Fréttatíminn - 16.09.2011, Side 62
Viltu stofna fyrirtæki?
Hnitmiðað námskeið um félagaform,
skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran
rekstrarkostnað, útgáfu reikninga, ábyrgð
stjórnenda fyrirtækja, fjármál o.fl.
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta
og geta þátttakendur valið um:
Morgunnámskeið:
kennt þriðjud. 20. sept., 27. sept og 4. okt. kl . 9-12
Síðdegisnámskeið:
kennt 21. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30-19:30
Námskeiðsstaður er Holtasmári 1, 6.hæ ð, Kópavogi (Hjartverndarhúsið).
Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M
Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Nánari upplýsingar
og skráning í síma 552-6090 eða á lexista@lexista.is
VR og fleiri félög styrkja
félagsmenn sína til þátttöku
á námskeiðinu.
Á sama tíma að ári
Gott er að geta gengið að hlutum vísum
þegar sumri hallar. Það á til dæmis við
um skólana. Þeir
hefjast alltaf á sama
tíma – síðustu vikuna
í ágúst. Annað sem
virðist vera orðið að
árlegum haustviðburði
er glæsikynningar sjón-
varpsstöðvanna á eigin
efni, jafnvel í beinni
útsendingu svo að enginn missi af dýrðinni.
Það þriðja sem virðist vera orðið árlegt er
hlutafjáraukning í Vefpressu Björns Inga
Hrafnssonar og félaga. Í það minnsta fjalla
Reynir Traustason og meðreiðarsveinar
hans á DV annað haustið í röð af alúð um
peningaskort og þörf á nýju hlutafé í vefveldi
Björns Inga sem spannar fjóra frétta- og af-
þreyingarmiðla, eina vefverslun og netbúðir
með hjálpartækjum ástalífsins og raftækjum.
Hvort Birni Inga tekst að ná sér í peninga
þetta árið, líkt og í fyrra, verður að koma í
ljós en eflaust lesum við um það í DV líkt og
um önnur ævintýri Björns Inga.
Kæra auglýsingar um verð
Stöð 2 hefur kært samkeppnisaðila
sinn Skjáinn til Neytendastofu
vegna auglýsinga þess síðarnefnda
þar sem neytendum er bent á að
áskrift að Skjánum sé töluvert
ódýrari en áskrift að Stöð 2. Í kær-
unni benda Stöðvar 2-menn á að
ekki sé um að ræða sambærilega
vöru þar sem útsendingartímar
Stöðvar 2 séu margfalt fleiri en á
Skjá einum og auk þess fái áskrifendur aðgang að Stöð 2 bíó og
Stöð 2 extra. Eftir því sem
næst verður komist hafa
forsvarsmenn Skjásins ekki
svarað Neytendastofu. Ljóst
er að litlir kærleikar eru á
milli sjónvarpsstöðvanna
sem gátu einu sinni staðið
þétt saman gegn sam-
eiginlegum óvini – Ríkissjón-
varpinu.
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
Tobba Marinós rýnir í saMfélagið í nýjuM þæTTi
Varalituð á háum hælum
með sprungið dekk
Tobba Marinós er ekki af baki dottin þótt harkaleg viðbrögð við fyrirhuguðum sjónvarpsþætti
hennar og Ellýjar Ármanns hafi orðið til þess að Ellý gekk úr skaftinu. Tobba fer í loftið á
Skjá einum á miðvikudaginn kemur með þáttinn Tobba. Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona,
ritstjóri Séð og heyrt og vinkona Tobbu, grínast með föstum innslögum í þáttunum sem Lillí
McSnillí þannig að þar blandast saman gaman og alvara því Tobba ætlar sér að kafa
ofan í erfið mál.
þ egar allt kemur til alls getur maður ekki treyst á neinn nema sjálfan sig og ég er nú ekkert
hrædd við þetta,“ segir Tobba fjallbrött
að vanda og vísar til harðrar umræðu
um þáttinn sem hún og Ellý ætluðu að
stjórna saman. „Svo er ég nú aldrei ein
þegar ég er með Lilju Katrínu með mér
en ég verð ein í settinu og fæ til mín gesti.
Oprah er ein og henni gengur nú vel.“
Tobba segir að þátturinn verði meira
en „bara blaður í setti“ og hún verði með
að lágmarki þrjú innslög í hverjum þætti.
„Ég hef trú á því sem ég er að gera og
ætla að taka fyrir verðug og góð málefni.
Þátturinn ætti því að höfða til fólks sem
er samfélagslega þenkjandi og það er
fásinna að þetta verði einhver froða.“
Tobba segist hafa verið dugleg við það
undanfarið að koma sér í ótrúlegustu
aðstæður í rannsóknum sínum fyrir þátt-
inn. „Ég gerði smá samfélagsrannsókn
fyrir fyrsta þáttinn þar sem ég var með
sprungið dekk úti í kanti. Annars vegar
á skítugri Toyotu í íþróttagalla, með gler-
augu og hárið í snúð – og hins vegar á
háum hælum, með bleikan varalit, í kjól
og með uppsett hár. Síðan taldi ég hversu
margir stoppuðu hjá illa staddri konu úti
í vegkanti í Garðabænum. Og niðurstöð-
urnar voru vægast sagt sláandi. Ég mun
ræða hvað kom út úr þessu, kurteisi Ís-
lendinga og kærleika þeirra til náungans
og kærleikann í garð hárra hæla og bleiks
varalitar. Og ég get alveg sagt það að kon-
ur geta oft verið konum bestar en þær
voru það ekki þennan dag
í Garðabænum.
