Læknablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 28
202
LÆKNABLAÐIÐ
augun vinna ekki saman, og æskilegt er, eða réttara sagt nauðsynlegt,
að allri meðferð sé lokið áður en barnið byrjar skólagöngu, af ástæðum,
sem að framan greinir, og ég mun síðar víkja að. Það má því með
sanni segja, að þeir, sem ekki fá bata með réttri læknismeðferð þegar
á barnsaldri, læknist ekki að fullu úr því. Að vísu er unnt að fá augun
réttstæð með skurðaðgerð á hvaða aldri sem er, en það er ekki nema
sýndarbati. Það er aðeins útlitið, sem breytist: Augun verða réttstæð,
en geta ekki unnið saman. Það er því áríðandi, að sem flestir viti, að
ekki má draga meðferð á rangeygum börnum á langinn og lækningu
þarf að hefja, strax og einkenni koma í ljós.
Það er hættulegur misskilningur, sem virðist vera allríkjandi, að
halda, að skjálgur læknist af sjálfu sér, þegar barnið eldist. Að vísu
verða augun oft réttstæð með aldrinum, þótt ekkert sé að gert, sér-
staklega ef skekkjan er lítil, en barnið lærir ekki að nota bæði augun
saman, og hætta er á, að annað augað verði sjóndapurt eða nærri blint.
Meðferð á augnskekkju fer eftir því, hvers eðlis skekkjan er, og
má skipta henni í fjóra meginþætti:
1. Notkun gleraugna.
2. Meðferð á sjóndepru (occlusions meðferð),
þegar annað augað er sjóndapurt.
3. Skurðaðgerð.
4. Augnþjálfun (orthoptisk meðferð).
Ekki er alltaf nauðsynlegt að beita öllum þessum aðgerðum við
hvern sjúkling.
Mun aðeins verða rætt um síðasta atriðið hér á eftir.
Augnþjálfun. Á undan og eftir skurðaðgerð og þegar þær aðferðir,
sem lauslega hefur verið minnzt á, nægja ekki, til þess að barnið geti
beitt báðum augum saman á réttan hátt, er æskilegt að grípa til með-
ferðar, sem á ensku nefnist „orthoptic training“, en á íslenzku mætti
nefna augnþjálfun, samþjálfun eða samhæfing augna. Þessi aðferð er
fólgin í því að kenna barninu að beita augunum saman með sérstök-
um áhöldum, sem eru allmargbrotin og gera barninu kleift að fella
saman tvær myndir, þó að augun séu rangstillt. Þetta er nokkurs
konar andleg þjálfun, sem stuðlar að því að þroska þá stöð í heilanum,
er sér um samruna tveggja mynda, sinnar frá hvoru auga, og fram-
kallar þrívíddarsjón. Er þessum æfingum haldið áfram, unz barnið
nær valdi yfir augunum og sæmileg samsjón er fengin.
Augnþjálfun er æskilegur liður í meðferð augnskekkju, og nægir
hún oft ein, sérstaklega þegar skekkjuhornið er lítið, og er oft æskileg
bæði á undan og eftir skurðaðgerð. Auk þess að vera mikilvægur þátt-
ur í meðferð augljósrar augnskekkju, kemur slík þjálfun oft að gagni
við dulda augnskekkju, sem orsakar augnþreytu og höfuðverk. En
dulin augnskekkja nefnist það, þegar augun eiga í erfiðleikum með
að vinna saman, og oft þarf ekki nema litla áreynslu, til þess að ein-
kenni komi í ljós.
Augnþjálfun er sérstök grein innan augnlækninganna. Tækni-
menntað fólk, venjulega konur, annast þessa þjálfun og nám tekur
rúm tvö ár. Starfa sérskólar í þessum fræðum. Eru þeir venjulega í