Læknablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 16
194
LÆKNABLAÐIÐ
Er augnlæknisþjónustu fer að gæta á fyrstu áratugum þessarar aldar
lækkar heldur tíðni blindu.
Árið 1920 voru samkvæmt manntali 4.1 af þúsundi blindir. Sam-
kvæmt manntölum hefur blindutíðni síðan farið smálækkandi, niður
í 2.4 af þúsundi árið 1950.6 Sambærilegar tölur frá nágrannalöndum
voru 0.5-1.5 af þúsundi.
Árið 1950 var síðast gerð sérstök könnun á blindu fólki hér á
landi.7 Kom þá í ljós, að tala blindra við manntalið þetta sama ár var
of lág, en hún var samkvæmt manntalinu 344. Samkvæmt þessum at-
hugunum reyndist tala blindra vera 434, og er það lágmarkstala. Það
svarar til, að tíðni blindu sé 3.0 af þúsundi.
Á fyrstu áratugum þessarar aldar og áður varð fólk blint mun
yngra að árum en nú á dögum, og er blinda hægt og hægt að færast
upp í eldri aldursflokkana. 2. mynd sýnir lækkandi tíðni blindu eftir
aldursflokkum.
3. mynd sýnir tíðni blindu á íslandi árið 1950 í aldursflokkum
samanborið við nokkrar aðrar þjóðir, þar sem heilbrigðisþjónusta er
á svipuðu stigi. Sýnir taflan, að íslendingar skera sig úr með háa
blindutíðni meðal aldraðs fólks.6
Fram að síðustu aldamótum voru blindir dreifðir jafnt um landið,
en á þessari öld eru blindir langflestir á Norður- og Austurlandi, en
tiltölulega fæstir í Reykjavík og nágrannahéruðum, sjá 1. töflu.
TABLE 1
Frequency of blindness by regions. According to census registration
1910-1950.
According to district physicians’ reports 1960.
Regions 1910 1920 1930 191,0 1950 19601 Percentage reduction 1910-1960
Reykjavík 2.6 1.8 2.0 1.4 1.4 1.5 42.3
Southern 3.0 4.1 3.2 3.3 2.3 1.2 60.0
South-western 4.3 3.7 3.1 3.2 1.7 0.6 86.0
Western Peninsula .... 3.4 4.0 3.9 3.5 3.0 1.4 58.8
Northern 3.4 5.3 4.6 4.6 3.8 3.4 2.9
Eastern 4.8 6.0 4.5 6.4 5.0 4.2 12.5
The whole country .... 3.6 4.1 3.4 3.1 2.4 1.7
1 In this column there are calculations which were made after the population
of these medical districts, which did not submit reports, has been deducted
from the total population of the region.
Síðan 1950 hefur ekki verið gerð athugun á blindu hér á landi, og
blindir hafa eingöngu verið skráðir af héraðslæknum. Einu upplýs-
ingar um blindu síðustu tvo áratugi er að finna í Heilbrigðisskýrslum,
en þær eru gefnar út af skrifstofu landlæknis. í skýrslunni frá 1968
eru 224 skráðir blindir, en skýrslur vantar úr níu læknishéruðum al'
fjörutíu. Af þessum 224 eru 171 sextíu og fimm ára og eldri eða um
76%. Þar sem vitað er, að skráning héraðslæknanna er mjög ófull-