Læknablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 38
208
LÆKNABLAÐIÐ
Augnþjéilfunarstöð (orthoptic clinic) þarf að koma á fótj og ætti
hún að sjá um meðferð á skjálgum börnum. Sú meðferð er fólgin í
því að þjálfa augun til samsjónar og koma í veg fyrir, að barn missi
sjón á öðru auga, eins og algengt er, þegar um skjálg er að ræða.
Keppa þarf að því, að skjálg börn fái lækningu á forskólastigi,
en til þess að það sé unnt, þarf að taka rangeyg böm mun fyrr til með-
ferðar en nú er gert.
Glákuvarnir, meðferð á skjálgum börnum og slysavarnir á augum,
eru helztu þættir sjónverndar hér á landi og mest aðkallandi að leysa.
Þörf á úrbótum er brýn bæði til þess að bæta þá sjónvernd, sem er, og
eins þarf átak til að færa út kvíarnar, en það er hægt með því að
virkja starfshópa utan augnlæknastéttarinnar, sem vilja vinna að sjón-
verndarmálum.
Um miðjan apríl sl. fór fram landssöfnun á vegum Lionshreyfing-
arinnar á íslandi og söfnuðust um 5 milljónir króna. Var tilgangur
söfnunarinnar að afla fjár til kaupa á tækjum, sem vantar á augndeild
Landakotsspítala og á sjónprófunartækjum til dreifingar um landið.
Þessi söfnun sýnir ljósast, að almenningur vill leggja nokkuð af mörk-
um til þess að skapa hér bætta aðstöðu til sjónverndar. Á Lions-
hreyfingin og þeir einstaklingar innan hennar, sem sáu um söfnunina,
miklar þakkir skildar fyrir fórnfúst starf.
Vonandi verður þessi söfnun til að sjónverndarmálum okkar verði
komið í betra horf og við komumst fljótt í röð þeirra þjóða, sem bezt
búa að þegnum sínum á þessu sviði heilbrigðismála.
HEIMILDIR
1. Methods for the early detection of potentially blinding eye conditions.
EURO 8402. [WHO]. Copenhagen 1971.
2. WHO Chron. Vol. 26. No. 1. tWHO]. Geneva 1972.
3. Havener, W. H. Synopsis of Ophthalmology, 258. [The C. V. Mosby Com-
pany]. Saint Louis 1963.
4. Björnsson, G. Leit aö gláku á Rannsóknastöð Hjartaverndar. Hjartavernd
6:4-5 1969.
5. Mannslátabók II. Skrifstofa landlæknis 1953.
6. Bjömsson, G. The Primary Glaucoma in Iceland. Acta Opth. Suppl. 91.
[Munksgaard]. Copenhagen 1967.
7. Björnsson, G. Blinda á Islandi 1954. Lœknáblaöiö 38:65-79.
8. Björnsson, G. Rangeygð börn. Menntamál 44:185-188. 1971.
9. Graham, P. A. Epidemiology of simple glaucoma and ocular hypertension.
British Journál of Ophthálmology. Vol 56 No. 3. 1972.
10. Duke-Elder, S. Parsons’ Diseases of the Eye. 14th ed. [J. & A. Churchill].
London 1967.