Fréttatíminn - 16.09.2011, Page 40
Á þessu hausti hafa tvær nýjar bækur um
prjón glatt áhugamenn um þá fornu íþrótt.
Til hvers erum við að læra að prjóna? spurðu
Múla-bræður aldna frænku sína á Vopnafirði.
Það er gott að kunna það ef þið verðið
blindir, svaraði hún.
Síðsumars kom út bók eftir Guðrúnu
Magnúsdóttur um vettlinga og sokka og
nú er komin bók í stóru broti hjá forlagi
Vöku-Helgafells með uppskriftum að peysum.
Það er Ístex, arftaki Álafoss og Gefjunar á
Akureyri, sem stendur að útgáfunni. Í henni
eru formálar um upptöku prjóns og sögu hér
á landi eftir Elsu E. Guðjónsson og Magnús
Guðmundsson sem bæði voru sérfræðingar á þessu sviði handmennta. Síðan er í bókinni
glæsilegt úrval uppskrifta að prjónlesi frá því um miðja síðustu öld til okkar daga. Bókin er
glæsilega úr garði gerð og verður örugglega mörgum augum – og höndum – gleðigjafi. -pbb
Með nýtt á prjónunum
Bókadómar Ný Náttúra – myNdir frá ÍslaNdi og ásfjall
Í tengslum við messuna miklu í Frankfurt er búið að setja saman úrval af íslenskum ljósmyndum
sem fjórar mikilsráðandi konur í safn-
heimum ljósmynda hafa sett saman:
Þær Celine Lunsford hjá Forum Fotog-
rafie í Frankfurt og Christiane Stahl hjá
Alfred Ehrhardt Stiftung í Berlín nutu
við val mynda frá öllum tíma íslenskra
ljósmyndara þeirra Ingu Láru Baldvins-
dóttur og Maríu Karenar Sigurðardótt-
ur. Bók fylgir sýningunni og er komin
út hér landi hjá forlagi Crymogeu. Alls
geymir hún 140 ljósmyndir og hér
fallast í faðma myndlistarmenn okkar
daga og frumherjar á borð við þá Sigfús
Eymundsson, Magnús Ólafsson, Ólaf
Magnússon og Loft. Þetta er fallega
brotin bók, prýðilega prentuð, með ævi-
og myndaskrám.
Hér kallast tímarnir á: RAXI
stillir sér upp við hlið hinnar mögnuðu
myndar Ólafs Magnússonar af Flosa-
gjá; klettar, vatn og einmanar. Kofa-
hreysi Magnúsar Ólafssonar og Ingvars
Högna, Sigurður Guðmundsson og
Gunnar Rúnar með ólíka náttúrusýn.
Valinu er í bókinni stillt upp í tvennur af
nokkru hugviti þegar betur er að gáð.
Lesandi, því við lesum myndir eins og
veður og andlit, verður að beita fleiru en
sjóntauginni. Uppstilling og val kallar á
skoðun og niðurstöðu. Valnefndin stillir
gjarna saman viðfangsefnum, bæði í
formum og efni, mótívum og mynstr-
um. Við fyrstu sýn ægir öllu saman en
grandskoðun leiðir annað í ljós.
Þá kemur líka í ljós með samstill-
ingunni að við erum enn að kljást við
svipuð viðfangsefni og áður. Náttúra
okkar hefur allt frá upphafi ljósmynd-
unar verið uppstillt, hún er ekki tilfall-
andi viðfangsefni. Skráning hennar
er uppstilla allan tíma fagsins á eynni.
Auðvitað er valið ekki óumdeilanlegt,
einhverjir liggja örugglega óbættir
hjá garði, enda eru úrvali sem þessu
takmörk sett. Bókin leiðir líka í ljós að
viðfangsefni sem hún sleppir, náttúru-
myndir Ólafs Elíassonar og húsamyndir
Dieters Roth, eru ekki hér. Aftur er
hér fossaröð Rúríar sem sýnir hversu
næmur Ólafur er á viðfangsefni.
Bókin bregður líka ljósi á hvað er
breytt, hvernig samfélagshættirnir hafa
tilhneigingu til að skapa nýjan ramma
umhverfis reynslu sem gengur aftur
og aftur frá tíma til tíma, í samfellum
sem bornar eru uppi af sama efni, sama
anda, en nýjum andlitum, nýju um-
hverfi.
Nýtt umhverfi er vissulega partur
af náttúrusýn okkar nú. Meðal yngstu
manna í þessari bók, sem er prýðileg,
er Pétur Thomsen. Á safni rakst ég ný-
lega á bók hans frá sýningu sem staðið
hefur yfir í Þjóðminjasafni og mér hafði
ekki borist: Ásfjall, en um hverfið í
hlíðum þess hefur Pétur farið skipulega
frá 2008 og skráð í myndir hvaða breyt-
ingum það hefur tekið. Á sýningunni
voru 40 myndir og í bók henni samhliða
eru þær birtar. Sigrún Sigurðardóttir
skrifar inngang að verkinu. Þar lýsir
hún stöðu byggingarsvæðisins sem
farið var að breyta í hverfi nokkru fyrir
hrun og stendur enn eins og þar hafi
farið um fár; iðnar hendur eru horfnar
og eftir standa hálfköruð hús. Bókin er
merkilegur minnisvarði um hrunið og
ber Pétri góða sögu.
