Fréttatíminn - 16.09.2011, Blaðsíða 22
þetta,“ segir hann, „en sem betur fer er
ég alinn upp í fjölskyldu þar sem þung-
lyndi þekkist og aldrei verið feimnis-
mál að ræða slíkt. Ég varð fyrir áfalli 19
ára, svo í leiklistarnámi í Bretlandi um
1991 og síðan við skilnað í kringum árið
2000. Þá magnast áhrifin. Af tilviljun
var ég sendur til Grétars Sigurbergs-
sonar geðlæknis sem, ásamt Sigríði
Benediktsdóttur sálfræðingi, var farinn
að kanna ADHD hjá fullorðnum – en
ekki eingöngu börnum. Eftir að ég
hafði lýst mínu þunglyndi í tíu mínútur
stoppaði hann mig af og benti mér á að
athuga aðra þætti því honum þætti ekki
ólíklegt að þunglyndið væri afleiðing
athyglisbrests. Ég fór til Sigríðar Bene-
diktsdóttur í viðtöl og tók með mér gögn
heim sem ég bar undir mömmu, sem er
kennari. Hún sagði strax „nei, þú varst
aldrei með athyglisbrest“ en tveimur
dögum síðar bað hún mig að setjast hjá
sér og við fórum vandlega yfir spurning-
arnar. Þá kom í ljós að þar voru ýmis frá-
vik sem mamma hafði orðið vör við hjá
mér. Margir sem eru með ADHD skora
hátt í ýmsum hlutum greindarprófs, en
hrapa svo niður í öðrum. Sumt sem mér
fannst ég gera mjög vel, var hreinasta
hörmung!“
Hann segir rítalín mjög svipað am-
fetamíni og þess vegna sæki fíklar í það
til að fá örvun.
„Hjá fólki með athyglisbrest gerist
þetta ekki, við förum ekki upp andlega,
heldur róumst. Með þessum lyfjum
getum við haldið utan um heiminn. Mér
skilst að það skorti gríðarlega rann-
sóknir bæði hér heima og erlendis um
langtíma verkanir þessara lyfja, en
samkvæmt því sem ég hef lesið bendir
allt til þess að þau séu ekki ávanabind-
andi. Þeir sem eru með athyglisbrest
og prófa amfetamín eða kókaín upplifa
gjarna sömu áhrif, en munurinn er sá að
þau efni eru full af alls kyns skít og eru
ávandabindandi. Áfengi getur líka slegið
á athyglisbrestinn, slekkur á einkenn-
unum eða slævir frekar en hitt. En þetta
eru allt hlutir sem hafa miklar hliðar-
verkanir sem menn átta sig of seint á
og leiðast út í misnotkun á ávana- og
fíkniefnum. Persónulega virðist áfengi
róa hugann, en um of, þannig að maður
gerir svo sem ekkert af viti, frekar en
aðrar byttur! Til viðbótar er maður svo
illa upplagður daginn eftir og það hefur
vissulega áhrif á athyglisbrest til hins
verra. Ég tel að þeir einstaklingar sem
fá einhverja hjálp snemma – helst á
barnsaldri – séu líklegri til að halda sig
frá ávanabindandi efnum, misnotkun á
áfengi eða öðrum óþverra.“
Hentar ekki öllum börnum að sitja
kyrr í stórum bekk
Vilhjálmur segir margar leiðir fyrir
hendi til að hjálpa börnum og full-
orðnum. „Lyfin sem slík geta verið
nauðsynleg, hliðarverkanir eru taldar
litlar og það getur skipt meira máli að
V
ilhjálmur Hjálmars-
son, leikari, leik-
stjóri, tölvusnillingur
og auglýsingarödd,
er einn tíu þúsund
fullorðinna einstaklinga á Íslandi
sem eru með ADHD eða athyglis-
brest og ofvirkni. Sjálfur vill hann
ekki flokka ADHD sem sjúkdóm og
segir reyndar til kenningar um að
athyglisbrestur hafi eitt sinn verið
eiginleiki sem nýttist til dæmis
þeim sem fóru út til veiða frekar en
að sitja heima við.
Stundum verður yfirflæði af
upplýsingum
Vilhjálmur segist síður en svo hafa
verið eitt þeirra barna sem kölluð-
ust „óþekk“ áður en greining kom.
„Ég var meira eins og hlédrægu
stelpurnar. Nú er talað um athyglis-
brest með eða án ofvirkni og ég er
sem sagt án ofvirkninnar. Ég hef
alltaf getað dundað mér tímunum
saman við ákveðið verkefni – en ég
þarf ákveðið áreiti, til dæmis þegar
ég er að éta í mig handbækur fyrir
tölvuforrit eða lesa leikhandrit,“
segir Vilhjálmur sem jafnframt
rekur „Nýja umboðið ehf.“ sem sér-
hæfir sig í innflutningi og þjónustu
á tækjum og tólum til kvikmynda-
gerðar, hljóð- og myndvinnslu.
