Læknablaðið - 01.12.1972, Qupperneq 62
224
LÆKNABLAÐIÐ
eindatækni og þ. á m. tölvur hafa
miklu og vaxandi hlutverki að
gegna. Talað hefur verið um
læknisfræðilega lögfræði, en nú
er meiri nauðsyn að hafa í huga
læknisfræðilega verkfræði.
Þegar hugað er að hinni öru
þróun, sem á sér stað í heilbrigð-
isþjónustunni, bæði tæknilega og
félagslega, er nauðsyn að gera sér
grein fyrir, hvernig bezt verði
fyrir komið samhæfingu og sam-
ræmingu menntunar heilbrigðis-
stéttanna. Ekki virðist tímabært
að ræða um sérstakan skóla fyrir
heilbrigðisstéttir hér á landi. Hitt
virðist miklu eðlilegra, að nám
heilbrigðisstétta verði sameinað
innan vébanda háskólans að svo
miklu leyti, sem verða má, og er
raunar unnið að því nú á ýmsum
sviðum. Það er nauðsyn að fjölga
námsleiðum innan háskólans og
sá hluti ungmenna, sem lýkur
stúdentsprófi, fer stöðugt vax-
andi, þannig að stúdentahópur-
inn er nógu stór til þess að manna
flestar heilbrigðisstéttir. í flest-
um tilvikum er stúdentsmenntun
aðeins hæfilegur undirbúningur
undir nám margra heilbrigðis-
stétta, enda þótt augljóst sé, að
ýmsir starfshópar heilbrigðisþjón-
ustunnar geti komizt af með að-
eins stutt sérnám og einnig veru-
lega takmarkaðri undirbúnings-
menntun, heldur en krafizt er til
stúdentsprófs. Um leið og nám
heilbrigðisstétta yrði flutt í víð-
tækari mæli inn í háskólann, þá
er nauðsynlegt, að sem flestar
heilbrigðisstofnanir séu virkjaðar
í þágu kennslu þessara stétta.
Þessu mundi að vísu fylgja vissar
kröfur um starfsaðstöðu og mann-
afla í heilbrigðisþjónustunni al-
mennt til þess að gera stofnanirn-
ar hæfar til að annast menntun
heilbrigðisstétta, en jafnframt
yrðu þær hæfari til að auðsýna
þegnunum þá þjónustu, sem þeim
er ætlað að veita.
Þegar verið er að byggja heilsu-
gæzlustöðvar víðs vegar um land-
ið, þá er nauðsynlegt að gæta
þess, að stofnanir þessar verða í
náinni framtíð teknar með inn í
menntunarkerfi heilbrigðisstétt-
anna, en í því sambandi þarf
strax að hafa forsjá, hvað snertir
húsnæði heilsugæzlustöðvanna og
einnig síðar tækjabúnað og mann-
afla.
Eftir tvö ár er fyrirhugað, að
kennsla hefjist í almennum lækn-
ingum við læknadeild háskólans,
og er þá fyrirsjáanlegt, að þær
heilsugæzlustöðvar, sem bezt eru
búnar, verða teknar inn í kennslu-
kerfið. Það ætti að verða keppi-
kefli allra nýrra heilsugæzlu-
stöðva að uppfylla þær kröfur,
sem gerðar verða í þessu efni.