Bæði þessi rit eru skemmtileg viðbót
við flóru ljósmyndabóka sem heimta af
okkur lesendum afstöðu og um leið von-
andi skilning.
32 bækur Helgin 16.-18. september 2011
Bókadómur adam og EvElyN iNgo schulzE
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Salka hefur sent frá sér lítið hand-
hægt hefti, Hollt nesti heiman að,
eftir þær Margréti Gylfadóttur,
Sigurrós Pálsdóttur og Sigurveigu
Káradóttur sem geymir margar og
nýstárlega uppskriftir að nesti fyrir
börn, unglinga og fullorðna. Þar er
hollusta í fyrirrúmi og áhersla lögð
á handhægar og skjótar lausnir á því
sem fer í malinn. Þjóðin hefur enda
gengið til verka sinna frá örófi alda
með vel búinn nestismal svo að hún
hafi nóg að bíta og brenna í amstri
dagsins. Bókin er fallega frágengin
og full af skemmtilegum hugmyndum sem nú er að fram-
kvæma síðla kvölds eða árla morguns í eldhúsum okkar. -pbb
Nýjar uppskriftir í nesti
Náttúruljósmynd-
ir í nýju úrvali
Franska svítan hennar
Iréne Némirovsky, sem
dó í Auschwitz 1942,
stekkur beint á topp
aðallista Eymunds-
sonar. Merkileg bók
sem var ekki gefin út
fyrr en 2004.
fröNsk svÍta
á toppNum
adam og Evelyn
Ingo Schulze
Mál og menning, 306 bls.
2011
Einn gesta á bókmenntahá-
tíð í síðustu viku var Ingo
Schulze, vinsæll höfundur í
heimalandi sínu, alinn upp
í nágrenni Dresden og því
Austur-Þjóðverji. Eru þeir
til? Já, þeir eru enn til, herma
fregnir. Þegar Vestur-Þýska-
land innlimaði austurhlutann
breyttust hagir manna þar
austur frá mikið. Úr deiglunni
hafa sprottið hópar þegna
sem lifa í samfelldum saman-
burði þess sem var og þess
sem er. Raddir af þessum
toga heyrast hvaðanæva af
áhrifasvæðum sovéska heims-
veldisins og fara ekki lágt.
Ingó – svo við köllum hann upp á íslenskan rit-
hátt – gerir sér mat úr þessari nútímagoðsögn um
hinn horfna heim samfélaga sósíalismans austur
frá og stillir henni upp í samhverfu við brott-
rekstur þeirra Adams og Evu úr paradís forðum.
Í yfirskrift verksins vekur hann athygli á því að
þau hjón voru um síðir kanóníseruð og fengu
helgidag og stétt sér til heilla, aðfangadag og
skraddara. Því erum við í betri fötunum 24. des.
Adam hans er kærulaus skraddari sem er veikur
fyrir feitlögnum konum, Eva hans gaf upp nám og
er nú daglaunakona. Hún kemst að framhjáhaldi
Adams og það hleypir upp áætlunum þeirra um að
fara í sumarferð 1989 til Ungverjalands. Hún fer á
undan og hann eltir.
Sagan er skemmtileg, fallega hugsuð og dregur
upp skýra mynd af því hvernig glundroðinn var á
tjaldstæðum Ungó þetta sumar, en um landamæri
þess var auðvelt að komast í vestrið sæla. Hneigð
sögunnar leiðir aftur í ljós að þegar þangað var
komið reyndist sælan tál. Samfélagið sem þau
hurfu frá, Adam og Eva, var annað en þau trúðu.
Sagan er uppfull af fallegum myndum, skemmti-
lega hugsuðum samtölum, lofi um hið smáa sem,
þegar allt kemur til alls, gefur lífinu mest gildi
þegar upp er staðið. Þýðing Elísu Bjargar Þor-
steinsdóttur er prýðileg í stíl og málfari. -pbb
Um paradísarmissi
austan járntjalds
ásfjall
Pétur Thomsen
Þjóðminjasafn Íslands
120 bls. 2011
Tvö rit um nýja
og gamla nátt-
úrusýn í ljós-
myndum.
Sokkaprjón. Prjónað úr íslenskri ull.
Ingo Schulze.
Ný náttúra –
myndir frá Ís-
landi
Crymogea
164 bls. 2011
4342
Jónsmessunótt á Gróttu, 1993 –
Einar Falur Ingólfsson, f. 1966.
Úr myndröðinni Hvergiog, 2010 –
Katrín Elvarsdóttir, f. 1964.
Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands
hafðu það
um helgina
Bleikt slaufunammi - Pink ribbon candy
Sölustaðir:
N1, Iða, Mál og menning, Háma, Pósturinn, Skeljungur, Debenhams,
Samkaup-Strax, Samkaup-Úrval, Nettó, Kaskó og Melabúðin.
www.faerid.com