Fréttatíminn - 16.09.2011, Síða 45
H
eimur fæðubótaefnanna
er langt í frá einfaldur og
augljós. Fjöldinn allur af
þessum efnum er ekki
raunverulega hollur og í
ofanálag er margt af þessu
bragðvont. Nákvæmlega þetta olli því að
Danirnir Per Mirazov Jensen og Thomas
Kjærgaard lögðust í rannsóknarvinnu og
komu síðan fram á sjónarsviðið með Nutram-
ino fæðubótarefnin í Danmörku fyrir hart-
nær tíu árum. Nutramino hefur notið mikillar
velgengni í heimalandi sínu og er að sögn
félaganna orðið að ákveðnum lífs-
stíl, enda nánast allar líkams-
ræktarstöðvar þarlendis sem
bjóða vöruna.
Þeir hafa hægt og bítandi
verið að færa út kvíarnar
og fyrr á þessu ári hófu
þeir samstarf við ís-
lenska fyrirtækið
Europe Drinks
ehf., en fram-
kvæmdastjóri
þess er Einar
Þór Þórhallsson
sem segir helsta
markmið dönsku
framleiðendanna
frá degi eitt að
koma á markað-
inn með fæðu-
bótarefni sem
þeir vildu sjálfir
nota og gætu
boðið öðrum upp
á heilshugar.
„Mikið af fæðu-
bótarefnum sem
voru á markað
num voru fram-
leidd í Bandaríkj-
unum þar sem hægt er að nota grá svæði í
lagaumhverfi til að dulbúa sykur og slá ryki í
augu neytenda með auglýsingabrellum,“ seg-
ir Per Mirazov Jensen, annar stofnenda og
forstjóri Nutramino og heldur áfram: „Með
Nutramino vildum við bjóða upp á vöru sem
væri raunverulega heilnæm og þar njótum
við góðs af ströngu regluverki í Danmörku
sem gerir okkur ómögulegt að framleiða eitt-
hvað annað en í hæsta gæðaflokki.“
Hann nefnir sem annað dæmi um gæða-
áherslur að hluti framleiðslu sé í samstarfi
við austurrískt mjólkursamlag þar sem
kýrnar ganga frjálsar í 3.000 metra hæð
yfir sjávarmáli nálægt hinum marg-
rómaða Zell am See. „Bændurnir
sem við eigum í viðskiptum við
eru aðeins með um fimm kýr að
meðaltali. Þær fá aðeins
gæðafóður og bænd-
urnir þekkja þær allar
með nafni,“ segir
Lars Reichling,
sölustjóri austur-
ríska mjólkur-
samlagsins og
meðframleiðandi
hjá Nutramino.
Honum er mikið
í mun að fylgja
vörunni eftir á
erlendri grund
og kynna hana vel
fyrir neytendum
og hann segist
stoltur að sjá hve
vel Nutramino
hefur verið tekið á
Íslandi.
Hann segir
miklar rannsóknir
liggi að baki hverri
vöru og nefnir þar
sérstaklega nýja línu, Pure Shape, sem tók
eitt og hálft ár í þróun. „Okkur langaði mikið
að koma með vöru sem hentaði konum sér-
staklega og Pure Shape er sá afrakstur,“ seg-
ir Reichling og útskýrir nánar: „Konur eru
oft tortryggnar sem neytendur á heilsuvörum
og þess vegna skiptir enn meira máli að bjóða
hágæða vöru með rétta næringarsamsetn-
ingu, það er hlutfall próteina, kolvetna, trefja,
fitu, vítamína og steinefna. Auk þess sem
við leggjum alltaf ríka áherslu á gott
bragð, þó án auk- og rotvarnarefna.
Þetta eru bæði drykkir og bitar
sem geta komið í stað máltíða og
sem millimáltíðir, 200 kaloríur
í hverjum skammti, og okkur
langar til að þetta geti verið bæði
að finna á líkamsræktarstöðvum,
í matvöruverslunum og sem
annars konar og hollari
skyndibiti á bensínstöðv-
um á Íslandi.“
Nýju línunni hefur
verið vel tekið af konum
í dagsins önn, hvort
heldur sem þær vilja
aukanæringu eða til
að grennast. „Offita
er orðin að gríðar-
legu lýðheilsuvanda-
máli og okkur langaði
að gefa konum, sem
þurfa að takast á við
þau mál, góðan kost.
Þarna er öll næringin
til staðar, skammturinn
nákvæmur, og síðast en
ekki síst bragðið, því
við vitum öll hvað það
er miklu skemmtilegra
að fá sér eitthvað sem
er bæði hollt og gott,“
segir Mirazov Jensen.
SöluStaðir og SamStarfSaðilar NutramiNo á ÍSlaNdi: Hagkaup, Kostur Dalvegi, 10-11, Nettó, Strax, Úrval, Kostur Njarðvík, Víðir Skeifunni, Lífstíll Vikars Keflavík, Nordica Spa, Heilsuakademían, World Class, Þín verslun
Melabúðin og Þín verslun Seljabraut. Sjá NáNar um SöluStaði og vöruúrval á: www.nutramino.is.
