Fréttatíminn - 16.09.2011, Blaðsíða 27
Kauptúni | S. 566 7070 | www.habitat.is
LJÓS Í myrKri
20%
afsláttur af öllum ljósum,
lömpum og skermum
með eiginmanninum Snorra Peter
sen og hefur því í nógu að snúast.
„Á æfingatímabilinu upplifði ég oft
að geta samsamað mig mjög því
sem karakterinn var að ganga í
gegnum. En eftir að ég byrjaði í há
skólanámi versnaði það um helm
ing,“ segir Þórunn og hlær.
„Að vera í náminu krefst mikils
skipulags, það verður allt að fara
inn í stundatöfluna. Ég verð að
skipuleggja hvenær ég á að læra
heima, sinna fjölskyldunni og lifa
lífinu. Ég lærði mjög mikið af því að
leika Helen í Sellófón því hún tekur
öllu með bros á vör. Einhvern tíma
var Björk að leiðbeina mér á æfingu
og sagði við mig á ensku „You´ve
got to love it“ og það er svo fyndið
að ég hugsa oft til þessa gullkorns.
Það er svo mikilvægt að hugsa já
kvæðar hugsanir og ég er að kynn
ast því enn betur í sálfræðinni.
Innan fræðigreinarinnar eru svið
sem tengja hugsunina við líkamann
og það er viðurkennt að hugsunin
getur haft áhrif á líkamsstarfsem
ina. Það kom mér á óvart að ég hef
brennandi áhuga á lífeðlisfræði
legri sálfræði. Allt sem tengist
taugafrumum og heilastarfseminni
heillar. Það er líka svo margt sem
er ókannað og þarft að komi í ljós.
Hver veit nema maður eigi eftir að
gera einhverjar uppgötvanir,“ segir
Þórunn og brosir.
Opna kannski stofu
„Það er nauðsynlegt að stokka upp
í lífinu öðru hvoru og ég er forvitin
að sjá hvert námið leiðir mig. Sál
fræðin getur nýst mér í leiklistinni
á margan hátt – til dæmis ef ég
myndi fara út í leikstjórn eða skrifa
handrit en það kitlar mig þessa
stundina. Svo getur vel verið að
ég fari alla leið, fari í meistaranám
í klínískri sálfræði og opni stofu.
Ég er heppin að eiga mörg áhuga
mál. Mig langar að bæta við mig
í söngnum, læra matjurtarækt og
einhvern tíma í lífinu ætla ég að
læra leirlist. Mig er búið að langa til
þess síðan ég var fimm ára; langar
mikið að eignast svona keramík
snúningsbekk.“
Þórunn segist líka hafa gaman
af því að mála málverk. „Það er
aldrei að vita nema maður geti
sinnt hobbíunum þegar maður er
orðinn virðulegur sálfræðingur. Ég
er líka mikil áhugamanneskja um
matreiðslu. Ég held að það sé best
að hafa alltaf eitthvað að hlakka til,
hafa alltaf eitthvað fyrir stafni og
hafa umfram allt áhuga á því sem
maður er að gera. Það er betra að
vera með langan lista af einhverju
sem maður á eftir að gera en að
hlakka aldrei til neins. Svo gefst
vonandi nægur tími í framtíðinni til
að takast á við það.“
Þóra Karítas Árnadóttir
thorakaritas@frettatiminn.is