„Til að búa mér til það hæfilega
áreiti sem ég þarf á að halda set ég
til dæmis á rólega tónlist, eins og
Mozart, eða fer á rólegan bar þar
sem ég þekki til og sest út í horn
og grúska. Ef ég þekki áreitið er
ég ekkert að velta því fyrir mér og
ég held fókusnum. Það sama geri
ég þegar ég fæ hlutverk og þarf
að stúdera það. Eins og ég skil
athyglisbrest er það þannig að við
tökum eftir mun meiru í umhverfi
okkar en við gerum okkur grein
fyrir. Venjuleg manneskja er með
heilastöðvar sem sía út það sem
ekki skiptir máli. Setjum svo að
við sætum núna á margmennum
stað þar sem fólk sæti við nokkur
borð og væri að tala saman. Fyrir
utan keyrðu nokkrir bílar. Meðan
þú værir eingöngu að meðtaka
það sem ég segði þér, væri ég að
meðtaka það sem þú spyrðir mig
um auk þess sem ég tæki inn allar
utanaðkomandi upplýsingar. Á góð-
um degi gæti ég haldið þræði með
þér, jafnvel hugsað samtal okkar á
öðru stigi en við erum nákvæmlega
að ræða, fundið eitthvað annað út
úr því, jafnvel sagt þér hvað fólkið á
næstu borðum var að segja og hve
margir bílar fóru fram hjá. Sumir
með ADHD eru með þráhyggju og
þeir gætu þá sagt þér hversu marg-
ir rauðir bílar fóru fram hjá, hversu
margir svartir og svo framvegis.
Ég upplifi þetta sem eiginleika. Á
góðum degi er ég að nýta mér þetta
allt saman. Á vondum degi er þetta
algjört yfirflæði af upplýsingum. Þá
fer allt í kerfi.“
Það þarf að læra að lifa með
ADHD
Vilhjálmur hefur verið á rítalíni og
er nú á forðalyfinu Concerta. „Það
hefur verið mikið í umræðunni
hvort það séu fráhvörf af þessum
lyfjum, en ég hef hætt viljandi á
þessum lyfjum. Til þess að gera
það þarf ég að vera í góðu líkam-
legu og andlegu ástandi. Ég get
hætt á einum degi og finn ekkert
fyrir því og eins gleymi ég jafnvel
að taka það inn að morgni – enda
með athyglisbrest! – en þá finn
ég fyrir því á miðjum degi. Ekki
vegna fráhvarfa, heldur vegna þess
að hugurinn er úti um allt. Lyfin
virðast setja í gang þessar síur í
heilanum þannig að maður getur
haldið utan um hlutina. Þeir sem
eru mjög ofvirkir geta upplifað
eðlilegt ástand undir lyfjagjöf eins
og aðrir upplifa vanvirkni – enda
vanir miklum asa – en ég hef aldrei
verið það mikið úti í kanti. Lyfjagjöf
getur verið nauðsynleg – en ekki
endilega, og alls ekki eingöngu.
Þetta gengur mjög mikið út á að
finna út hvað það er í umhverfinu
og samskiptum sem hefur áhrif á
daglegt líf viðkomandi. Maður þarf
að læra að lifa með þessu og hafa
til dæmis fasta reglu á hlutunum:
sofa reglulega, vakna á sama tíma,
vera ekki með kaos í kringum sig ef
maður kemst hjá því. Ég er farinn
að hafna verkefnum eða beina þeim
til annarra. Í erfiðum málum, eins
og þegar verið var að setja upp
tækin fyrir Latabæ 2005, þá bjarg-
aði mér oft að ég þurfti að fara og
lesa inn auglýsingar. Á meðan ég
var í myndverinu og allt á fullu, sá
ég ekki kjarnann. Um leið og ég var
kominn út fyrir Garðabæinn raðað-
ist þetta allt saman og ég hringdi
og stakk upp á mögulegri lausn!
Stundum er gott að hverfa frá til að
sjá heildarmyndina.“
Þunglyndi líklega afleiðing
athyglisbrests
Vilhjálmur segist kannast við
þunglyndi hjá sér frá því hann var
í gagnfræðaskóla, þótt aðrir yrðu
þess ekki varir. „Ég fór leynt með
Góður eiginleiki hjá mér
að vera með athyglisbrest
Anna
Kristine
ritstjorn@frettatiminn.is
ADHD stendur fyrir Attention
Deficit Hyperactivity Disorder
sem útleggst á íslensku
athyglisbrestur með ofvirkni.
