Læknablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 58
220
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐID
58. árg. Desember 1972
PELAGSHMt.N 16Mlt)| AN H.F.
Hamskipti
Með þessu hefti lýkur 58. ár-
gangi Læknablaðsins. Frá upp-
hafi hefur blaðið verið í sama
broti, þótt breytingar hafi orðið á
útliti, pappír og prentun. Eftir
allnána yfirvegun hefur nú verið
ákveðið að breyta broti blaðsins
þegar á næsta ári. Kemur Lækna-
blaðið því framvegis út í sama
broti og Acta-tímaritin skandina-
vísku. Auk þess verður tekinn
upp sá háttur að „sauma“ blaðið
í stað þess að hefta.
Það er ekki með öllu sársauka-
laust að breyta hefðbundnu broti
Læknablaðsins. Sumir bókasafn-
arar kunna aðstandendum blaðs-
ins sjálfsagt litla þökk fyrir. Þeim
til nokkurrar hughreystingar er
þess að geta, að stærðarbreyting-
in er vart svo mikil, að hið gamla
og nýja blað geti ekki sómasam-
lega staðið saman í hillu.
Kostir breytinganna eru hins
vegar ýmsir auðsæir. Hið nýja
brot veitir mun betri nýtingu
blaðsíðurýmis og tækifæri til
skemmtilegri uppsetningar efnis.
Brotið verður þó ekki stærra en
svo, að innbundið verður Lækna-
blaðið falleg bók. Þær takmark-
anir, sem blaðsíðufjölda hefts
tímarits eru settar, há ekki því
blaði, sem saumað er.
Ritstjórar Læknablaðsins munu
gera sitt ítrasta til að uppfylla
ýmis fyrirheit, sem gefin voru í
upphafsblaði þessa árgangs. Má
þar nefna fjölgun hefta í hverjum
árgangi og aukna fjölbreytni í
efnisvali. Hið fyrrnefnda er m. a.
nauðsynlegt til þess að Lækna-
blaðið verði virkur þátttakandi í
umræðum á hverjum tíma. Hvað
fjölbreytnina varðar, höfðum við
enn til þegnskapar læknanna
sjálfra. Þeir verða að brjótast út
úr skelinni og leggja blaðinu lið.
Hinn nýi búningur Læknablaðs-
ins hvetur vonandi til þess að
innihaldið verði læknastéttinni til
sóma.
Nýjar tillögur um
menntun lækna og
annarra
heilbrigðisstétta
Á undanförnum árum hefur
áhugi á menntun heilbrigðisstétta
farið vaxandi, ekki eingöngu
meðal lækna sjálfra, heldur einn-
ig hjá stjórnmálamönnum og al-
menningi. Þetta á ekki eingöngu
við um ísland, heldur einnig um
allan hinn vestræna heim og
raunar ekki síður í þróunarlönd-
unum.
Ýmsar hugmyndir um breytt
menntunarform hafa komið fram
bæði hérlendis og erlendis. Sumir
stjórnmálamenn hér á landi hafa
haldið því fram, að með breyttri
læknamenntun sé unnt að ráða
bót á vandkvæðum læknisþjón-
ustu dreifbýlisins, og hafa þeir þá
helzt hugsað sér að stytta læknis-
námið, framleiða eins konar
snöggsoðna lækna, sem gætu
innt af hendi einfalda neyðar-
þjónustu. Læknasamtökin hafa
yfirleitt verið andvíg þessum hug-
myndum, vegna þess að þá er
verið að mismuna ibúum lands-
ins í læknisþjónustu eftir búsetu.