Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1972, Page 27

Læknablaðið - 01.12.1972, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ 201 ná til. Af þeim gengu 31.943 undir aðalskólaskoðun, en 31.647 voru sjónprófaðir, eða um 80% nemenda. Næst tannskemmdum eru sjón- gallar algengasti kvilli meðal nemenda bæði í barna- og unglingaskól- um. Til sjóngalla telst, ef nemandi sér minna en 6/9 með öðru auga eða báðum. Samkvæmt fyrrnefndum Heilbrigðisskýrslum hafa um 12% barnaskólanemenda sjóngalla, en um 7% nota gleraugu. Um 20% nemenda í unglinga-, mið- og gagnfræðaskólum eru með sjóngalla, og um 15% nota gleraugu. í öðrum framhaldsskólum, þ. e. í menntaskól- unum fjórum, Verzlunarskóla íslands og Kennaraskóla íslands, hefur a. m. k. fjórði hver nemandi sjóngalla, og fimmti hver notar gleraugu. Auk sjónlagsgalla er rangeygð sá kvilli, sem algengastur er meðal barna og unglinga. Árið 1967 voru 348 börn og unglingar skráð rang- eyg af þeim, sem sjónprófuð voru. Svarar það til, að 435 börn hefðu fundizt með rangeygð, ef öll hefðu verið sjónprófuð af þeim, sem skýrslan nær til. Er þetta lágmarkstala, því eins og áður var sagt vant- ar skýrslur úr 14 læknishéruðum. En hver er hundraðshluti rangeygra, ef miðað er við þessar heild- artölur? Um 1.3% nemenda í barnaskólum eru rangeyg og tæplega 1% nemenda í framhaldsskólum. Þar sem skólaskoðanir eru hvergi mér vitanlega framkvæmdar af augnlæknum, er hætt við, að allmargir nemendur með lítt áberandi augnskekkju hafi aldrei komizt á skrá. Eru þessar skýrslur því ekki tæmandi og segja ekki nákvæmlega til um tölu þeirra nemenda, sem rangeygir voru árið 1967. Með hliðsjón af könnun, er ég hef gert á tíðni þessa kvilla, áætla ég, að að minnsta kosti 550 börn á skólaskyldualdri hafi verið rangeyg þetta umrædda ár.8 Rangeygð er alvarlegur kvilli. í fyrsta lagi getur sá, sem er rang- eygur, ekki notað augun saman og hefur þar af leiðandi ekki dýptar- skyn eða þrívíddarskynjun. í öðru lagi er hætta á, að skakka augað verði sjóndapurt eða nær blint. í þriðja lagi er rangeygð líkamslýti. Ef rangeygð er ekki tekin til meðferðar á réttmn tíma, getur það haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir barnið síðar meir, og ef til vill bíður það þess aldrei bætur. Ég hef þegar rætt nokkuð um tíðni augnskekkju meðal barna á skólaskyldualdri. Um tíðni skjálgs meðal barna yngri en 7 ára er lítið vitað. Fyrir allmörgum árum gerði ég athuganir á innbyrðis flokkun augnskekkju hér á landi. Athuganirnar náðu til 201 barns, er leituðu til mín á einu ári. Af þessum börnum voru 65 sex ára eða yngri. Skipt- ing rangeygðar var nokkuð jöfn milli drengja og stúlkna: 96 drengir og 105 stúlkur. Með augnskekkju inn á við voru 175, eða 87%. Af þeim beittu 107 alltaf öðru auganu, og 65 beittu augunum til skiptis. Með skekkju út á við voru 24 börn, eða 12%. Hjá aðeins tveimur stóð annað augað hærra. Af þessum rangeygu börnum voru 45 með mikla fjarsýni, og 100 voru sjóndöpur á öðru auga. Meðferð augnskekkju beinist að því í fyrsta lagi að ná eðlilegri sjónskerpu á bæði apgun; í öðru lagi að gera augun réttstæð, og í þriðja lagi að fá augUn til að vinna saman á réttan hátt. Rangeyg börn þarf að taka tjl meðferðar sem yngst, eða um leið og fullreynt er, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.