Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1979, Side 46

Læknablaðið - 01.12.1979, Side 46
302 LÆKNABLAÐIÐ Tómas Árni Jónasson skýrði frá því, að til- lögur starfshópsins hefðu verið sendar svæða- félögunum til umsagnar, og hefðu svör borizt frá tveimur þeirra, F.I.L.B. og Læknafélagi Vesturlands. Það kom fram í svari F.I.L.B., að félagið telur, að almenn heilbrigðisfræðsla eigi að heyra undir sömu aðila og önnur fræðsla, hvað snerti framkvæmd og fjármögnun, og telur félagið því eðiilegt, að fræðsluráð um heilbrigðismál sé skipað af ráðherra. Lækna- félag Vesturlands hafði lagt til, að tillögurnar yrðu lagðar fyrir landlækni til umsagnar, og var það gert. Hann kvaðst styðja tillögur starfshópsins, en vakti athygli á þvi, að skil- greina þyrfti nánar starfsvið fræðsluráðsins annars vegar og stjómar L.l. hins vegar. Ölafur Ólafsson lýsti ánægju sinni með starf hópsins, en undirstrikaði þörfina fyrir kerfis- bundna heilbrigðisfræðslu i grunnskólum. Skúli G. Johnsen vakti athygli á útgáfu Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur á ýmsum fræðsluritum fyrir almenning. AuGólfur Gunnarsson minnti á, að læknar þyrftu að vera varkárir í orðum, þegar þeir fræddu almenning um heilbrigðismál, og gat í þessu sambandi um „herferðina" gegn íslenzka landbúnaðinum fyrir 1—2 árum, þar sem full- yrðingar ýmissa lækna stæðust varla. Ólafur örn Arnarson lýsti sig andvígan fram- kominni tillögu um fjármögnun fræðslustarf- semi læknafélaganna og mælti einnig gegn hugmyndinni um að aðalmenn ráðsins hefðu sérmenntun á sviði lyflækninga, skurðlækninga og heimilislækninga. Úlfur Ragnarsson tók undir gagnrýni Ólafs Arnar um skipun fræðsluráðsins. Vilhjálmur Rafnsson gagnrýndi orðalag í greinargerð með tillögu þeirra Ársæls og Guð- mundar en lýsti jafnframt stuðningi við til- lögur starfshópsins. Að lokum tók Ársæll Jónsson aftur til máls, og svaraði hann ýmsum sjónarmiðum, sem fram höfðu. komið við umræðurnar og dró hann tillögu þeirra Guðmundar Jóhannessonar til baka. Svohljóðandi tillaga frá Guðmundi Sigurðs- syni og Brynleifi Steingrímssyni var samþykkt með 17 samhljóða atkvæðum: „AOalfundur L.í. 1979 felur stjórn L.t. aö vinna aö stofnun fræösluráös meö hliösjón af tillögum starfshóps L.l. um heilbrigðisfræöslu fyrir almenning frá 28. des. 1978.“ ÖNNUR MÁL A. Gjaldkeri, GuÖmundur Sigurösson, greindi frá fjárhagsliorfum 1979 og fjárhagsáætlun 1980. Hann skýrði frá því, að framvegis yrði allur skrifstofukostnaður bókfærður hjá L.I. Árgjald lagði hann til, að yrði kr. 200.000 og skyldu 40.000 renna aftur til svæðafélaganna. Argjaldið skal innheimt tvisvar á ári. Tillögur gjaldkera um árgjald og fjárhags- áætlun voru samþykktar með 18 samhljóða atkvæðum. B. ViÖar Hjartarson las upp tillögur að reghigerö um OrlofsheimilasjóÖ L.I. og L.R. og samþykkti fundurinn þær samhljóða. C. Haraldur Briem skýrði frá því, að árið 1978 hefðu 48 læknar frá Svíþjóð komið hing- að og unnið afleysingastörf í 58 mánuði. Hann sagði, að aðeins 70% þeirra lækna, sem nú væru í Svíþjóð, myndu snúa heim aftur og kvað hann nauðsynlegt að koma á numerus clausus í læknadeild Háskóla Islands. Hann taldi nauðsynlegt, að nefnd þyrfti að vera til á vegum Læknafélags Islands til að meta þörfina á læknum í einstakar greinar. Hann óskaöi eftir þvi, að Lífeyrissjóður lækna sendi frá sér betri og aðgengilegri upplýsingar um starfsemi sjóðsins en nú væri gert. ölafur Ólafsson lýsti vantrú sinni á könnun- um forspár og nefndi dæmi, sem hann taldi að sýndu, að ekkert væri farið eftir niðurstöðum slíkra kannana. örn Bjarnason minnti á, að fyrir fjórum ár- um hafi Læknafélag Islands látið gera könnun á fjölda islenzkra lækna og gengist fyrir að gerð var tilraun til forspár um fjölgun lækna fram að 1981. Þær niðurstöður hafi verið rædd- ar á aðalfundi 1975 og könnunin i heild hafi verið birt í Læknanemanum 1976. Páll SigurÖsson skýrði frá þvi, að stjórn L.I. hefði um áramót rætt við heilbrigðisráðherra um tilhögun og fjármögnun ferða lækna út á landsbyggðina, en sagði, að ekki hefði fengizt heimild fyrir nýjum stöðum i heilsugæzlukerf- inu. Páll taldi óeðlilegt, að aðalfundurinn ályktaði um numerus clausus málið. Högni Óskarsson skýrði frá þvi, að 48 ís- lenzkir læknar væru nú í Norður-Ameríku og helmingur þeirra í námsstöðum. Þann 1.—2. sept. 1979 héldu íslenzkir læknar vestra undir- búningsfund að stofnun svæðisfélags, en félags- leg samskipti kvað Högni erfið vegna þess, hve dreifðir læknarnir væru. ÁLYKTANIR Alls lágu fyrir aðalfundinum 15 tillögur og höfðu fjórir starfshópar fjallað um þær og skil- að áliti. Eftirfarandi fjórar tillögur frá stjórn Lækna- félags Islands voru samþykktar samhljóða: „AÖalfundur Lælcnafélags fslands, haldinn í Domus Medica dagana 22. og 23. sept. 1979, skorar á heilbrigöismálaráöherra aö undirbúa nefndarskipan til ráögjafar og eftirlits um vís- indarannsóknir í læknisfræöi og skyldum grein- um í samræmi viö svokaUaÖa Hensinki-yfir- lýsingu A lþjóöaiœknaféiagsins.“ AÖálfundur Læknaféiags fsiands, haidinn í Domus Medica dagana 22. og 23. sept. 1979, beinir þeim tilmœium til stjórnar Domus Medica, aö hún endurskoöi skipuiagsskráiw, frá 1960. Til þess aö tryggja, aö ávailt séu náin tengsl miUi stjórnar Domus Medica og stjórna tœknafétaganna, telur fundurinn œskilegt, aö formenn L.t. og L.R. eigi sœti í stjórninni." Áður en gengið var til atkvæða um þessa

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.