Læknablaðið - 15.10.1980, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐID
229
sýnilegur æxlisvöxtur var fjarlægður, en fróun-
araðgerð, ef ekki tókst að fjarlægja sýnileg
meinvörp og æxlið sjálft. Hjá 24 sjúklingum
reyndist brottnám æxlis algjört.
Hjá 16 sjúklingum dæmdist brottnám æxlis
ekki algjört, (tafla IV). í þessum tilfellum var
gert brottnám á hluta vélindans með tengingu
á maga og vélinda (resectio oesophagii cum
oesophago-gastroanastomoses) í einu tilfell-
anna þurfti að gera magafistil seinna. Könn-
unaropnun (thoracotomia explorativa) var
gerð hjá 16 sjúklingum. Hjá 6 þeirra var
samtímis eða seinna gerður magafistill, 3
þeirra fengu eftirgeislun, Souttarslanga var
sett í vélinda hjá 5 þeirra.
ÁRANGUR
Daudsföll eftir adgerd: Eins og áður er sagt,
voru gerðar57 brjóstholsopnanir vegna krabba-
meins í vélinda. 10 sjúklingar, 17,5% dóu
innan 1 mánaðar, þ.e.a.s. sjúkrahúsdauða.
Sjúkrahúsdauði reyndist 25 % þegar um
algjört brottnám æxlis var að ræða, en þar
sem fróunaraðgerð var framkvæmd, var
sjúkrahúsdauði nokkru minni. Pegar um könn-
unaropnun var að ræða, var sjúkrahúsdauði að
sjálfsögðu minnstur, eða 6,2 %.
Það voru gerðar samtals 17 brjóstholsopnan-
ir þar sem ekki reyndist unnt að fjarlægja æxli.
Fylgikvillar vid uppskurd: Tafla VI sýnir fylgi-
kvilla eftir skurðaðgerðir. Blæðing frá æxli
varð 2 sjúklingum að aldurtila, þar var um
könnunaropnun að ræða. Lungnahrun, bjúgur
og bólga í lungum ásamt hjartasjúkdómum
voru algengustu dauðarorsakirnar.
ígerð í skurðsár fengu 6 sjúklingar og náðu
þeir sér allir, eftir að ígerðin var tæmd út.
Table V. Hospital mortality
Opera- Hospital
tions mortality
Curative resection . 24 6 25.00 0/0
Palliative resection . 16 3 18.75 %
Explorative thoracotomy ... . 17 1 6.25 %
Total 57 10 17.25 %
Table VI. Causes of death
Bleeding from tumor 2
Pulmonary embolism 3
Cardio-vasc.disease 2
Pneumonia 3
Survival %
Fig. 2 Overall survival rate of patients with carcino-
ma of the esophagus with and without treatment
compared to those who were treated by radical
resections, Radical resection includes hospital mor-
tality.
Allir sjúklingar, sem dóu sjúkrahúsdauða
voru krufnir.
Fylgikvillar við brjóstholsopnanir reyndust
28 % eða í 16 sjúklingum af 57. Þetta er allhá
tala, en þess ber að geta, að sjúklingar þessir
voru komnir á efri ár, þegar þeir voru skornir
upp.
Souttarslanga var leidd í gegnum vélinda
hjá 5 sjúklingum. Krabbamein var mjög út-
breitt hjá þeim öllum. Allir voru þessir sjúk-
lingar dánir innan 1 árs.
Sex sjúklingar, sem fóru í könnunaropnun
fengu gerðan magafistil seinna, 3 þeirra voru
dánir innan '/2 árs og allir dánir innan 1 árs.
Hjá 7 sjúklingum var gerður magafistill án
þess að um könnunaropnun væri að ræða.
Tveir þeirra fengu auk þess koboltgeislameð-
ferð.
Sex þessara sjúklinga voru dánir innan V2
árs og allir innan 1 árs.
Æviskeid eftir adgerd: Þegar athugað er, hve
lengi sjúklingar lifa eftir aðgerð (over-all
survival) kemur í Ijós, að dauðsföll eru flest á
fyrstu 2 árum eftir aðgerð, sjá mynd 2. Að
tveim árum liðnum eru aðeins 10 % lifandi, en
eftir það verður lítil breyting og gætir þar
fyrst og fremst sjúklinga sem hlutu algjört
brottnám (curative resection).
Á mynd 2 eru færðir inn 24 sjúklingar, sem
fengu gert algjört brottnám æxlis. Að hálfu ári