Tobba segir þáttinn
verða góða blöndu af
gríni og alvöru. Fyrri
hlutinn fer í að kryfja
eitt ákveðið málefni
og Tobba segist ætla að beina
sjónum að vandamálum sem fólk
glímir við og þá hluti sem henni finnst
ekki hafa fengið næga umfjöllun. „Ég fer
langt út fyrir þægindarammann á hverj-
um degi í undirbúningsvinnunni. Eftir hlé
reynum við svo að vera aðeins flippaðri.
Þá er meira léttmeti og Lilja kemur með
sitt innslag þannig að flestir ættu að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.“
toti@frettatiminn.is
Tobba situr aldrei auðum höndum. Nýja bókin hennar, Lýtalaus, kom út fyrir
skömmu og selst eins og heitar lummur og nú er hún á kafi í samfélagsrann-
sóknum fyrir sjónvarpsþáttinn sinn, Tobba, sem hefur göngu sína á Skjá einum
á miðvikudaginn.
Og ég get
alveg sagt
það að
konur geta
oft verið
konum
bestar en
þær voru
það ekki
þennan dag
í Garða-
bænum.
borgríki siggi sigurjóns sýnir á sér nýja hlið
Spillt lögga á kafi í vændi
Hinn ástsæli leikari og Spaugstofugrín-
ari Sigurður Sigurjónsson birtist í heldur
óvenjulegu hlutverki í spennumyndinni
Borgríki sem Ólafur Jóhannesson leikstýr-
ir og verður frumsýnd í næsta mánuði. Þar
leikur Siggi lögreglumanninn Margeir sem
villist af vegi dyggðarinnar vegna fíknar
sinnar í vændiskonur sem glæpaforinginn
Ingvar E. Sigurðsson útvegar honum.
„Ég vona fyrir það fyrsta að hann sé
ólíkur mínum karakter, segir Siggi þegar
hann er spurður hvort ekki sé himinn og
haf á milli hans og Margeirs. „Það sem er
svona skemmtilegast fyrir mig prívat og
persónulega er að þetta er ekki dæmigerð
rulla fyrir Sigga Sigurjóns, ef ég orða það
bara þannig. Þetta var mjög skemmtileg
glíma og löngu tímabært að ég færi í
þessa skúffuna. Það var líka ögrandi og
skemmtilegt verkefni að leika í Borgríki.“
Siggi segist hafa notið þess að vera með
einvala lið leikara í kringum sig. „Ingvar
er þarna, Ágústa Eva og hann Zlatko
Krickic, hörku nagli sem lék okkur alveg
sundur og saman. Og ég lendi þarna í vafa-
sömum félagsskap.“ Björn Thors, Björn
Hlynur Haraldsson og Gísli Örn Garðars-
son eru einnig á meðal leikara í myndinni.
„Þetta er nú brjóstumkennanlegur
maður sem ég leik. Hann er einmana og
mér þykir óskaplega vænt um hann en
hann fer út af sporinu, getum við sagt.
Annars er sjón sögu ríkari í þessu tilfelli.
Hann fetar ekki alveg beinu brautina,
karlkvölin, en ég hélt nú með honum allan
tímann á meðan ég lék í myndinni. Maður
var samt stundum með smá óbragð í
munninum en það er bara partur af þess-
ari vinnu.“ -þþ
Siggi Sigurjóns leikur lögguna Margeir sem leitar
ákaft til vændiskvenna. „Ég er óvenju spenntur að
sjá árangurinn og ég bara hvet fólk til að sjá þetta
því þetta er öðruvísi. Það er alla vega annar Siggi
Sigurjóns sem birtist á tjaldinu þarna.“
Harpa á topp tíu
heimslistans
Harpa heldur áfram að vinna upp í bygg-
ingarkostnaðinn með því að laða athygli
og dálksentimetra að Íslandi í erlendum
fjölmiðlum. Blaðakona Time Out, Rachel
Halliburton, var hér á dögunum og skrifar
innblásna grein um heimsóknina á netsíðu
ferðaútgáfurisans. Rachel telur upp hin
klassísku gleðiefni Íslandsfarans: mið-
nætursólina, brennivínið og landslag eins
og á tunglinu, en mesta púðrið fer þó í afar
lofsamlega umfjöllun um nýjasta aðdráttar-
afl Reykjavíkur, tónlistarhúsið Hörpu. Rachel
talar meðal annars við rússneska fiðlu-
virtúósinn og hljómsveitarstjórann Maxim
Vengerov, sem segir Hörpu hvorki meira
né minna en eitt af tíu bestu tónlistarhúsum
heims.
54 dægurmál Helgin 16.-18. september 2011