.09.2011, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 16.09.2011, Blaðsíða 4
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is Ráðstefnur & fundir Fullkomin aðstaða fyrir allt að 500 manns Krónan braggast 3,7% Styrking krónu gagnvart evru frá miðjum júní September 2011 Greining Íslandsbanka fjölskyldudagur Strætó fjölskyldudagur Strætó verður haldinn við höfuðstöðvar Strætó bs. að Hesthálsi 14 í reykjavík á morgun, laugardaginn 17. sept- ember, frá klukkan 13 til 16. fjöldi vagna verður í ferðum til og frá hátíðarsvæðinu. fjölskyldudagurinn er hluti af evrópskri samgönguviku sem nú er haldin dagana 16. til 22. september. Sveppi heilsar upp á krakkana og þeir sem vilja geta fengið tekna mynd af sér í bílstjórasæti strætis- vagns. Hægt verður að fá far með strætó gegnum þvottastöðina og slökkviliðið mætir með kranabíl og hífir þá hátt í loft upp, sem þess óska. andlitsmálun, hopp- kastali og leiktæki verða á svæðinu. Sögu almenningssamgangna verða gerð skil og Strætókórinn tekur lagið. Strætó bs. er tíu ára fyrirtæki en Strætisvagnar reykjavíkur hófu akstur fyrir áttatíu árum. - jh illugi aftur á þing illugi gunnarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, hefur ákveðið að taka þingsæti sitt að nýju. Hann vék til hliðar í apríl í fyrra vegna óvissu sem upp kom þegar rannsóknarnefnd alþingis sendi málefni peningamarkaðs- sjóða til saksóknara, en illugi sat í stjórn Sjóðs 9 hjá glitni. í kastljósi ríkissjón- varpsins fyrr í vikunni sagði illugi að hann hefði viljað gefa yfirvöldum ráðrúm til að átta sig á stöðu mála. Lögmanns- stofan Lex hefði nú sent frá sér álit sem segði að ekkert hefði verið athugavert við fjárfestingarheimildir, fjárfestingarstefnu og eignasamsetningu Sjóðs 9. Búið væri að vísa málinu frá og því ekki ástæða til að halda sig lengur frá því starfi sem hann hefði verið kosinn til. Sigurður kári kristjánsson hefur gegnt þingstörfum í fjarveru illuga. - jh Heldur færri leigusamningar Samhliða því að markaðurinn með kaup og sölu á íbúðarhúsnæði hefur lifnað að nýju hefur markaðurinn með leiguíbúðir dregist heldur saman. fjöldi þinglýstra leigusamninga með íbúðarhúsnæði var 6.464 á fyrstu átta mánuðum þessa árs og fækkaði þeim um 3,1% frá sama tímabili í fyrra, samkvæmt tölum Þjóðskrár íslands. á sama tíma jókst fjöldi þinglýstra kaup- samninga um íbúðarhúsnæði á höfuðborg- arsvæðinu um 76%. Leigumarkaðurinn er enn stór, í samanburði við það sem hann var fyrir efnahagshrunið, sem sjá má á því að á fyrstu átta mánuðum ársins 2006 var 3.041 leigusamningi með íbúðarhúsnæði þinglýst. - jh gengi krónu hefur styrkst frá miðjum júlí síðastliðnum eftir nær samfellda veikingu frá nóvember á síðasta ári. evra hefur ekki verið ódýrari í krónum talið frá ofanverðum febrúar, kostar nú um 160 krónur. gagnvart körfu helstu við- skiptamynta er gengi krónu svipað og í maíbyrjun eftir ríflega 2% styrkingu frá miðjum júlí. Styrkingin gagnvart evru á sama tímabili nemur hins vegar 3,7%, enda hefur evran gefið verulega eftir gagnvart helstu gjaldmiðlum það sem af er september, að því er fram kemur hjá greiningu íslandsbanka. Samfara styrkingu krónunnar hefur velta á gjaldeyrismark- aði á ofanverðu sumri verið meiri en raunin var frá síðasta fjórðungi ársins 2009, ef frá eru talin sérstök gjaldeyriskaup Seðlabankans af bönkunum í desember í fyrra. - jh  Vinsældir Engin skólagjöld frEista nígEríumanna og kamErúna Um 800 Afríkumenn sóttu um skólavist í Háskóla Íslands aðeins brot umsækjendanna fær skólavist. Draumur margra þeirra að komast inn í landið en óvissara um raunverulegan námsáhuga eða undirbúningsnám. aðsóknin jókst til muna eftir að skólagjöld voru tekin upp í Danmörku og Svíþjóð. Háskóla Íslands bárust um 800 umsóknir frá afríku fyrir þetta skólaár, einkum frá nígeríu og kamerún. aðeins brot af umsækjendunum fær skólavist. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images H áskóli Íslands virkar sem segull á Afríkumenn. Fyrir haustmisseri sóttu um 800 Afríkumenn um skóla- vist, einkum frá Nígeríu og Kamerún, að sögn Gísla Fannberg, deildarstjóra við mats- skrifstofu skólans. „Þeir eru að leita eftir námi á Vesturlöndum,“ segir Gísli. Það hafa yfirleitt ekki verið tekin skóla- gjöld við háskóla á Norðurlöndunum en þetta hefur verið að breytast gagnvart þjóðum utan Evrópska efnahagssvæðisins. Skólagjöld hafa verið tekin upp við háskóla í Danmörku og Svíþjóð, en Gísli segir að enn hafi slíkt ekki verið gert í Noregi. Háskóla Íslands er ekki heimilt að leggja á skólagjöld. Lagabreytingu þyrfti til ef breyta ætti þeirri stefnu, að sögn Gísla. „Vegna þessa er meiri ásókn í nám hjá okkur. Það hefur alltaf verið einhver ásókn frá þessum löndum en hún hefur verið að aukast. Við fundum fyrir því þegar skóla- gjöldin komust á hjá hinum Norðurlandaþjóð- unum. Þá jókst hún,“ segir Gísli. Hann segir að þrátt fyrir þennan mikla fjölda umsókna frá Nígeríu, Kamerún og öðrum Afríkuríkjum fái aðeins lítið brot um- sækjendanna skólavist. „Það eru einhverjir samþykktir inn en ekki margir,“ segir Gísli. Hann segir misjafnt um hvers konar nám Afríkumennirnir sæki en nám í viðskipta- fræði og verkfræði þyki eftirsóknarverð- ast. „Menn komast hins vegar ekki í þessar greinar nema hafa mjög gott vald á íslensku þannig að þangað fara þeir ekki beint,“ segir Gísli. Hann segir sitt starf felast í því að meta próf umsækjendanna. „Þótt við fáum 800 um- sóknir er ekki þar með sagt að við þurfum að fara í gegnum þær allar vegna þess að aðeins hluti umsækjendanna skilar inn gögnum. Þetta þurfa að vera boðleg gögn. Við viljum fá frumrit af prófvottorðum. Það er því alls ekki þessi stóri hópur sem kemur til skoð- unar. Vinnan er nú nóg samt,“ segir Gísli. Gísli segir upp og ofan hvort hinir afrísku umsækjendur, sem flestir eru karlar, hafi það grunnnám að baki sem dugi til umsóknar um nám á háskólastigi. „Það er án efa draum- urinn hjá mörgum þessara umsækjenda að fá aðsetur til frambúðar. Við höfum líka grun um að margir sæki um skólavist í þeirri von að komast inn í landið en svo verði minna um nám en að var stefnt.“ Vel á annað þúsund erlendra stúdenta sækir um skólavist við Háskóla Íslands ár hvert en hlutfall þeirra af nemendum skólans liggur á bilinu 5-10%. Flestir erlendra nem- enda við skólann eru frá Evrópu, einkum Norðurlöndunum, Þýskalandi og Póllandi en talsverður fjöldi frá Bandaríkjunum og Kanada. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Þótt við fáum 800 umsóknir er ekki þar með sagt að við þurfum að fara í gegnum þær allar. VEður föstudagur laugardagur sunnudagur StreKKingSvindur og rigning eða SKúrir, einKum Sunnan- og SuðveStanlandS. FreKar Hlýtt. HöFuðborgarSvæðið: DáLítiL rigning annað SLagið og HLý goLa. roFar miKið til á landinu, þó bleyta Sunnan- og SuðauStanlandS. áFram Hlýtt. Hægari Sa-átt. HöFuðborgarSvæðið: Skýjað með köfLum og að meStu Þurrt. HvöSS S-átt þegar lÍður á daginn og með rigningu, einKum veStatil. létt- SKýJað norðauStan- og auStanlandS. HöFuðborgarSvæðið: ágætiS veður framan af Degi, en Síðan HveSSir með rigningu. loks regn sunnanlands ekki er það oft sem beinlínis er ákall um rigningu, en svo er nú eftir þurra vinda með hvimleiðu sand- og öskufjúki. Skil frá lægð munu ganga yfir í dag. Dálítil riging með þeim um tíma um mest land, einkum sunnantil. á morgun, laugardag, verðum við á milli lægða og mikið til úrkomulaust og bjart, en einhver rigning suðaustantil. á sunnudag nálgast önnur myndarleg lægð. með henni hvöss S- og Sa-átt þegar líður á daginn og ringing vestantil. en þessa helgina er útlit fyrir að hlýtt verði og íbúar norðanlands fá sumar- auka samkvæmt þessari spá. 13 11 14 12 12 14 13 16 12 12 11 11 16 15 11 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! frábært veður í miðborg- inni alla helgina. Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 18-19 og á www.miðborgin.is 4 fréttir Helgin 16.-18. september 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.