Fréttatíminn - 16.09.2011, Page 55
tíska 47 Helgin 16.-18. september 2011
Ný myndabók frá
Lady GaGa
Síðustu tíu mánuði hefur söngkonan Lady
GaGa unnið að nýrri bók í samstarfi við
umdeilda ljósmyndarann Terry Richar-
dson. Bókin á að heita Lady GaGa X Terry
Richardson og mun innhalda ljósmyndir af
söngkonunni, teknar af Terry, í alls konar
skrautlegum múnderingum. Bókin kemur
út hjá Grand Central Publishing hinn 22.
nóvember næstkomandi og mun Lady
GaGa sjálf skrifa formála að henni. Forsíða
bókarinnar var birt nú vikunni og maður
hefði getað búist við djarfara útliti á söng-
konunni.
Fatalína fyrir
barnshafandi konur
Leikkonan Selma Blair, sem
eignaðist sitt fyrsta barn í lok júlí,
segir að það erfiðasta við með-
gönguna hafi verið að finna flottan
og fágaðan meðgönguklæðnað. Nú,
tveimur mánuðum eftir barnsburð,
vinnur hún hörðum höndum að nýrri
fatalínu, sem bæði er ætluð fyrir
barnshafandi konur og þær sem
nýlega hafa fætt barn. Hún segir
að allt sjálfsöryggi vanti á þessum
mánuðum og því verði línan þægileg
og kynþokkafull fyrir konur í öllum
stærðum.
Kynntu þér kostina á americanexpress.is
Viðbótartaska í flugi
til USA og 10kg umfram
í Evrópuflugi
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Premium Icelandair American Express®