Læknablaðið - 01.06.1966, Page 42
116
LÆKNABLAÐIÐ
10. tafla
Niðurstöður leitar að mænusóttarveirum í saursýnum frá sjúklingum
grunuðum um enteroveirusýkingu.
Ár Fjöldi saursýna Sýni jákvæS fyrir mænusóttarveirum Tegund mænusóttarveiru
1960 35 9 Ætt I
1961 21 Engin
1962 39 Engin Lamanir á árinu líklega Cox. A7
1963 59 1 Ætt III
1964 111 Engin
1965 140 Engin
Ályktanir
Þær rannsóknir, sem að framan er lýst, bentla til þess, að
síðan mænusóttarfaraldrinum 1955—1956 lauk, hafi lítið ltorið
hér á mænusóttarveirum. Af því leiðir, að ekki er að vænta mikils
ónæmis, sem áunnið er með eðlilegri sýkingu í þeim aldursflokk-
um, sem fæddir eru eftir 1956, og því af eldra fólki, sem húsett
var svæðunum, sem sluppu við þann faraldur. Svörun við mænu-
sóttarbólusetningu er hér lélegri en gerist þar, sem samsvarandi
athuganir hafa verið gerðar í þéttbýlli löndum. Þess er varla að
vænta, að við höfum alltaf verið svo óheppin að fá til landsins lé-
legt bóluefni, geyma það illa, eða séum verr að okkur í bólusetn-
ingartækni en gengur og gerist. Orsakanna er greinilega frekar
að leita í því fólki, sem hér er, fólki, sem tæplega hefur kom-
izt í snertingu við lifandi mænusóttarveirur, síðan bólusetn-
ingin hófst, og hefur takmarkaða reynslu af öðrum enteroveir-
um. Fólkið hér hefur því mjög lítil tækifæri til að halda áfram
mótefnamyndun gegn mænusóttarveirum af eðlilegri snertingu
við þær og skyldar veirur og tapar því fvrr mótefnum, sem mynd-
uð eru við bólusetningu, en fólk gerir þar, sem enteroveirur eru
landlægar og hverfa aldrei alveg úr umhverfinu.
Ef niðurstöður rannsóknanna, sem hér er lýst, veita nokk-
urn veginn rétta hugmynd um ónæmisástandið hér nú, er ástæða
til að hvetja lækna lil að íhuga, hvers þeir mega vænta í sínum