Lífsnauðsyn að vera í formi
GuðMuNDuR FELix GRéTARSSON, eigandi og
framkvæmdastjóri Stjörnusólar í Hafnarfirði, missti báða
handleggi í vinnuslysi árið 1998 og fékk fyrir nokkru lang-
þráð vilyrði fyrir handaágræðslu í Frakklandi. Hann segir
gríðarlega mikilvægt fyrir sig að vera í góðu líkamlegu
formi og að vörurnar frá Nutramino komi að góðu gagni
í þeirri vinnu. „ég þekki það að fenginni reynslu eftir
margar stórar aðgerðir, hve gott líkamlegt ástand skiptir
miklu máli þegar maður er að jafna sig,“ segir Guðmundur
og vísar þar í lifrarskipti sem hann gekk í gegnum fyrir
tíu árum. „Eftir aðgerðina var ég alveg ónýtur og gat nán-
ast ekki gengið, enda var ég ekki nógu vel á mig kominn.“
Núna standa hins vegar yfir stífar æfingar fyrir aðgerð-
ina í Frakklandi og þá hefur Guðmundur bæði verið að
nota Nutramino sem máltíð og líka íþróttadrykkina, bæði
isotonic og prótíndrykkinn xL, auk ístesins. „Þetta kom
mjög vel út þegar ég þurfti að ná af mér bumbunni og fyrir
maraþonæfingarnar,“ segir Guðmundur sem gerði sér lítið
fyrir og hjóp 10 km vegalegnd í Reykjavíkurmaraþoninu í
sumar, meðal annars til að safna áheitum til að fjármagna
handaágræðsluna. „Þegar maður er í miklum líkamlegum
átökum, hver sem þau kunna að vera, þarf aukanæringu.
ég tala nú ekki um ef maður hefur ekki aðgang að góðum
máltíðum. ég hef prófað ýmislegt en virkilega hrifist mest
af þessum vörum, bæði varðandi bragð og gæði, svo ég get
eindregið mælt með Nutramino,“ segir Guð-
mundur að lokum.
Göbbuð til betri heilsu
SANDRA LáRuSDóTTiR heildsali: „ég var nú
bara göbbuð til að prófa þetta í fyrsta sinn,“ segir
Sandra Lárusdóttir hlæjandi og heldur áfram: „ég
var bæði þreytt og pirruð á leið í gegnum Hagkaup
Garðabæ þegar mér var rétt flaska af ísteinu frá
Nutramino og lofað að þetta myndi hressa mig við
og það reyndist fullkomlega rétt.“ Sandra
drekkur í dag einn til tvo skammta af
ísteinu og hún segist líka nota „Red
fuel“-drykkina auk þess sem prótín-
drykkurinn er nýlega kominn inn í
myndina. „Ræktin er loksins komin í í
forgang aftur hjá mér eftir nokkurt hlé
og það er án efa Nutramino að þakka að
ég dreif mig. ég er svo miklu orku-
meiri, jákvæðari og hreinlega lífs-
glaðari. Blóðsykurinn er mun jafn-
ari, einbeitingin stór aukin og ég
afkasta mun meiru,“ segir Sandra
sem sjálf er í krefjandi starfi sem
heildsali. „ég er oft ginnkeypt fyrir
nýjungum og mér finnst gaman að
prófa nýja hluti. Hins vegar held
ég oft ekkert út voðalega lengi.
Núna er bara sagan allt önnur og
það held ég hafi líka að gera með
bragðið. Það er töluvert mál að
þurfa að pína ofan í sig hluti, en ég
hreinlega stoppa fólk og bendi því á
þessar vörur og þetta eru ekki einu
sinni mínar vörur, svo ég græði
ekkert á því. Þær bara eru að gera
mér svo gott að ég get ekki annað
en mælt hundrað prósent með
þeim við fólk sem ég vil vel,“ segir
Sandra að lokum.
Ný von fyrir nammigrísi
FANNAR KARvEL, íþróttafræðingur og einkaþjálfari: „Í
mínu fagi er mikilvægt að fylgjast vel með öllum vörum sem
tengjast heilbrigðu líferni. Maður er alltaf að leita að ein-
hverju heilsusamlegu sem er líka gott, því það fer sjaldnast
saman. Þarna fann ég í fyrsta sinn góða vöru sem líka var
bragðgóð,“ segir Fannar Karvel, íþróttafræðingur og einka-
þjálfari, sem segist hafa kynnst Nutramino upphaflega í
Danmörku. Þegar hann síðan sá vörurnar úti í búð á
Íslandi var hann ekki lengi að láta á reyna. „Milli-
málsbitarnir frá þeim eru svo góðir að þetta er eins
og að fá sér nammi á hverjum degi og það var upp-
haflega ástæðan fyrir áhuga mínum á vörunum,“
segir Fannar og hlær við og viðurkennir fús-
lega að ef venjulegt nammi væri ekki svona
óhollt væri hann eflaust nammigrís. Þegar
hann var kominn á bragðið fór hann að
skoða vöruna og komast að því að bragðið
var ekki það eina sem heillaði við Nutram-
ino. „Þetta er mjög vel samsett næring auk
þess sem það er gott að vita til þess að í Dan-
mörku eru gríðarlega strangar gæðakröfur, svo það
tryggir hágæða hráefni,“ segir Fannar sem til dæmis
notar hristinga eftir æfingar og hefur verið duglegur að
benda sínu fólki á góðar vörur. „Fólkið sem kemur til
mín og hefur verið að nota vörurnar er allt frá ungu fólki
sem er að takast á við offituvanda, upp í úrvalsdeildar-
menn og landslið í fótbolta,“ segir Fannar sem segist
sjaldnast þurfa að beita neinum heraga þótt mikið sé
tekið á í þreksalnum. „Flesta sem ráða sérfræðing á
þessu sviði langar að ná góðum árangri svo þeir láta
sig bara hafa það að gera eins og ég segi, og hlýða mér í
einu og öllu,“ segir hann hlæjandi að lokum.
Bragð-
góður
lífsstíll