Læknablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 6
274
LÆKNABLAÐIÐ
Kveðið í lok aðalfundar
Að kveldi síðari fundardags bauð heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra til veizlu
að Hótel Sögu. Veizlustjóri var Páll Sig-
urðsson. Meðan á borðhaldi stóð tóku með-
al annarra til máls hann og fráfarandi for-
maður, Tómas Á. Jónasson. Kastaði Úlfur
Ragnarsson þá fram þessari vísu:
Þótt komi nýir nýtir menn
nokkuð framagjarnir,
Páll og Tómas eru enn
aðalpostularnir.
Þegar aðalréttir höfðu verið fram bornir,
kvaddi sér hljóðs nýkjörinn formaður L.í.
og að ræðu hans lokinni, mælti Úlfur Ragn-
arsson fyrir, er formanni var þökkuð góð
ræða:
Þorvaldur Veigar
víndreggjar teigar
málbeinið mýkist við það.
Heillaskál honum
við hefjum í von um
feril sem ekkert er að.
LAUSAR STÖÐUR
Iækna við heilsugæslustöðvar
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður lækna við heilsugæslustöðvar
frá og með tilgreindum tíma:
1. ísafjörður H2, tvær fjögurra læknisstaða, önnur frá 1. júní 1980 en
hin frá 1. október 1980.
2. Þingeyri Hl, staða læknis frá 1. febrúar 1980.
3. Flateyri Hl, staða læknis frá 1. febrúar 1980.
4. Bolungarvík Hl, staða læknis frá 1. júní 1980.
5. Hólmavík Hl, staða læknis frá 1. júní 1980.
6. Siglufjörður H2, báðar stöður lækna frá 1. júní 1980.
7. Ólafsfjörður Hl, staða læknis frá 1. janúar 1980.
8. Raufarhöfn Hl, staða læknis frá 1. janúar 1980.
9. Fáskrúðsfjörður Hl, staða læknis frá 1. mars 1980.
10. Djúpivogur Hl, staða læknis frá 1. mars 1980.
11. Höfn Hornafirði H2, ein staða læknis frá 1. apríl 1980 og önnur frá
1. júní 1980.
12. Hella Hl, staða læknis frá 1. júní 1980.
Umsóknir ásamt upplýsingum um frekari menntun og störf sendist ráðu-
neytinu fyrir 15. janúar 1980.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
27. nóvember 1979.