Læknablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 62
312
LÆKNABLAÐIÐ
er félagsins í dag jafnt þörf sem þá
enn þurfa menn að rífa sig og tjá.
L.R. því enn,
ágætu menn,
langra lífdaga við óskum.
Páll Ásmundsson
MINNI KVENNA OG HORMÓNA
Lokaðir kirtlar af lævísi starfa,
löngum til ama, en stundum til þarfa.
Alls konar vessa um æðarnar senda.
Enginn veit hvar fyrir rest þeir svo lenda.
Vessarnir þessir ku hormónar heita
og heilmiklu í skrokknum þeir raska og
breyta.
í einu vetfangi upp skal ég telja
á hvaða vegu þeir mennina kvelja.
Menn hækka, menn lækka,
menn smækka og stækka.
Þeir hitna, þeir svitna
þeir þrútna eða tútna.
Fólk mjókkar, fólk Ijókkar,
fólk megrast og fegrast.
Menn stillast, menn tryllast,
menn stríkka og víkka.
Augljóst má vera og upp hef ég talið
hvað ólukkans hormóninn getur oss kvalið.
Einn hormónaflokkinn þó hátt vil ég skrifa,
því hans vegna finnst okkur gaman að lifa.
Þá meistarinn átti í masi og puði
manninn að skapa, þá var hann í stuði.
Tvö módel því hannaði í algeru æði
og ákvað að setja á markaðinn bæði.
Því ágætu vinir, það æxlaðist svona
að inn í vorn heim fæddust maður og kona
og, ég verð að telja það töluvert gaman,
hann tryggði, að gætu þau lifað hér saman.
í konuna hormóna kaus'ann að láta
sem kalla fram breytingu á indælan máta.
Þau Iaða fram hóla og hæðir og beyjur,
hvilftir og dali og straumlínusveigjur,
ávalar mjaðmir og eggjandi rassa
og indælis brjóst, sem er gaman að kjassa.
Freistandi hreyfingar laða og Iokka,
líka við nefnum slíkt kvenlegan þokka.
Með karlmanninn ei var í klípu eða vafa
því kynhormón manna þá náttúru hafa
að láta menn dásemdir konunnar dreyma,
svon dunandi um kroppinn fer blóðið að
streyma.
Oftlega í rúminu, einkum á kvöldin
af mönnum taka þau hreinlega völdin.
Ef fögur er konan og fátækleg vörnin
í fyllingu tímans svo klekjast út börnin.
Nú fyllum við skál okkar bræður á barma
því blessa skal konunnar hormónasjarma.
Ég óska þess jafnan að áfram við hrösum,
upp stöndum, vinir, og klingjum nú glösum.
St. FRANCISKUSSPlTALI,
Stykkishólmi
STAÐA SJIJKRAHÚSSLÆKNIS
við sjúkrahúsið í Stykkishólmi er laus til umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa framhaldsmenntun
í skurðlækningum.
Umsóknir sendist undirritaðri.
Sr. Renés, príorinna
St. Franciskusspítali Stykkishólmi