Læknablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
285
notkun Almevax bóluefnis en annarra bólu-
efna. Útbrot fengu 34 (9.3%), eitlastækk-
anir 27 (7.4%) og hita eða hálsbólgu 18
(4.9%)
Ekki var hafður samanburðarhópur ó-
bólusettra telpna, en tíðni eitlastækkana,
hita, hálsbólgu og útbrota er líklega ekki
marktækt meira, en búast má við í þessum
hópi á þeim árstíma, þegar bólusett var,
(jan.—febr.). Útbrotin voru mjög væg,
stóðu oftast ekki nema 1 dag eða 2. Hefði
sennilega oft ekki verið eftir þeim tekið,
ef ekki hefði verið vakin sérstök athygli
á þeim. Sama er um hitann að segja. Stóð
hann yfirleitt aðeins 1 til 2 daga. Eitla-
stækkanir voru algengastar á hálsi, bak við
eyru og við hnakkagróf (retroauriculert
og occipitalt) en einstaka telpa hafði eitla-
stækkanir víðar. Oftast voru eitlarnir ekki
stærri en svo, að telpurnar tóku sjálfar
ekki eftir þeim. Fundust þeir, þegar gáð
var sérstaklega að þeim. Ekki voru telpurn-
ar skoðaðar fyrir bólusetninguna, var því
ekki vitað hver tíðni eitlastækkana var
fyrir bólusetningu. Þó kvörtuðu a.m.k. 6
telpur aðeins um eitlastækkanir (eða „kúl-
ur“). Hjá þeim var um verulega stækkun
og dálítil eymsli að ræða. Engin kvartaði
um skyntruflanir í þessum hóp. Liðverki
fengu 12.8% og þrota eða bólgur fengu 3%.
Sýnir tafla VII hvaða liðamót var um að
ræða. Komu liðeinkenni í ljós síðast hjá
þeim telpum, sem fengu fleiri en eitt ein-
kenni um aukaverkun. Verki í ein liðamót
fengu 17 telpur, en 30 fengu einkenni frá
fleiri en einum liðamótum. Algengastar
voru kvartanir frá hnjám, úlnliðum, og
fingrum. Einkenni komu þó frá flestum
liðamótum. Hjá þeim, sem skoðaðar voru,
var ekki um hreyfingarhindrun að ræða.
Hjá 7 telpum bólgnuðu ein liðamót, ein
bólgnaði á báðum úlnliðum og þrjár á fleiri
en einum liðamótum á fingrum. Ekki
greindist vökvi í lið með vissu. Að ári liðnu
var haft símasamband við þær telpur, sem
höfðu haft einkenni frá liðum, eða foreldra
þeirra. Náðist til allra nema einnar, sem
flutt var af landi brott. Að undanskildum
þrem telpum höfðu liðeinkenni staðið frá
einum degi upp í viku. Gilti það jafnt um
verki sem bólgur. Einkenni hurfu fljótt, og
enein eftirköst voru þetta ár, sem liðið var.
Þrjár telpur höfðu lengur einkenni. Ein
þessara þriggja telpna hafði fyrri sögu um
liðbólgur og verið á lyfjameðferð áður
vegna hennar. Hafði sú stúlka kvartað um
óþægindi en ekki bólgur nokkrar vikur
eftir bólusetninguna að sögn móður, en
síðan verið einkennalaus. Önnur telpa
bólgnaði á hné. Hafði hún bólgnað áður og
alltaf á þessu sama hné. Fékkst það stað-
fest hjá heimilislækni hennar, að hér væri
um nokkurra mánaða sögu að ræða fyrir
bólusetninguna. Hafði röntgen yfirlitsmynd
verið tekin af hnjám um sama leyti og
bólusetning fór fram og reyndist liður þá
eðlilegur. Það ár, sem liðið er frá bólu-
setningunni, hefur telpan bólgnað við og
við á sama hné en ekki leitað læknis aftur.
Er ósennilegt, að hér sé um að ræða afleið-
ingu bólusetningarinnar. Þriðja telpan
fékk smávægileg einkenni í liði eftir bólu-
setningu, en var síðan einkennalaus allt
árið þar til tveim vikum fyrir símtalið
sem fram fór ári eftir bólusetningu. Hafði
hún þá bólgnað á sama úlnlið og hún hafði
fengið verki í eftir bólusetnineuna. Rönt-
genmynd tekin á slysavarðstofunni reynd-
ist eðlileg. Var fylgst með telpunni, og
hvarf bólgan á nokkrum dögum. Var hún
því einkennalaus, þegar samtalið átti sér
stað. Þegar spurt var um fyrri einkenni,
kom í ljós að hún hafði fengið svipuð ein-
kenni á að giska 2 árum áður, en sú sjúkra-
saga var mjög óskýr. Er því vafi á, hvort
hægt sé að tengja þessa bóleu bólusetning-
unni. Þar eð hæpið er að telja bólusetning-
una orsök þessara langvarandi einkenna
telpnanna þriggja, hefur ekki orðið vart
síðbúinna einkenna eftir þessa bólusetn-
ingu.
UMRÆÐUR
Samanburður á sjúkrasöeu og mótefna-
mælingum leiddi í ljós mikið ósamræmi.
Styður það fyrri vitneskju, þ.e. að ekki er
gott að treysta eingöngu á sjúkrasögu um
rauða hunda.20
Sú aðferð við mælingu Hl-mótefna, sem
notuð var í rannsókn þessari, er sennilega
líkust aðferð Grillner o.fél.12 Þau fengu
GM-titer 51 hjá 114 konum bólusettum
eftir fæðingu í Gautaborg. Einnig fá
Wailace o.fél.10 GM titer 64 (hiá 27 kon-
um), Balfour o.fél.2 GM titer 81.2 (hiá 285
börnum) og Best o.fél.3 GM titer 61.9 hjá