Læknablaðið - 01.04.1973, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
51
Þorvaldur Veigar Guðmundsson
PROSTAGLANDIN
Prostaglandin (PG) er hópur efna, sem
finnst víða í vefjum dýra og manna. Þau
hafa margvísleg og flókin áhrif á lifandi
vefi: t. d. lækka sum þeirra blóðþrýsting,
en önnur hækka hann, þau auka samdrátt
í sléttum vöðvum í tractus intestinalis og
uterus og hafa djúptæk áhrif á starfsemi
nýrna og tauga.
Englendingurinn Goldblatt og Svíinn
U. S. von Euler uppgötvuðu PG hvor í
sínu lagi fyrir um það bil 40 árum. Lengi
var þessum flokki efna lítill gaumur gef-
inn. Ymsir einstaklingar, með von Euler
og hans samstarfsmenn fremsta í flokki,
héldu þó stöðugt áfram að vinna að rann-
sóknum á PG. Talsverðum upplýsingum
um lífeðlisfræðilegar og lífefnafræðilegar
verkanir PG var safnað fyrstu tvo til þrjá
áratugina eftir uppgötvun þeirra. Raun-
verulegur skriður komst þó ekki á rann-
sóknir þessar fyrr en upp úr 1960. Það
ár tókst Svíunum Bergström og Sjöval2 3
að einangra tvö efni úr PG flokknum, eftir
u. þ. b. 13 ára vinnu að verkefninu. Niður-
stöður þeirra hjálpuðu strax til að skýra
línurnar lítið eitt, en þær og nýjar auð-
veldari aðferðir til þess að hreinsa PG
komu af stað mikilli skriðu við rannsóknir
þessara efna. Nokkuð á annað þúsund
greinar voru birtar um PG á síðasta ára-
tug, nokkrar sérstakar ráðstefnur voru
voru haldnar um þetta mál auk þess sem
það var rætt á fjölda víðtækari frnida.
Bækur hafa verið gefnar út um PG og
nýlega er farið að gefa út sérstakt tímarit
helgað rannsóknum þessara efna.
EFNAFRÆÐI
Uppistaða PG-efna er ómettuð fitusýra
með keðju 20 kolefnisatóma, sem beygist
um miðjuna og er binding' myndast milli
kolvetnisatóms nr. 9 og nr. 13 (mynd 1),
O H
COOH
HO H H 'OH
PGEj
O. H
COOH
PGE,
HQ H
COOH
HÖ H H^'OH
pgf3.
COOH
HÖ H 'OH
PGES