Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.09.2011, Page 8

Fréttatíminn - 16.09.2011, Page 8
Tekjuhalli hins opin- bera 155 milljarðar 3,7% Aukning bæði HeildArteknA og -gjAldA ríkisins milli árAnnA 2009 og 2010 September 2011 Hagtíðindi tekjuhalli hins opinbera var 155 milljarðar króna á síðasta ári eða rúmlega 10% af lands- framleiðslu, sem er svipaður halli og árið 2009. Þessi óhagstæða niðurstaða skýrist fyrst og fremst af miklum samdrætti í tekjum hins opinbera vegna 11% samdráttar í landsfram- leiðslu árin 2009-2010 á sama tíma og útgjöldin jukust verulega vegna mikillar skuldsetn- ingar og aukins atvinnuleysis, að því er fram kemur í Hagtíðindum. Heildartekjur námu 637 milljörðum króna árið 2010 og jukust um 23 milljarða króna milli ára, eða 3,7%. Útgjöld voru um 792 milljarðar og jukust einnig um 3,7%, eða um 28,6 milljarða króna milli ára. - jh Hvert stefnir evrópa? samtök atvinnulífsins og samtök iðnaðarins efna til opins morgunverðar- fundar í dag, föstudaginn 16. september, á Hilton reykjavík nordica, kl. 8.30-10. efni fundarins er staða atvinnulífsins í evrópu og hagvaxtarhorfur ásamt mögulegum áhrifum á íslenskt efnahags- líf. Aðalræðumaður er Philippe de buck, framkvæmdastjóri businesseuroPe, Samtaka atvinnulífsins í Evrópu, en yfir- skrift erindis hans er european business outlook. Þátttakendur í umræðum að loknu erindi de bucks eru már guð- mundsson seðlabankastjóri, árni oddur Þórðarson, forstjóri eyris og stjórnar- formaður marels, og Þorgerður katrín gunnarsdóttir alþingismaður. Fundurinn fer fram á ensku í aðalsal nordica. -jh S toðkennarinn er námsvefur sem Starkaður Barkarson hefur haldið úti og þróað undanfarin átta ár. Fyrst um sinn var eingöngu um að ræða stafsetn- ingarvef fyrir unglingastigið en fljótlega bættust önnur námskeið við. Starkaður segir að vefurinn hafi tekið stakkaskiptum, möguleikar í síbreytilegu umhverfi netheimsins til meiri gagnvirkni og þægilegra viðmóts aukist stöðugt. „Nú býður Stoðkennarinn upp á námskeið i stafsetningu, málfræði, bókmennt- um, stærðfræði, ensku, dönsku, tölvunámi og samfélagsfræði. Áherslan er sem fyrr á unglinga- stigið en við erum smám saman að fikra okkur niður á miðstigið,“ segir Starkaður. Hann segir að það sem greini Stoðkennarann frá flestum öðrum námsvefjum sé sú staðreynd að allt sem nemandi gerir sé skráð til bókar. „Þannig er hægt að nota vefinn á markvissan hátt, jafnt í skóla sem heima fyrir. Einnig bregst Stoðkennarinn ávallt við villum nemandans og útskýrir fyrir honum regluna sem hann braut. Að nota Stoðkennarann er því að mörgu leyti eins og að hafa kennara sér við hlið sem bæði fylgist með gengi þínu og leiðréttir villurnar,“ segir Starkaður. Stoðkennarinn býður upp á þrenns konar aðgang; nemenda-, kennara- og foreldraaðgang. Nem- endur fá aðgang að þeim nám- skeiðum sem þeir eru skráðir í, geta unnið verkefni á eigin hraða og eins oft og þeir vilja og fylgst með einkunnum bætast við í ein- kunnabækur sínar. Kennarar geta fylgst með gengi og virkni allra nemenda sinna og foreldrar geta gert slíkt hið sama gagnvart sínu barni. Stoðkennarinn er því m.a. kjörinn til heimanáms, að sögn Starkaðar. Holtaskóli í Keflavík er einn þeirra skóla sem hafa um árabil nýtt sér krafta Stoðkennarans. Björn Víkingur, kennari við skólann, segir vefinn hafa komið að góðum notum undanfarin ár. „Forritið nýtist sem sjálfstætt ítarefni við annað námsefni þar sem efnisatriði þess smellpassa við efnisatriði kennslubókanna og námskrár,“ segir Björn. Auk skóla geta einstaklingar keypt sér áskrift að Stoðkennaranum. Starkaður segir að fyrstu árin hafi rekstur Stoðkennarans verið þungur enda markaðurinn erfiður. Skólum sé gert að kaupa af ríkis- rekinni Námsgagnastofnun og lítið fé sé til annarra kaupa. Smám saman hafi hins vegar æ fleiri skól- ar og einstaklingar tekið við sér á sama tíma og menntamálaráðu- neytið hóf að styrkja vefinn. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is  Stoðkennarinn GaGnvirkur námSvefur Að mörgu leyti eins og að hafa kennara sér við hlið stoðkennarinn bregst ávallt við villum nemandans og útskýrir fyrir honum regluna sem hann braut. starkaður barkarson hefur haldið stoðkennaranum, gagnvirkum námsvef, úti í átta ár. með honum á myndinni er guðmundur ingi jónsson verkefnisstjóri. Anton Máni hefur verið okkar maður í fasteignaviðskiptum undanfarin ár. Hann er yrvegaður, nákvæmur og sérlega samningalipur, sérstaklega góður í mannlegum samskiptum. „ “ Hann er fylginn sér og nær árangri. Hildur Jónsdóttir, íbúðarkaupandi og seljandi Anton Máni Svansson Sölufulltrúi antonmani@remax.is Hringdu núna 615 0005 Frítt verðmat Þórarinn Jónsson hdl. lögg. Fasteignasali www.unwomen.is Fiðrildaáhrif Skráðu þig núna á www.unwomen.is eða hringdu í síma 552-6200. Hafðu Þitt framlag skiptir sköpum í lífi kvenna og barna þeirra um heim allan. Líf í árvekni Mindful Living Sálfræðistofa Björgvins Ingimarssonar www.salfraedingur.is Skráning í síma 860 4497 eða bjorgvin@salfraedingur.is Helgarnámskeið í einfaldari og streituminni lífsstíl 1. og 2. október gegn: •streitu •verkjum •vefjagigt •síþreytu •ofþyngd •kvíða 8 fréttir Helgin 16.-18. september 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.