Læknablaðið - 01.12.1972, Blaðsíða 22
196
LÆKNABLAÐIÐ
illkynja nærsýni, afleiðing ýmissa bólgusjúkdóma, æðakölkun í augn-
botni og slys.
Af framansögðu sést, að gláka er alvarlegur augnsjúkdómur og
er langalgengasta blinduorsök hér á landi. Erlendis er blinda af völd-
um gláku um 10-15% allra blindra, en hér er þessi tala mun hærri.
Árið 1950 var hún um 60%. Er hún sennilega nokkru lægri núna.
Gláka er því þjóðfélagsvandamál hér á landi og hefur verið um lang-
an aldur, en sem betur fer er hægt að leysa það með viðeigandi að-
gerðum.
Það er ekki ýkja langt síðan læknar vissu, hver er aðalvaldur
blindu hér á landi. í grein um gláku, er Guðmundur Hannesson skrif-
aði í Læknablað sitt árið 1904, þegar hann var héraðslæknir á Akur-
eyri, segir: „Fyrir nokkrum árum hitti ég danskan lækni, dr. med. Gad,
sem fræddi mig á nokkru, sem ég vissi ekki fyrr, þó skömm sé frá að
segja, nefnilega frá því, að á íslandi eru ca. tífalt fleiri blindir en í
flestum siðuðum löndum. Honum þótti þetta sem vonlegt var hin
mesta óhæfa og var svo hughaldið að vita um orsök þessa, og lagfæra
það, ef unnt væri, að hann ráðgerði að ferðast hingað, þó farizt hafi
það fyrir. Hann spurði mig hvernig á þessum ósköpum stæði, en ég
var ófróður um það. Nú veit ég að orsökin er glaucoma, glaucoma og
aftur glaucoma!“ Ástandið í þessum málum er að vísu ekki eins slæmt
og það var, þegar þetta er ritað fyrir hart nær sjö áratugum, en okkur
hefur ekki tekizt enn að leysa þessi mál svo viðunandi sé, enda skort
heildarskipulag til að koma þessum málum í farsæla höfn.
Há tíðni blindu í mörgum þróunarlöndunum orsakast af ýms-
um smitsjúkdómum og er trakóma einn aðalvaldur blindu í mörg-
um löndum í Asíu og Afríku. Talið er, að hermenn Napóleons hafi
borið trakómu, sem einnig er nefnd egypzka augnveikin, til Evrópu.
Gekk hún sem farsótt víða í álfunni, einkum meðal hermanna, í skól-
um og fátækraheimilum, og varð algeng blinduorsök. Með því að vera
stöðugt á verði, höfum við íslendingar verið svo gæfusamir að losna
algjörlega við þennan háskalega sjúkdóm.
Lekandabólga í augum ungbarna og unglinga var tíð blinduorsök
í nágrannalöndum okkar fram eftir þessai’i öld. Á fyrstu árum þessarar
aldar voru um 30% nemenda í blindraskólum í Englandi og' Banda-
ríkjunum, blindir vegna afleiðinga lekandabólgu í augum.10 Með notk-
un silfurnitratdropa í augu nýfæddra, fór blinda af þessum orsökum
minnkandi, og ekkert nýtt tilfelli hefur bætzt við í Danmörku eftir
1934 og í Englandi eftir 1945.
Þar sem við íslendingar höfum losnað við blindu af þessum orsök-
um, höfum við haft lægri tíðni blindu meðal barna en margar aðrar
þjóðir. Er það vafalaust því að þakka, að þegar fyrir síðustu aldamót
var ljósmæðrum gert að skyldu að dreypa silfurnitratdropum í augu
allra nýfæddra barna.
Meðfædd sárasótt var allalgeng blinduorsök erlendis, en gætti
mjög lítið hér á landi.
Með blóðrannsókn á verðandi mæðrum og lækningu, hefur blindu
af völdum sárasóttar verið útrýmt hér á landi.
Holdsveiki blindaði marga hér á landi, er hún var landlæg. Af 58