Í gegnum söguna er
að finna fjöldann allan af
heimildum sem lýsa hegðun
barna þannig að í dag væru
þau greind með ADHD eða
athyglisbrest með ofvirkni.
Fyrstu opinberu heimildirnar
þar sem læknir lýsir þessum
einkennum má rekja allt
aftur til Hippókratesar, föður
læknisfræðinnar, hálfri öld
fyrir Krist. Elsta nútíma
læknisfræðilega heimildin
er hins vegar frá árinu 1902
þar sem breski læknirinn
George Still lýsir börnum með
ADHD-einkenni, þó svo að
þau kölluðust það ekki þá,
en einkennin voru hin sömu.
Hugtakið ofvirkni kom síðan
fram upp úr 1960 og farið
var að nota það í greiningar-
kerfum árið 1968.
Engin lækning er til við
ADHD, þar sem ADHD telst
ekki vera sjúkdómur heldur
röskun, en það er ýmislegt
sem gera má til að halda
einkennum í skefjum.
Öll börn hafa til dæmis
þörf fyrir hrós en börn með
ADHD þrífast hins vegar
gjörsamlega á hrósi því þau
eru alltaf að upplifa ósigra í
lífinu. Hrós styrkir æskilega
hegðun og eflir sjálfsmynd
barna með ADHD. Stuðningur
og skilningur skiptir bæði börn
og fullorðna með ADHD mjög
miklu máli og vel skipulagt
umhverfi.
Mikil áhætta fylgir
unglingsárunum hjá ein-
staklingum sem eru með
ómeðhöndlað ADHD því
þeir eiga frekar á hættu að
stunda áhættuhegðun eins
og óábyrgt kynlíf, misnotkun
vímuefna og að sýna and-
félagslega hegðun. Það má
reyndar geta þess að 50 til
70 prósent fanga í íslenskum
fangelsum glíma við ADHD
samkvæmt rannsóknum.
Sumir þurfa að vera á lyfj-
um alla ævi; aðrir ekki. ADHD
er mjög víðtæk röskun og
hefur mismikil áhrif á daglegt
líf fólks. Einkennin minnka og
breytast með aldrinum. ADHD
er taugaþroskaröskun sem
kemur yfirleitt fram snemma
á ævinni. ADHD er algerlega
óháð greind en getur haft
víðtæk áhrif á daglegt líf eins
og starfshæfni, félagsfærni
og námsgetu. Ekki er hægt
að kenna slöku uppeldi eða
óöryggi í æsku um ADHD en
rannsóknir hafa sýnt að arf-
gengi er langstærsti þátturinn
sem orsakavaldur ADHD eða
í 60 til 80 prósentum tilfella.
Þá hefur komið fyrir að ein-
staklingar sýni einkenni ADHD
í kjölfar heilablæðingar og
höfuðáverka.
Í tilefni vitundarvikunnar
hafa ADHD-samtökin gefið
út nýjan fræðslubækling sem
nálgast má frá og með næstu
viku á skrifstofunni að Háa-
leitisbraut 13, á vefnum www.
adhd.is <http://www.adhd.
is>, á heilsugæslustöðvum
og hjá félagsþjónustum um
allt land.
Einkennum fyrst lýst hálfri öld fyrir Krist
Í tilefni af evrópskri ADHD-vitundarviku 18. til 25. september hrinda ADHD-samtökin af stað kynningarátakinu: ATHYGLI – JÁ TAKK! Slagorð vikunnar eru Skilningur skiptir máli – Stuðningur skapar sigurvegara!
Talið er að hér á landi glími 6.000 börn og 10.000 full-
orðnir einstaklingar við ADHD, sem er athyglisbrestur
með eða án ofvirkni og hvatvísi. Arfgengi er talið 60 til
80 prósent en einnig má tengja þetta ýmsum áföllum,
heilaskaða, sjúkdómum eða slysum.
Ég hef upp-
lifað það að
fara á bar,
fá mér í glas
og lenda
í hörku-
skemmti-
legum
samræðum –
fengið brillj-
ant hugmynd
og skrifað
hana niður
um nótt-
ina. Næsta
morgun sé ég
að þetta er
algjör steypa!
Framhald á næstu opnu
Vilhjálmur Hjálmarsson „Á góðum degi er ég að nýta mér þetta allt saman. Á vondum degi
er þetta algjört yfirflæði af upplýsingum. Þá fer allt í kerfi.“ Ljósmynd/Hari
22 viðtal Helgin 16.-18. september 2011