Læknablaðið - 15.10.1980, Blaðsíða 23
LÆKNABLADID
239
þarf atvinnuleyfi og tímabundið lækningaleyfi
og er auðvelt að fá það, ef menn hafa fengið
stöðu.
Pessi hlið mála var rædd við fulltrúa og
lækni í Helsedirektoratet. Þeir töldu ekkert
því til fyrirstöðu að meta starfsreynslu frá
íslandi til jafns við aðra í umsóknum, og voru
almennt jákvæðir, en bentu á, að íslendingar
hefðu sérstöðu samkvæmt reglugerðinni, hvað
varðar fullt lækningaleyfi, samanber ofan-
greint.
Leiðir til að komast að í Noregi
I. Allar lausar stöður til 6 mánaða eru auglýst-
ar í Norska læknablaðinu. Blaðið hefur yfir-
leitt komið of seint til íslands, til pess að við
höfum getað haft gagn af, enda umsóknarfrest-
ur oft ekki nema 3 vikur. Norðmenn lofuðu
að reyna að flýta komu blaðsins hingað og
jafnvel senda okkur auglýsingarnar sér, eins
fljótt og þeir gætu, ef annað dygði ekki. Peir
bentu reyndar á, að norskir læknar í héruðum
kvörtuðu undan pví sama og við!
Sótt er um stöður á sérstök eyðublöð,
sýnishorn eru til hjá stjórn FUL. Umsóknir eru
yfirfarnar af yfirlækni viðkomandi deildar. Pær
eru síðan sendar Helsedirektoratet án umsagn-
ar yfirlæknisins og velur pað prjá umsækjend-
ur fyrir hverja stöðu, er mesta reynslu hafa.
Umsækjendum er raðað eftir hæfni, en sjúkra-
húsið er síðan ekki skyldugt til að taka efsta
mann á lista, aðeins einn peirra priggja, sem á
honum eru.
Almennt gildir, að mjög hæfir umsækjendur
með langa reynslu sæki um stöður á stóru
háskólasjúkrahúsunum í Osló og pví erfitt að
keppa við pá. Þetta er misjafnt eftir sérgrein-
um. Norðmenn töldu að íslendingar með 1 'h-
2ja ára reynslu í »super«-kandidatstöðu eftir
að hafa fengið fullt íslenzkt lækningaleyfi,
ættu góða möguleika. Ef sótt er um á minni
sjúkrahúsum aukast möguleikarnir strax. í
raun er ekkert unnið með pví að einblína á
stærstu háskólasjúkrahúsin, pví að par eru oft
margir um hituna, og reynslulitlir læknar
komast pví vart nálægt sjúklingunum. Á stóru
sjúkrahúsunum er erfiðast að komast að í
hand- og lyflækningum, en mun auðveldara t.d.
í geðlækningum, og röntgen. Einnig er erfitt
að fá gott húsnæði á Oslóarsvæðinu, en strax
mun auðveldara á minni stöðunum.
II. Afleysingar eru ein auðveldasta leiðin til að
komast með annan fótinn inn á sjúkrahús. Oft
vantar fólk í sumar- og vaktafrísafleysingar og
pað borgar sig að kanna pennan möguleika
með góðum fyrirvara, t.d. ekki seinna en um
og upp úr áramótum fyrir sumarafleysingar.
Flestir peirra norsku tengiliða, er okkur var
vísað á, töldu auðveldast að fara pessa leið.
Þeir voru mjög jákvæðir varðandi pað að
greiða pannig götu okkar, ég tala nú ekki um,
ef með umsókn um vikariat fylgdi kynningar-
bréf frá íslenzkum kollega.
Ef aðstæður væru hagstæðar, gæti viðkom-
andi síðan hringsólað milli »vikariata«, ef t.d.
yfirlæknir viðkomandi deildar væri honum
velviljaður og hefði gefið loforð fyrir slíku.
Einnig er auðvelt að sækja um lausar stöður
pegar viðkomandi er á staðnum. Við höfum
pegar fengið jákvæðar undirtektir hvað petta
varðar frá sumum peirra lækna, er við rædd-
um við persónulega, og höldum til haga lista
yfir pessa menn og pá íslenzku lækna, er geta
aðstoðað.
III. Þeir sem kæra sig um, geta strax að loknu
embættisprófi hér heima tekið kandidatsárið
og hérað í Noregi, og komist pannig inn í
kerfið og fá auk pess fullt norskt lækningaleyfi
með pví að taka tilleggskursinn. Norðmenn
draga um kandidatsstöðurnar og parf að
sækja um að fá vera með í drættinum til
norska unglæknafélagsins er pá gefur nánari
upplýsingar. Sá fyrsti dregur úr öllum pottin-
um, en sá síðasti verður að láta sér nægja
restina. Einnig fá margir undanpágu vegna
féiagslegra og persónulegra aðstæðna (25 %).
Enn aðrir hundsa að draga um stöðurnar,
pví að skortur er á turnuskandidötum í Noregi
og pau sjúkrahús, sem ekki fá fulla setningu
strax, auglýsa lausar stöður síðar og eru pær
oft sízt lakari (auglýstar í Norska læknablað-
inu). Venjulegt norskt kandidatsár er 'h ár á
»medicin« 'h ár »kirurgia« á sama sjúkrahúsi,
'h ár í héraði, en til eru undantekningar á
pessu fyrirkomulagi.
IV. íslenzkir læknanemar hafa síðan 1976 farið
í sumar-»vikariöt« til Noregs og gengið vel.
Æskilegt er að peir læknar, sem hafa áhuga á
að kynna sér landið notfæri sér pá góðu
möguleika, sem eru á að fara í »vikariat« og
miðli síðan reynslu sinni heima. Auðvelt er að
komast í pessar stöður og virðist nægilegt
framboð af peim, sérstaklega yfir sumarmánuð-
ina. Bezt er að skrifa á norsk sjúkrahús með
góðum fyrirvara og ítreka er nálgast vorið.